Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1911, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.01.1911, Blaðsíða 5
B J A R M I 3 einrænu prestarnir sig minna um »að hver fari einn með trú sína«. Suma brestur alla stuðningsmenn. Enginn alvaknaður maður í andleg- urn skilningi í söfnuðum og þeir, sem kunna að vera í svefnrofunum, eru kjarklausir og vilja ekki gjöra sér »ó- þarfa ómak«. »Hvað eru nú margir í söfnuðum þínum, sem skilja þig fyllilega ?« spurði ég trúaðan prest fyrir nokkrum árum. — »Ein gömul kona«, svaraði hann, »og liinir segja að það sé eðlilegt, því að hún haíi verið biluð á geðsmunum í mörg ár.« — — Þegar svo er ástatt, er ekki að ræða um neinn félagsskap fyrr en fleiri vakna. Suma brestur þekkingu og reynslu. Þeir hafa aldrei kynst safnaðarstarfi, enda þótt þeir haíi sumir dvaiið við nám hér í Reykjavík síðan þess hátt- ar félagsstarf hófst. hér, Sumpart var það annriki við námið, en sumpart og einkanlega sleggjudómar fólksins uin heimatrúboðið, sem öftruðu þeim frá að kynnast biblíulestrum, bæna- samkomum og kristilegum húsvitjun- um. þeir þorðu ekki að eiga það á hættu(!!) að verða kallaðir »innri- missjónerar« og eru svo alveg ráða- lausir, þegar þá langar sjálfa lil að starfa frekar í söfnuðunum en laga- skyldan heimtar. Fleíra má og nefna, seni liindrar samfélagskristindóm í sveitum þessa lands, t. d. veðrátta, vegalengdir, hús- næðisleysi, annríki vegna fólkseklu o. s. frv. — en lifandi trúaráliugiog starfs- lægni komast furðanlega yfir þær tor- færur. Áhugalaus maður vekur ekki annara áhuga og ókunnugur segir ekki vel til vegar. Þeir einir, sem sjálfir eru í samfélagi Krists eiga nokkurt kristi- legl trúarendi lil annara. Starfslægnin er nokkuð komin und- ir góðu lundarfari og alúðlegri fram- komu, en meira má þó æfingin, — sá verður jafnan klaufi, sem aldrei byrj- ar, — og löngunin eftir að leiðbeina sálum til Iírists, því að kærleikur Krists og æfingin laga lundarfarið. En hvernig á eg að byrja? Hvernig á ég að fá trúlineigðasta fólkið í söfn- uðinum til að bindast samtökum til kristindómseflingar? spyrja sumir prestarnir. Það er ómögulegt að gefa fullkomn- ar reglur í því efni, sem fara megi eftir að öllu leyti, hvernig sem á stendur, en bent get ég á aðferðir, sem hafa geíist vel annarsstaðar, prest- um þeim til íhugunar, sem liafa spurt eða eru að hugsa um að spyrja, af þvi að þeir eru sárþreyttir orðnir á einangrun og aðgerðaleysi — og af því að Kristur og samvizka þeirra segir: »Starfaðu meira og starfaðu betur«. Kyntu þér íyrst í kyrþey — það er hægast við húsvitjanir — hvað margl af trúuðu eða veiulega trúlineigðu fólki í sveitinni eða þorpinu sé fáan- legl til að sinna kristilegum samkoiu- um eða samfundum utan kirkju, og bentu þeim á ánægjuna og trúar- styrkinn, sem slikir fundir veiti. l’egar þú ert orðinn viss um ein- hverja hluttöku — fáir og góðir eru miklu betri en margir ótraustir — þá flyttu stutl erindi eftir messu í sókn- inni, þar sem félagsskapurinn á að verða, um þj'ðingu kristilegrar safn- aðarstarfsemi.bibliusamlesturs og sam- bænar. Pá skýrir þú frá livað þú hafir í hyggju, og það sé eingöngu vegna Ivrists og vegna safnaðarins, en ekki vegna prestsins eða af tómri ný- ungagirni.1 Sé hægt að koma því við, er bezt að hafa fund á eftir með þeim, sem l)Pegar Zophonias sál. Halldórsson, prófaslur i Viðvík, stofnaði kristilegan félagsskap i Hólasókn, boðaði liann öll gömul og ung fermingarbörn sin til kirkju og stofnaði félagið með þeiin. Er það gott ráð fyrir roskinn prest, enda er unga fólkið oftast félagslynt.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.