Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.06.1919, Blaðsíða 4

Bjarmi - 15.06.1919, Blaðsíða 4
100 BJARMl slundum vill verða, og komi mönn- um til að syngja sálma á andatrúar- fundum til þess eins að »andar fram- liðinna« »njóti sin betur í samband- inu«. Margur maður er vinfastur og heimilisrækinn, þótt hann skifti sjer ekkert af trúmálum, — en »geri það rjett fyrir konuna« að fara einstöku sinnum með henni lil kirkju. Þess vegna stappar það nærri guð- lasti í vorum eyrum, þegar kenning spiritista er sell við hliðina á eða jafnvel ofar en fagnaðarerindi Krists og kölluð nýtt fagnaðarerindi. Blekking, tál, vonsvik og kæruleysi — það verða ávextirnir að lokum og annað ekki. En þá koma guðspekingar með sinn riýja Messías. Hann á »að þeirra trú« að geta komið því til vegar, sem nýguðfræði og »nýtt fagnaðarer- indi« gáfust upp við. Það er væntanlega óþarfi að geta þess við flesla lesendur Bjarma, að vjer treystum ekki þessum »nýja mannkynsfræðara«, sem »Stjarnan í austri« er að búasl við, til að verða líkur og því síður jafn Jesú Kristi frelsara vorum. Áhangendur hans búast raunar við, að hægt verði að heimfæra til hans sumt af því, sem biblían segir um endurkomu Krists. Biblían segir t. d. að Kristur muni koma í skýjum himins, enda sje líklegt, segja guð- spekingar, að mannkynsfræðarinn nýi muni hagnýta sjer bestu samgöngu- tæki og koma, segjum til Beykjavík- ur, í fiugvjel, og þá megi vel segja, að »hann komi í skýjum himins«! Vonandi krefjast menn þó frekari sannana, þegar þar að kemur. Annars er óþarfi að fjölyrða að sinni um slíka draumóra. En hvern hefði dreyml um það fyrir þremur áratugum, að þjónar þjóðkirkjunnar færu að flylja bæði nýja guðfrœdi og nýit /agnaðarerindi, og væru sumir hverjir rjett að því komnir að ganga í fjelagsskap, sem kveðsl vera að undirbúa komu nýs Messiasar? Til Bjarma! Má jeg leyfa mjer að senda vini minum, Vigurprestinum, ofurlitla, — líklega síðustu — sumarkveðju? Þú berð hið hógværa nafn Bjarmi, einasta málgagn vorrar ríkiskirkju(l) auk Ljóssins hjer nyðra, sem að vísu ber harðfengilega fram sína ensku bókstafstrú, en vegur í þeirri forsælu, þar sem engin hreinskilin vörn eða sókn má nærri koma, þótt nú sjeu þeir timar komnir i kristnum heimi, að full nauðsyn ber til að menn þori að horfast í augu. Þó á jeg ekki beinlínis orðakasl við aðra en vin minn í Vigur. Heill og sæll bróðir, ekki fasta jeg það þótt þú bregðir sverði eins og Pjetur í grasgarðinum, sem vjer allir elskum, og miðir á eyra einhvers Malkusar, ef það er í líma gert, en sagði ekki Drottinn við Pjetur: Sling þú sverði þinu í slíður. Vjer höfum nú dæmið fyrir oss að sjá hvað sverð- ið stoðar í trúarmálum. Rjett gerir þú að verja kirkjunnar kraft og guð- dómlegu köllun, þar sem hún sýnir sig Guðs kraft til sáluhjálpar. En hefir sú kristni, sem nú starfar, sýnt þann kraft? Hæfir henni ekki blygð- un síns andlitis? Hvar kom nú fram Interdict hinna stóru páfa, hvar skörungsskapur Gissurar ísleifssonar eða Jóns helga, hvar mikilmenska Guðbrandar og Brynjólfs biskupa, og hvar andríki þess skálds er kvað, »heilaga glóð i freðnar þjóðir«? Jesús

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.