Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.02.1909, Page 6

Bjarmi - 15.02.1909, Page 6
30 B .1 A H M I. þessari blessaðri nýársnótt. Og hann gleymdi henni aldrei síðan. Hann er orðinn ungur í annað sinn. Minningarrit um Þorbjörgu Sveinsdóttur, Ijósmóður, hefir »Hið íslcnzka kvenfélag« vinsamlegast sent Bjarma til umgetningar. Oss er ljúft að geta ritsins, því að minn- ing hinnar látnu merkiskonu er oss kær, því að æfistarfið liennar gladdi svo marga og — gleður enn. Hún stofnaöi »Hið ís- lenzka kvenfélag« til eflingar félagsskap, mentun og réttindum kvenna. »Hið íslenzka kvenfélag« gefur ritið úl á sinn kostnað, en alt, sem kemur inn fyrir það, gengur i hinn svonefnda »Blóm- sveigasjóð« Þorbjargar, sem varið er til styrktar fátækuin sængurkonum í Reykja- vík. Ritið er þvi nokkurskonar blóm- sveigur, sem kvenfélagið gefur til minn- ingar um hina látnu ágætiskonu. Nú gefst öllum, konum jafnt sem körl- um, færi á að lieiðra minningu hinnar göfuglyndu konu, með þvi að kaupa ritið og auðga með því »Blómsveigasjóðinn« hennar. Ritið er hið prýðilegasta að öllum frá- gangi og kostar 50 aura. Úr ýmsum áttum. Heima. (xóð gjðí’. Kona nokkur i Rvik, sem óskar að^láta nafns sins ógetið, gafkristni- boðsfjelaginu i Rvík 60 kr. i »nýársgjöf« með þeim ummælum að gjöfin væri lítill vottur um þakklæti siil fyrir dýrðlega bænheyrslu á liðnu ári, og að hún mundi framvegis liugsa félaginu fyrir einhverri nýársgjöf rneðan efni sín og ástæður yrðu óbreyttar. Kristinboðsfélagið, sem gjöfina fékk, hefir ekki haldið fundi um liríð formað- ur þess'var síra Lárus sál. Halldórsson, en féhirðir Bjarni Hjaltested geymir eignir þess í sparisjóði, og væntanlega verður þessi rausnarlega gjöt bæði til þess að nýr áhugi komi i félagið, og að lleiri verði fúsir til að styrkja það. »Nordurland« skrifar allangt mál í f. m. um trúmáladeiluna meðal landa vestra, cn fráíögn þess er mjög þröngsýn og einhliða. Rlaðið ámælir þeim, sem vilja halda hreinni lútersku stefnu, og ber þeim síra Hans Thorgrimsen og síra Jóni Bjarna- syni á brýn ósamkvæmni og stóryrði, en getur livergi um stóryrði Breiðablika og virðist telja það drenglyndi eilt af sira Fr. Bergmann að vilja sitja sem fastast i kirkjufélaginu og ætlast til góðra launa hjá þvi, enda þótt hann vinni af alefli gegn aðalmálgagni og stefnuskrá félagsins. (xóðir gestir. Frú Steinunn Haver, ís- lenzki læknirinn og kristniboðinn í Kina, sem lesendur vorir munu kannast við,— skrifar 3. nóv. f. á. frá Weckow Kina, að þau hjónin ætli frá Kína 20. marz í vetur, komi til Lundúna 14. apríl og til Rvikur snemma í júní. Pau hjónin bú- ast við að halda fyrirlestra um kristni- boðið i Kina bæði i Rvík og Akranesi, og ef til vill víðar. Það væri óskandi að koma þeirra yrði til að vekja nýjan kristni- boðsáhuga vor á meðal. f*au dvelja hér á landi líklega mánaðartíma, fara liéðan til Ameríku, og þaðan aftur til Kína. Hjálpræðislieriiin hefir lieðið að vekja eftirtekt bæjarbúa á þvi, að herinn hafi nú hjúkrnnarkonii i þjónustu sinni, sem taki að sér, hve nær sem er og eins víða og unt er, aö vaka yfir sjúkum oghjúkra þeim, og er ekki ætlast til borgunar fyrir þetta liknarstarf, hvorki af ríkum né fá- tækum. Höfiindnr greinar þeirrar »um trúmál og kristindóm«, sem hér birtist í blaðinu, er gamall sveitabóndi ogvalinkunnur merk- ismaður sem gegndi ýmsum opinbcrum störfum og heitir Ásmundur Benediktsson. Hann bjó fyrrum á Stóruvöllum í Bárðar- dal, og siðar í Ilaga í Gnúpverjahreppi, en er nú á Arhrauni á Skeiðum, koniinn yfir áttrætt, en þó enn ern og hress í anda og fylgist furðu vel með. Erlendis. Frá Kaiipiiiaiiiialiöfn. Pað er alt af ver- ið að byggja nýjar kirkjur í Höfn, og fjöldi trúaðra manna gefa ótrúlega mikið bæði til þeirra og annara kristilegra fram- kvæmda. Kirkjurnar eru flestar vel sóttar, og prestarnir 54 sjá ekki út úrannrikinu. Áhugamennirnir ganga í safnaðarfélög (»i\lenighedskredse«) til trúboðs og líknar-

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.