Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 15.04.1908, Qupperneq 4

Bjarmi - 15.04.1908, Qupperneq 4
GO B J A R M I brunna — fengið svölun, huggun og hvíld? — Er eilífðarþrá og guðsþrá mannshjartans tilviljun ein? — Er á- rangurslaust að hrópa með skáldinu?: j)Guð minn, Guð, ég hrópa gegnum myrkrið svarta, líkt sem út úr ofni æpi stiknað lijarta. Gefðu dag í dauða, Drottinn, mínu skari. Vonarsnauða vizkan veldur köldu svari. T> — Nei, Guði sé lof. Það er ekki árangurslaust að leita, ekki árangurs- laust að hrópa um sannleiksljós út úr efasemdamyrkri mannlegra draum- óra og mannlegra þjáninga. Jesús sagði við Pílatus: »Til þess er ég í heiminn kominn að ég beri vitni um sannleikann«. Og el' vér spyrjum: Um hvaða sannleika? Þá kemur oss eðlilega fyrst í hug orðin, sem Kristur sagði: »Jeg er vegurinn, sannleikurinn og lífið«. — Hann vitnaði um sjálfan sig, um þann guðdómlega sannleika að kær- leikur hins þríeina Guðs helði knúð sig úr dýrð himnanna, ekki íýrst og fremst til að Icenna mönnunum, — það hefðu spámenn getað gert, — lieldur lil þess að bjarga þeim, ganga í þeirra slað i gegnum hinar óttalegu alleið- ingar syndarinnar, og verða síðan vegurinn að föðurhjarta, guðs, vegur- urinn beim til liæða fyrir hverja sál, er lijálp hans vill þiggja. — Hjá hon- um, og honum einum, getur mannssál- in fengið svör við alvarlegustu spurn- ingum sínum, fundið varanlegan frið í öllu stríði lífsins og lilotið hvíld, þrátt fyrir alla baráttuna. Sannkristnir menn þekkja engan annan meðalgangara milli guðs og manna en Jesúm Krist, og trúa alveg þeim orðum hans sjálfs: »Enginn kemur til föðursins neina fyrir mig«. En einmitt þess vegna hljóta allir Krists menn að mótmæla því eindreg- ið, að það skifti minstu, þótl menn hafni frelsaranum, og að »hver verði sæl) við sína trú« (eins og gömul og ný efasemda-»guðfræði« hefir jafnan hallast að). Enda er óhætt að fullyrða að sé lifandi kristindómur og trúarreynsla sannkristinna manna ekki svik og blekking, — og liver diríist að stað- hæfa það? — þá er þessi skoðun efa- semdastefnunnar, alósönn og stór- hættuleg; og er það engu að síður enda þótt hún sé stundum í prests- legum málsnildarskrúða, með heim- spekilega skýjavængi eða í skáldsagna litklæðum. Það stoðar ekki, nema við hugsnn- arlítið fólk, þóll áhangendur hennar beri Kristsmönnum á brýn blindni og ofstæki. — Það er ekki fullreynt enn, hvort hinir sjá betur, sem leita sann- leikans i myrkrinu, eða þykir sú vizka mest að vefengja alt guðsorð og vera sífelt að fara með gömlu orðin freislarans: »Skyldi Guð halá sagt«? Og oss bregður heldur ekki, þótt þeir lirópi um, hvað frámunalega ósann- gjarnt það sé af sannkristnum mönn- um að telja frábrugðnar skoðanir syndsamlegri en illar athafnir. Það er að eins eilL dæmi afmörgum, sem sýnir hvernig »víðsýnu« mennirnir rangfæra eða misskilja lifandi kristin- dóm. Því að sannkristnir menn eru manna íusastir til að kannast við, að illar athafnir hljóti að spretta af van- trú hjartans, og að ýms skoðanamun- ur hrindi mönnum ekki frá guðsríki, þegar ekki er að ræða um grundvall- arskoðun mannlífsins, eða afstöðu manna gagnvart Jesú Kristi. Vantriíin er heldur alls ekki slcoðim fyrst og frcmst heldur viljaste/na, lnin vill ekki auðmýkja sig fyrir

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.