Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.12.1922, Page 6

Bjarmi - 01.12.1922, Page 6
198 BJARMI nánara afstöðu Sundars við trúar- bragðafélagið sem slíkt og við hina ytri röksemd þess. Vér fáum skilið að hann veitir kristnum einstaklingi ótakmarkað rétt gagnvart kirkjunni. það eru eigi til í kirkjunni nógir menn með djúpustu andareynslu til að gefa kenning hennar endanlega röksemd. Þess vegna sný eg mér beint til guðs. Hvað mig snertir, þá met eg meira vitrun fengna í frásér- numning, heldur en kirkjulega erfi- kenning. Hann er þannig næsta hlut- laus gagnvart trúbrögðunum sem stofnun. »John Vestley og Booth hershöfðingi fylgdu vegleiðslu guðs í mótstöðu við kirkjuna, og reynslan sýndi að þeir höfðu á réttu að standa. Samt eru eigi allir menn dulspekingar og því er röksemd kirkjunnar nauð- synleg fyrir almenning«. Sundar er einn þeirra dulspekinga er treystir innra ljósinu, þótt auðmýkt hans og trú á opinberun Jesú Krists haldi honum frá að verða hrokafullur draumóramaður. Trú Sundars á beina frammígripn- ing guðs er einnig biblíuleg. Bók Canons Streeters hefir merkilega hluti um það að segja, en jeg þarf eigi að taka það upp. En það er ekk, sam- kvæmt anda Sundars, að dáðzt hefir verið að honum sem kraftaverka- manni. Það eru einnig neikvæðar hliðar i hinni guðspjallslegu trú Sundars. Hið kristilega mót boðskapar hans sýnir líka í sumum atriðum ákveðið gagnstæði við indverska skoðunar- háttu. Þetta kemur sérstaklega fram, að því er snertir trúna á sálnareikið, þessa martröð Indlands um þúsundir ára. Frelsun sú, sem indverskar sálir hafa leitast eftir, merkir umfram alt frelsun frá þvf, eftir dauðann, að verða að snúa aftur til þessa jarð- neska lífs. Þessari sömu sálnareikstrú er heilsað af guðspekinni sem gleði- boðskap, er, að hyggju hennar, ætti að samtengjast kristindóminum. Eftir því sem jeg veit bezt, var það Ram Mohun Ray, stofnandi Brahma Sam- aja safnaðarins, sem fyrstur manna, af trúarleiðtogum Indlands, afneitaði fastlega sálnareikstrúnni. En hann var fjargyðingi (deist). Sundar er dulspekingur. í einni frásérnumning- unni var honum sagt það, að lífið hér i heimi, væri beint eina tæki- færið, sem honum gæfist lil að hjálpa öðrum í veröldinni. Vér munum aldrei snúa aftur til þessa lífs. Sam- leiksleitandi einn fann, rifrildi af Jóhs guðspjalli og las þar um »eilíft líf«. Samkvæmt hindúatrú er það satt, að vér eigum ekki að deyja, heldur lifa áfram í sálnareiki, snú- andi aftur til þessa heims. En »eilíft líf« er það ekki. Eilift líf er neitun sálnareiksins. Það er einnig eftirtektavert, að Sundar fyrirdæmir vægðarlaust stétla- skiftinguna á Suður-Indlandi, þrátl fyrir samkend sína við siði og hætti Indlands, einmitt þar sem þeir eru ólíkir lífsvenjum Vesturlanda. Vér höfum séð hversu Sundar snýst fastlega á móti meinlætalifnaði Hindúa. Yoga sýnir hvernig menn við skipulega iðkun fá öðlast hags- muni og fengið yfirnáttúrlegar gáfur. Sjálfskvalning er þar heilög athöfn. En Sundar hefir valið förumunkslífið til þess að þjóna sambræðrum sín- um; eigi til að kvelja sjálfan sig, né til að vinna hagsmuni fyrir sig. Hversu mikils sem Sundar metur frásérnumninguna, sem hann eigi vill missa, fyrir alt í heimi þá verður þó þessi andlega hrifning eigi heim- færð til skipulegrar eftirleitunar, held- ur verður að koma sem hrein gjöf. Þetta er samkvæmt þeirri kristilegu

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.