Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1922, Blaðsíða 10

Bjarmi - 01.12.1922, Blaðsíða 10
202 B J A R M I sem átti svo erfitt með að sleppa af drengnum sínum. Og pabbi, sem gat svo sjaldan verið heima, sat hjá hon- um hverja stund, sem hann átti af- lögum. Hann var orðinn svo grá- hærður upp á síðkastið, en röddin hans, hún var svo undur þýð, og aug- un svo mild og — döpur, þó hann reyndi að bera sig vel og láta á engu bera. III. Dagarnir styttust. Það var komið fra n í desember; blessuð jólin voru í vændum. En nú var ekki talað um jól heima hjá drengnum. Þau áttu hann einan, og nú var hann alt of veikur fanst þeim, tii þess að það kæmi til mála, að halda upp á jólin, eins og vant var. En drengurinn beið þess, að þau færu að tala um jólin. Og þegar hann lá í rökkrinu með aftur augun, sá hann greinilega fyrir sjer björtu jóla- trjen frá barnæskuárum sínum. Hann mundi svo vel eftir þeim öllum, þar sem þau höfðu staðið í dagstofunni, sem hann hafði ekki komið inn í meira en */2 ár. En best mundi hann eftir jóiatrjenu eftir að hún amma dó. Það var stærst af trjánum öll- um. Og þar — inni í glitrandi ljós- geislunum, beið Jesús eftir honum. Einn dag, rjett fyrir jólin, þá var hann svo veikur, að hann gat ekki talað nema í hálfum hljóðum, — hvíslaði hann að mömmu sinni: »Mamma, þið talið aldrei um jólin«. Því gat mamma hans varla svarað, því að gráturinn tók fyrir rödd hennar. En hann hjelt áfram með hvíldum: »Mamma, nú fer jeg bráðum heim til Jesú, en jeg vil helst ekki deyja fyr en jólin eru komin«, og svo bætti hann við: »Má jólatrjeð ekki vera núna inni hjá mjer? Mig lang- ar svo að sjá það — einu sinni enn! Og það verða að vera mðrg ljós á því — eintóm ljós«. Á aðfangadaginn stóð stórl, fallegt trje inni í stofunni hjá drengnum, með mörgum kertaljósum, en engu skrauti öðru. Læknirinn var nýfarinn. »Nú er skamt eftir«, sagði haun við pabba og mömmu, þegar hann kvaddi þau. Drengurinn lá með lokuð augun. Við og við leit hann á Irjeð. Og þá brá fyrir brosi á andliti hans, sem var ekki orðið stærra en þegar hanu var litið barn. Pabbi og mamma viku ekki frá rúminu hans. Andardrátturinn varð æ erfiðari. Pað var örskamt eftir. Það skygði í herberginu og kirkju- klukkunum var hringt. Pá lauk drengurinn upp augunum og horfði fyrst á pabba og mömmu, og svo á trjeð. Pau sáu, að nú vildi hann láta kveikja á trjenu sínu. Hægl og gæti- lega fór pabbi að kveikja á mörgu, hvítu kertunum, og birtan ljómaði í litlu stofunni. En mamma sat hjá rúminu og lagði handlegginn á öxl- ina á drengnum sínum, og hjelt um aðra hönd hans. — Við Ijómann af jólaljósunum varð ásýnd hans svo undur björt, og bjarmi ljósanna end- urspeglaðist í augunum hans stóru og skæru. En þegar pabbi var búinn að kveikja á síðasla kertinu, og stóð við hliðina á mömmu, reis drengurinn alt í einu upp í rúminu og rjetti höndina brosandi að trjenu, um leið og hann hvíslaði ofurhægt: »Jesús!« Svo hneig hann í faðminn á mömmu sinni. Og ljósið frá jólatrjenu bar hlýjan ljóma á barnsandlitið hans. En í Ijósinu beið Jesús eflir honum — og bar hann heim til Guðs — heim í eilífu jólagleðina. G. L. þýddi.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.