Bjarmi - 01.02.1922, Blaðsíða 7
BJARMI
23
Laóhokow 8. nóv. 1921.
Kæru vinir!
Dregist heíir lengur en i fyrstu var
ætlað með að senda þetta brjef. Við
komum hingað 5. nóv. Síðan hefi jeg
verið önnum kafinn með hitt og þetta.
Guði megum við þakka fyrir hve
ágætlega ferðin hefir gengið. Hefðum
við verið einum degi fyr á leiðinni
upp eftir fljótinu, hefðu bátar okkar
máske lent í höndum ræningja. ltæn-
ingjar eru hjer stöðugt á ferðum og
gera mikinn usla, en nú þora þeir
þó ekki að gera útlendingum mein
að ráði.
Nýlega frjettum við að skipinu, sem
kom til Shanghai ineð farangur okkar
frá Noregi, hafi hlekst á, og farang-
urinn eyðilagsl að mestu. Líkur eru
til að jeg hafi mist allar mínar bækur,
og máske líka nokkuð stóran fata-
kassa, þessir kassar voru sem belur
fer vátrygðir, svo jeg fæ einhverjar
skaðabætur, þó víst ekki neinu sem
nemur. Ekkert af farangrinum er
komið, svo við vitum ekki með vissu
hvernig farið hefir. Guð ræður og
stjórnar öllu til liins besta. Hann
veit hvað mjer og okkur öllum er
fyrir bestu.
Drottinn blessi ykkur, kæru vinir,
bræður og systur í Jesú; biðjið mjer
einnig blessunar hans, þess er svo
mikil þörf hjer, hjer hvílir blessun
Drottins yfir svo fáum. »Þeir eru
allir afveRaleiddir«, hjer er ok synd-
arinnar og bölvun svo bersýnilegt,
og sjúkdómarnir, neyðin, dauðinn og
sorgin, sem syndin hefir í för með
sjer. Biðjið um náð Guðs yfir deyj-
andi miljónir þessa lands, yfir heiðnu
þjóðina, þjóðina, sem er án orðs Guðs
og veit því ekki að syndin er synd,
og þekkir ekki hann, sein einn getur
burtnumið syndina.
Vinir mínir! Jeg kveð ykkur með
heituslu ósk um blessun Guðs yfir
lif ykkar og starf, að það alt megi
vera helgað honum.
Ykkar í Kristi Jesú.
Ólafnr Óla/sson.
Áritun: The Norwegian Lutheran Mis-
sion Laohokow, Hupeli, Chína.
r, -------- -........... ^
Hvaðanæfa.
i ■■ ... ..■ =jj
Heima.
Bjarma hafa borgað 13—15 árg. S. S.
Ólafsvík Ön. Dæli, Á. J. Hamri, sr. H. G.
S. ki ók, 14—15 árg. sr. St. G. Barði, ,G. G.
Vaðstakksheiði, sr. E. A. Hesti, R. J. Kálf-
árdal, T. S. Geldingahotti, S. J. Elliða, G.
E. Hyrningsstöðum 5 eint. 15—16 árg. Sr.
P. J. Svalbarði, H. Th. Róbert Danietsson
Blaine. 15. árg. Sr. J. J. Staðastað 2 eint.
A. G. St. Avík St. S. Gerðubergi M. P.
Hrossholti, B. J. Ingunnarsstöðum, G. J.
Lundum, sr B. B. Laufási 2 eint. K. J.
Fremsta Felli, P. S. Bjarmalandi I. B.
Tröðum. 16. árg. Sr. J . P. Rvik 10 eint.
M. P, .\rbæ 10 kr. N. N. 10 kr. Árm. og
P. S. Rvík. Ó. B. Árbakka 12—15 árg. Á.
K. Höfðahólnm 14 — 15 og G. Br. Lundar, M.
St. Blönduós 15—16. E. H. Blönduós, I. B.
Tröðum 15 árg. I. M. FÍögu 16 árg. og J.
G. Skarði 10 eint. M. B. Mountain 19 eint.
af 15 árg.
Afhent Bjarma lil Hallgrimskirkju.
Iiona i Sask 9 kr. 60 a. frú Guðlaug Pét-
ursd. Hainari. 10 kr.
Til trúboðsíjelags kvenna: N. Síðu
20 kr. N. Pistilsfirði 10 kr. í Jólakveðju-
sjóð sendi sr. Sigtr. Guðlaugsson, Núpi
120 kr. frá sóknarbörnum sinum.
Kœrar pakkir.
Síra Stefán Stephensen, siðast
prestur á Mosfelli í Grímsnesi, varð ni-
ræður 23. f. m. Er hann elzti stúdent
landsins. Prestsskap gegndi hann 42 ár
(1858—1900) í F*ljótshliðarþingum, Görð-
um á Akranesi, Ólafsvöllum og Mosfelli,