Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.06.1919, Blaðsíða 6

Bjarmi - 15.06.1919, Blaðsíða 6
102 B JARMI engin ný trúarbrögð, síst um líf eftir þetta, heldur gefi hún vissu fyrir von! Var ekki full þörf á því, nú meðan kirkjurnar voru að tæmast og kristindómurinn í veði, og þurfti nýtt form og nýjan kraft til sálu- hjálpar? Hin breytta skuggsjá tilverunnar (worlds-conception) gerir fleslum mönnum og prestunum sjálfum lítt mögulegt lil fulls að trúa eldri tíma tradítionum — eins í trúarmálum sem vísindum. Og nj'ja guðfræðin reynisl ýmist hálfvolg eða dauð og dugar varla lil annars en þess að kirkjurnar haldi tekjum sínum, og þó með því einu móti að þær hræsni meir eða minna, fyrir auðs og yíirgangsherrum samtíð- arinnar. Þetta munt þú eins og aðrir vils- munamenn sjá, að er að nokkru leyli satt, en sjerðu þá enga hjálp í hinni nýju hreyfingu? — Svo var lengi fyrir mjer, sem þó lærði ungur af doktor Channing, að hafna mestu af mythologiu kristinna arfsagna. Loks eftir 10—20 ár hef jeg varpað akkerum, og trúi ekki lengur heldur veit, að lifið er ódauðlegt, dauðinn er uppsvelgdur í sigur og persónulífið á áframhald í vændum, hvernig eða hvað lengi veit jeg miður, en sann- anir hef jeg fengið nógar og slað- reyndir vantar ekki. Ætti jeg peninga, æðardún eða aðrar ástgjafir, skyldi jeg þeim gjarnan fórna fyrir þessa vissu, og eins þau litlu ljóðalilþrií, sem sumir eigna mjer, það má fara, hverfa og gleymast! — En hin nýja vissa, sem mannkynið heíir fengið, sjer til vakningar og gleði, hún er hverjum nóg til siðbóta, sem hana eignast! Hún er að vísu enn sem stjarna í austri, eða nýfætt guðs- barn — en avre viv.a! — hún skal sigra! Hún skal sýna að yfir heims- ins blinda asnastalli býr algóð og eilíf forsjón. Vertu svo blessaður og sæll. Matth. Jochumsson. Oss fanst eigi ástæöa til að varna hin- um háttvirta höf. að framanskráðri grein, máls í blaðinu, enda pótt vjer sjcum honum ósammála í verulegum atriðum, cins og tekið er fram hjer að framan. Annars búumsl vjer við að síra Sig- urði í Vigur verði ekki erfitt að svara þjóðskáldinu. — Strikið var ckki i hand- ritinu. Ritstjóri Bjarma. Nýjar bækur. i. Guðmundur b riðjónsson: Tíu sögur. Útgefandi Sigurður Iiristjánsson. Verð 5 kr. Jeg las bók þessa mjer til mikillar ánægju, og þótt hennar hafi þegar verið getið af ýmsum, leyfi jeg mjer að mæla hið besta með henni við athugula og al- vörugefna lesendur; því sögur þessar eru ekki, fremur enn annað frá hendi Guð- mundar Friðjónssonar, hugsunarlaus orðasamsetningur, — þær cru mergur og blóð, þær hrærast í hreinu andrúmslofti þar sem sjón verður sögu rikari, svo ljóslega eru atburðirnir skýrðir að þcir verða að lifandi myndum fyrir augum lesandans. Orðfæri höfundar þessa þarf ckki að lýsa, svo margir kannast við orðfáu en innihaldsriku setningarnar hans; og þólt sumir hafi fett fingur út i ýms orðatil- tæki hans, hygg jeg að margur mundi sakna þess og þykja miður ef »Guðmund- ur á Sandi« læki sjer nýtísku rithóttar- snið. Sögurnar tíu geyma ýmiskonar efni og yrði hjer of langl mál upp að telja all það. Fyrsta sagan, »A/i og amma«, er fróð- leg lýsing á lifnaðarháttum aldraðra hjóna, og gefur glögga hugmynd um liáltu og^siðujþá er tíðkuðusl á bónda-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.