Bjarmi - 01.02.1922, Blaðsíða 1
BJARMI
= KRISTILEGT HEIMILISBLAÐ =
XVI. árg. Reykjavík, 1. febrúar 1922. 3. tbl.
Er ekki orð milt eins og eldnr, eins og hainar er sundurmolar klettana ? — Jer 23, 29.
Benedikt páfi XV.
Laugardaginn 24. f. m. andaðist
Benedikt páfi liinn fimtándi í Vatí-
kaninu í Róm. Hann var fæddur i
Genua 24. nóvem-
ber 1854 og hjet
áður en hann varð
páfi Giacomo della
Chiesa. Fyrirrenn-
ari Benedikts, Píus
X. var' af óbreyltu
alþýðufólki kom-
inn og bróðir hans
var póstsendisveinn
i litlu sveitaþorpi,
en sjálfum honum
lilotnaðist hiðæðsta
andlega vald hjer
á jörðu. Aftur á
móti var Benedikt
fimtándi af göfug-
um ættum. Hann
var sonur Marchese
Guiseppe della Chiesa og Giovanna
Migliorati. Af móðurætt hans var
kominn páfi Innocens VII. Las hann
fyrst lögfræði og varð doktor í lög-
um 1875, þvínæst nam hann guðfræði
og tók preslvígslu árið 1878. Stund-
aði hann enn guðfræði í 5 ár og gjörð-
ist þá handritari Rampolla, nuntius
páfa í Madrid. Er Rampolla kardináli
varð ráðgjafi Leó páfa þrettánda árið
1887 varð Chiesa skritslofustjóri hans.
Það, er fyrst og fremst vekur eftir-
tekt vora á Benedikt páfa, er óvana-
lega mikil guðrækni; bæði á námsárum
I hans og seinna hittum vjer hann
vetur og sumar kl. 5 að morgni dags
í kirkju og er hann þá oft tvær
stundir samfleytt á bæn. Pius páfi X.
og Rampolla kardi-
náli möttu mikils
hið frainúrskarandi
starfsþrek hans og
kunnáttu. Og sök-
um þess, að Pius
X. hafði afarmiklar
mæturá dellaChiesa
vígði páfi hann sjálf-
ur til biskups í
sixlinskukapellunni
og er þetta sjald-
gæfur og mikill
heiður. Þann 25.
inaí 1914 hlaut
hann kardinálalign
og þegar 3. sept.
s. á. kaus konkla-
við hann páfa og
tók þá della Chiesa sjer nafnið Bene-
dikt XV.
Það er engum vafa bundið, að
telja má Benedikt páfa, einn hinn
mesta og duglegasta páfa hinnar
kaþólsku kirkju, og má svo að orði
kveða, að hann á páfastjórnarárunum
hafi varið öllum líma sínum og kröft-
um til þess að bæta böl styrjaldar-
innar og hinar hræðilegu afleiðingar
hennar. Yfirhirðir meir en 300 millí-
. BenediUt páfi XV.