Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.11.1912, Page 6

Bjarmi - 15.11.1912, Page 6
171 15 J A R M I upp úr öllum efasemdum, eins og fjall úr þoku, þegar hjartaö tekur við stjórninni af höfðinu, þegar rósemi hins barnslega trún- aðartrausts kemur yfir fjölda manns í einu, eins og himneskt sólskin, mitt í hættunni. Próf. kraup tvisvar við altarið, áður en hann stigi í stólinn; bænarandvörp hans heyrðust í gegnum sálmasöng safnaðarins. Síðan gekk hann upp í ræðustólinn keikur og karlmannlegur, honum hafði aukist þrek og þor við bænina. Augu alls safnaðarins hvlldu á honum. Hann lagði út af cldihum. Drottinn birti dýrð sína og réttlæti með eldi enn, eins og hann hefði gjört á dögum sáttmálanna, þegar mennirnir gleymdu boðura hans og vilja af tómlæti og léttúð. En þótt reiði guðs væri brennandi eldur, þá væri f'óður- kcerleikur hans þó langt um heitari. Stðari hluti ræðunnar var svo hughreyst- ing og upphvatning: Menn rettu að taka föðurlegri umvöndun guðs með auðmýkt og undirgefni, en þó jafnframt með djörf- ung og karlmensku. Hinn sanni guðsótti væri jafnframt hin sanna karlmenska. Ekkert væri guði fjarstæðara en hugarvíl og bleyðimenska á dögum hættunnar; menn ættu að ganga óskelfdir gegn hverri hörmung, sem hann vildi mæta láta, treystandi gæzku hans, biðjandi, vonandi og lofsyngjandi. Það eitt væri samboðið guðs börntim og sönnunt lærisveinum Krists. Og hann mátti djarft um tala. Hann stóð enn mitt á meðal þeirra, kendi þeim og hughreysti þá. Allir nágrannaprestarnir voru llúnir, enginn vissi hvert. Har.n einn vék ekki frá söfnuði sínum í þessum hörmungum. Hann var næstur eldinum, prestur þeirrar sóknarinnar, sem harðast var leikin. Samt var hann nú í kyrkju sinni, fullri af fólki, beint fyrir rennandi hrauninu — í síðasta sinni að öllum Kkum, og talaði djörfungar og hughreystingarorð mitt í hættunni. Þessi orð voru ekki tómur hljómur; þau voru rækilega studd af dag- legu dæmi hans sjálfs. — Hann var höfð- ingi safnaðar síns, andlegur og líkamlegur leiðtogi, sem þeir hétu að fylgja í hjarta sínu, hvað sem á dyndi. Próf. lauk svo bæninni með brennandi bæn til guðs. Alt, sem hann hafði áður sagt, var sem hjóm hjá því andríki og trúardjörfung, sem kom fram I bæninni. Eftir þá bæn fann margur til þess fyrst á æfi sinni, að hann trúði og treysti almátt- ugum guði. Síðan gekk próf. og allur söfnuðurinn út að hrauninu. Þvi hafði ekki þokað vitund áfram, meðan á messunni stóð, heldur numið staðar og lagst til eilífrar hvíldar. „Kraftaverk drottins," mæltu menn þá fyrir munni sér, en próf. kallaði til fólksins og mælti: „Látum oss krjúpa á kné og þakka guði fyrir þessa dásemd. Hér eftir má vona, að þessi plága sé senn á enda." Og hann féll á kné og allur söfnuðurinn með honum, og hann hóf þakkargjörð sína til guðs með upplyftum höndum og hárri raustu. A þessa leiö segist höf. frá þessari ein- stæðu og merkilegu guðsþjónustu, og er frásögnin þvt merkilegri, sem hér er um sannsögulegan viðburð að ræða, er aldrei mun fyrnast, meðan kristilegt trúarþrek og barnslegt trúnaðartraust til guðs þekkist á þessu landi. Margir kunna þeir að vera nú á dögum, sem ekki gjöra annað en brosa að þessari einföldu og barnslegu trú Jóns próf. og safnaðar hans. En hvað myndu þeir hafa gjört, ef þeir hetðu verið þarna staddir sjálfir, eða kænnist t sllkar mannraunir? Hvort myndu þeir þá reynast góðir hirðar, eins og Jón prófastur Steingrtmsson, eða leiguliðarð Það má mikið gagn hafa því, að lesa þessar sögur Jóns Trausta, þó margt kunni þar að vera missagt í ýmsum atriðum, og vér vonum, áð þær nái góðri hylli alþýðu. Síðari hlutinn á að heita Sigur lífsitts, og segirjþar mest frá Jóni prófasti. Bókin kostar 3 kr. 75 au. Leiðrétting hefir einn vina blaðsins vestan hafs beðið fyrir á þessa leið: „Þegar Bjarmi flutti æfiágrip Eggerts sál uga frá Helguhvammi í apríl í vor hefir gleymst að geta um einn bræðra hans al- veg, eins og í Clðni þar sem bræður hans eru taldir 2. — Þeir bræður voru 5 alls: Sigurður elzti (d. 1879), þá Jónas (dó fyrst- ur þeirra bræðra), þá Eggert, þá Björn og Ei.irni (tvíburar). Björn dó 1870, en Bjarni f.ðir séra Bjarna í Arborg Man. Can. lifir enn, varð áttræður í vor. Búinn að vera blitidur t 12 ár. — Jónas gleymdist hjá Oðni og Bjarma. En börn Jónasar eru 2 á Kfi vestra: Guðrún húsfreyja Jóns bónda Skúlasonar í Nýja íslandi og Jónas kaupm. í Winnipeg."

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.