Bjarmi - 01.01.1911, Blaðsíða 10
8
B J A R M I
Það var 685 þús. meira en árið áður, vegna
vaxandi eftirspurnar í Austurlöndum, i1/^ milj.
fór t. d. til Kína.
Ef fulllrúar kœmu fyrir hvert tungumál sem
breska félagið hefir látið prenta, kæmu 75
frá Norðurálfunni, 152 frá Asíu, 103 frá Afríku,
32 frá Ameríku og 62 frá Eyjaálíunni. 6 ný
tungumál bættust við árið sem leið. Fjelagið
gaf t. d. út 2 guðspjöll á Nammá-máli, sem
40 þús. mannætur tala á suðurströnd Nýu
Guineu. —
Útgjöldin voru um 2 milj. króna árið sem
leið. — Alls hefir félagið gefið út 222 milj.
eintök af biblíum.
Mikið er þegar gjört, þó eru enn eftir t. d.
um 100 mállýskur á Suðurhafseyjum og 28 á
Indlandi, biblíulausar.
Biblíusalar flytja bibliuna á hreindýra-
s 1 e ð u m á Lapplandi, hundasleðum í
Alaska, uxavögnum á Borneó, á ú 1 fö 1 d-
u m hjá Mongólum í Gobi, á lamavögnum
um Andesfjöliin í Suður-Ameríku, á b u r ð-
armönnum um miðbik Afríku og Kfna,
og á hestum á Islandi.---------
Kristniboð prótesanta hófst fyrir alvöru litlu
fyrir 1800 og 100 ár var verið að kristna íyrstu
miljón heiðingja, en 12 ár aðra miljónina.—
Nú eru skírðir 450 heiðingjar daglega að
meðaltali, það verður ein miljón á 6 árum.
Úr bréfi frd Khbfn. „Eg hefi oft furðað
mig á ríkum stórkaupmanni sem býr í sömu
götu og eg, furðað mig og skammast mín.—
Hann hefir verzlunarsambönd í öllum áttum,
og er mikils metinn f Kaupmannafélaginu, og
sjálfsagt þarf hann eftir mörgu að líta, svo
margir eru starfsmenn hans. En um kl. 6 á
kvöldin, þegar búið er að loka skrifstofunni
labbar hann oft af stað með stóran blaða-
böggul undir hendinni; það eru kristileg smá-
rit, sem hann gefur á fjölförnustu götum borg-
arinnar. Sagt er að annar stórkaupmaður
hafi nýlega mætt honum fyrri hluta dags,
þar sem hann var að gefa smáritin og hafi
spurt hann hálfhissa: »Hafið þér tfma til
þess að vera að þessu um þettaleyti?« „Já",
svaraði hinn, „það hefi eg, þetta eru mikil-
vægustu viðskiftin mín“«.
Tucker hét ungur og efnilegur málari í
Englandi, meðal annars vann hann að stóru
málverki ar hét »HæIislaus«. Það var af fá-
tækri konu, er ráfaði í hríð með litla drenginn
sinn fram hjá harðlokuðum húsum. Það var
Iistaverk og auðsjeð á því að málarinn reyndi
að kynna sér eymdina, en þegar hann var að
virða það fyrir sér til að ljúka við það, varp-
aði hanu sér á kné og andvarpaði: „Guð
hjálpi mér. Er mér ekki nær að hjálpa þess-
um aumingjum, en að vera að mála þá?« —
Skömmu sfðar hélt hann til Oxford til guð-
fræðisnáms, og lauk því með lofi. Hann var samt
ekki að hugsaumað ná í tekjumikið prestakall.
— Sendið mig þangað sem erfiðast er og
þörfin mest, sagði hann við kristniboðsfélagið
— og hann var sendur til Austur-Afríku. —
Síðustu 15 árin hefir þessi sami Tucker verið
biskup í Uganda, þar sem kristniboðið hefir
blessast svo framárskarandi vel.
ATormónar eru alstaðar óvinsælir þar sem
þeir reka trúboð silt, einkum vegna fjölkvæn-
iskenninga sinna og áleitni við ungar stúlkur,
og þvf hafa verið gjörðar áskoranir í ýmsum
löndum um að banna alveg trúboð þeirra.
Nú heiir stjórn Þjóðverja riðið á vaðið. Vit-
anlega varð að fara varlega, þar sem Mor-
mónatrúboðarnir eru flestir borgarar Banda-
ríkjanna, en eftir 7 ára samninga og skriftir
milli utanríkisráðaneytis Þýzkalands og sendi-
herra Bandaríkjanna fór svo að Þjóðverjar
bönnuðu í sumar alt Mormónatrúboð »þar eð
kenningar þeirra færu í bága við siðferðið«,
og sendiherrann lét Mormónabyskupinn í
Berlín vita, að hann yrði að fara úr landi
með trúboða sína. Hjelt hann þá til Sviss
með rúma 20 »fylgdarmenn«. —Margirhalda,
að Norðurlönd muni bráðlega gera Mormón-
um sömu skil.
Kostaboð.
Bjarmi kostar 1 kr. 50 au. árg., 24 lölublöð. Nýir kaupendur fá sögurnar; »PA11«
eftir N. P. Madsen og xMaríu .Tones« í kaupbætir unt leið og þeir borga árg.
Eldri árganga geta þeir fengið innhefta fyrir t krónu hvern, nema fyrsta árg.,
hann kostar 1 kr. 50, af því liann er á þrotum. En borgun verðnr að fyfgja pöntnn,
Auk þess fá útsölumenn 20—25°/o i sölulaun, eins og áður heflr vei'ið auglýst.
Útgefandi: Hlutafélag í Reykjavík.
Ritstjóri; Bjarni Jónsson kennari, Kárastíg 2, Reykjavík.
Afgreiðslu- og innheimtumaður: Sigurjón Jónsson, Lækjargötu 6.
Prentsmiöjan Gutenberg.