Bjarmi - 01.05.1922, Side 14
B J á R M í
94
Vorblíðan kær með sól og sunnan vindi.
Svellböndin leystu af dölum hlíð og tindi,
Blómgrösin láttu ljúf með nýjú vori
ljósfögui- l)lika í hverju geislaspori.
III.
Komandi sumar krýndu náðar gæðum
kærleikans Guð, af dýrum sólarhæðum,
sendu oss dögg og gullinn geisla ljóma
gróður vors lnnds að vökva og ilja blóma.
Dag livern af lands og sjávar söltu djúpi
sólblíðust klærleiks hjörg þín til vor drjúpi.
Blessaðu alla athöfn íslands barna
elskunnar blíða sól og kærleiks-stjarna.
Borgir vors lands og bygð um allar sveitir
blessi þín náð, sem öll oss gæði veilir.
Barnanna þinna græddu sviða sárin
sólblíðan eilif mæðu þerra tárin.
Mannkærleiks-blómin Guðs með geisla
[ljósum
grói i hjörtum skíni á þeirra rósum:
dygð, samúð. — Ljúft, það ljós ú verði
[standi
ljós sem er trú og von í kærleiks bandi.
Droltinn, sem sælan sumar krýnir blóma,
söngfuglinn lætur kvaka gleði óma.
Gefðu oss dýra dygða skrúðan bjarla.
Dýrð, heiður, lof þjer syngja mál og lijarla.
17//;.
Hvaðanæfa.
Heima.
»Húsvitj anir eru að mestu lagðar
niður«, segir í aðkominni grein í Morg-
unblaðinu 26. mars. Pað er ótrúlegt að
það sje satt, en svo að hægt sje að ganga
úr skugga um það, leyfum vjer oss að
mælast til að allir sóknarnefndar for-
menn sendi Bjarma skriflegt svar við
þessari spurningu:
Er ekki húsvitjað árlega í sókn yðar,
— og sje það ekki, hve nær var þá síðast
húsvitjað? Prestarnir, sem allir fá þetta
blað, geta sýnt viðkomandi formanni
spurninguna, og ætti ekki að vera á móti
skapi að hið sanna kæmi í Ijós. Engin
nöfn verða nefnd, nema þar sem þess er
beinlínis óskað, að eins greint frá hvað
mörg já og nei koma úr hverju prófasts-
dæmi, — og hvað margir vanrækja að
svara. — eða stendur á sama þótt slík
vanræksla sje borin á prestastjettina.
Eftir að þetta var sett, flutti Morgunbl.
grein frá síra Ófeigi í Fellsmúla, þar sem
hann telur þessa ásökun ekki cign heima
í Rángárvalla- og Árnessýslu.
Frá prestum. Síra Sigurður Stefáns-
son hefir sagt af sjer prestsstörfum frá
næstu fardögum að tclja. Hann hefir verið
prestur í Ögurþingum siðan 1881 og aldrei
sótt þaðnn nema um dómkirkjupresls-
embættið í Reykjavík, sem hann afsalaði
sjer strax aítur, þótt hann væri kosinn.
Lesendum Bjarma er svo vel kunnugt um
hvar liann stendur í trúmálum, að því
þarf ckki að lýsa; og ckki þætli oss neitt
ólíklegt að hann skrifaði þó öllu meira
um þau mál lijer eftir en hingað til, er
hann nú fær betra næði lil þess. —
Síra Bjarni Pálsson prófastur í Stein-
nesi heíir legið allþungt haldinn síðan
fyrir jól í vetur, var hann talinn á bata-
vegi er síðast frjettist, en þó ekki líkur til
að liann geli gengt embætti sínn um sinn.
Ráðgjört er að Porsteinn Gíslason, guð-
fræðiskandidat, verði aðsíoðarprcstur
hjá honum.
Síra Lúðvig Iínúdsen fótbrolnaði í
vetur, var því allur miðhluti Húnavatns-
sýslu um hríð sama sem prestslaus, en
nú er sr. L. Kn. nærri orðinn heill altur.
Síra Árni Pórarinsson, Stóra-IIrauni,
slasaðist fyrir skömmu; liestur fældist
með hann og Ijekk sr. Árni þá rnjög
slæma byltu, rifbrotnaði að sögn og
meiddist innvortis, liann kvað þó vera
á batavegi.
Sauðlauksdalur er vciltur sr. Porsteini
Kristjánssyni á Breiðabólsstað, Pykkvnbær
og Ásar guðfræðiskandidat Birni O.
Bjarnarsyni, Mosfell í Grímsnesi guð-
fræðiskandidal Ingimar Jónssyni og sr.
Kjartan Kjartanssyni, Staðarstaður. Sr.
Jón. Jóliannesson sækir um Breiðabóls-
stað á Skógarströnd. — Um fríkirkju-
prestsembættið sækja sr. Eiríkur Alberts-
son Hesti, og kand. Árni Sigurðsson, Rvík.
Trúmálafundur var haldin á Sauðár-
krók í vetur um það leyti sem Skagílrð-
ingar hjeldu sýslufund sinn. Skilríkir
menn hafa skýrt Bjarma frá honum: Sira
Tryggvi Kvaran var málshefjandi, hafði