Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.05.1920, Blaðsíða 16

Bjarmi - 15.05.1920, Blaðsíða 16
96 BJARMt aftan á hverja niynd, stórt kort af Gyð- ingalandi og leiðbeiningarrit á ensku, með hverjum flokk. Hver flokkur kostar 1 dollar og burðargjald að auk. — Verðið pví alls um 8 kr. nú, ef senda parf með pósti frá Reykjavík. Ennlremur litlar biblíumyndir — »ljós- geislar« — 13 til 52 í hóp, útskýringar á bakhlið á ensku, norsku eða íslensku. Verð hvers hóps 40 aurar til 2 kr. eftir tölu og stærð. Vinir Bjarma eiga miklar pakkir skil- ið fyrir að peir vilja styrkja hann, svo að hann standist dýrtíð og geti farið ókeypis tíl ýmsra fátæklinga og sjúklinga. Síðan seinast var auglýst hafa pessir horgað blaðið fram yfir ákvæðisverð: (Heimilið er Reykjavík, sje pað ekki nefnt): 4 kr.: E. Jd.; G. J. Hvg.; P. B. Ijósm. — 5 kr.: A. Fr. Sf.; Á. G. stud. jur.; frú G. B.; G. G. Arnarnesi; G. J. Eiríksbæ; G. J. baðhúsv.; G. M. Ng.; frk. Gf. .1. Vg.; H. O. Hattardalseyri; frú H. P.; G. B. Frst.; J. H. ríkisfjeh.,; Jóh. Sigf. adjunkt; Ól. Ól. p'róf. Hjarðarh.; Ól. Ól. frík.pr.; Kr. Ilaf.; S B. kaupm.; S. .1. Bg.; Sig. Kr. bóksali; P. G. Bg.; sira P. J. — 10. kr.: frú M. Helgad. Grg.; K. E. Gh.; S. P. kaupm.; S. H. Hofsn., (fyrir 2 eint.). — 12 kr.: frú I. S. (3. eint.). — 15. kr.: Sira Þ. P. Valpjófsstað (3eint).; Stgr. Matth. læknir Akureyri (13. og 14.) — 32 kr. Ingimundur á Svanshóli (8. eint.); — 5 dollara (12,—14.) árg.: frú Anna John- son Mozart. — 20 kr. »uppbót« frá vin- konu Bjarma. Verði blaðið yður og fólki yðar til mik- illar blessunar. Pað er algengt'um kristileg blöð er- lendis að áhugamenn kaupi pau handa ýmsum heimilum sem ella mundu ekki sjá pað og jafnvel ekkert kristilegt blað Iesa. Einstaka maður fer pannig að gagn- vart Bjarma, — en altof fáir. Sjerstak- lega pætti oss líklegt að einhverjir vin- ir Bjarma í Ameríku vildu á pann hátt senda »góðan boðskap« til einhverra vandainanna sinna á íslandi. Vandinn ekki annar en senda afgreiðslu blaðsins nöfnin og dollar fyrir hvern ár- gang, og verður pá blaðið sent beina leið til peirra sem um er beðið. Auðvitað er jafnvelkomið að scnda blaðið til íslend- inga erlendis, eftir hjerlendum óskum, en pá verða 5 kr. að fylgja hverri pöntun. Erlendis. Biskupar Norðmanna áttu fund með sjer í marz í vetur og kom par eðlilega trúmáladeilan til umræðu og ályktanir trúmálafundarins mikla. Biskuparnir mæltu allir með tillögum Lövlands kirkju- málaráðherra um sóknarnefndir («Sokne- raad«) og mæltu með lögum um sóknar- bandslýsingu og kjörsöfnuði, og allir, nema Tandberg, mæltu með tillögu fyrn. fundar um rjett foreldra til að mega sjálf sjá um alla kristindómsfræðslu barna sinna. í aðaldeilumálinu varð ágreiningur milli biskupanna. Minni hlutinn: Tandberg og Dietrich- son, töldu nýguðfræðina enga hættu, besl að báðar stefnur störfuðu í bróðerni. Sá síðari lagði pó til að safnaðarprestaskól- inn fengi fullan ríkisstyrk »svo að deil- urnar minkuðu«. Meiri hlutinn, Böchmann, Hognestad, Stören og Stövlen sendu blöðunum pessa ijfuiýsingn: »Vjer teljum pað rjettmætt að nýguðfræðin hefir vakið mótspyrnu í kirkju vorri, par eð vjer ætlum að pað sje veruleg hætta á pví að hún graíi brott jarðveginn undan biblíutrausti og prje- dikanir missi við pað aðalkjarna sinn. En baráttan um Guðs orð verður að vera í kristilegum kærleika og nola andleg vopn, en enga ytri kúgun. Og pað er sannfæring vor að Guðs orð muni láta til sín taka og biblían verja sig sjálf. Söfn- uðirnir eiga heimtingu á að prestarnir flytji ákveðinn biblíulegan boðskap um synd og náð. Peim er og skylt og heim- ilt að dæma um allar prjedikanir hvort pær sjeu samkvæmar Guðs orði, og bisk- uparnir munu hjálpa peim í pví efni, og jafnframt vernda prestana gagnvart rang- látum dómum, og pað pví fremur sem svo margar og harla ólikar skoðanir eiga sjer stað meðal nýguðfræðinganna sjálfra. Síra Wislötr, form. »framhaldsnefndar- innar«, pykir vænt um sum atriði í pess- ari yfirlýsingu, en segir pó mcðal annars: »Klarere toner i denne kamptid vilde eft- er vor mening ha gavnet kirken mere selv om de havde klövet sterkere (Sbr. For fattig og rik, 21. marz p. á.). Prentimiðjau Gutenberg.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.