Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1922, Síða 11

Bjarmi - 01.12.1922, Síða 11
BJARMI 203 Loforð Drottins bregðast ekki0. Pað eru 3—4 ár síðan. Eg var þá eini útlendingurinn í Namjangfu. Eg svaf alein í húsinu, allar dyr voru læstar. Eg vaknaði eina nótt um tvö leytið við það að það var tekið þétt í öxlina á mér. Eg reis samstundis upp og glaðvaknaði á einu vetfangi og spurði skefld: »Hver er þar?« Hræðslan breyttist skjótt í óvið- jafnanlega gleði, þegar eg heyrði un- aðsfagra rödd, sem sagði við mig: »Drottinn er sem eldveggurí kringum fólk sitt.« (Sak. 2. 9 ) Og mér voru sýnd sannindi orðanna. Eg sá glöggt eldvegg, sem umkringdi mig á alla vegu, hærri en nokkur borgarmúr, eldtungurnar teygðust upp fyrir múr- inn svo að ógrynni þau af örfum, sem skotið var inn til mín utan að, urðu að engu í eldinum. Sjón þessi var svo stórfengleg að í gleði minni átti eg engin orð önn- ur en þessi: »þökk Droltinn, þökk Drottinn minn!« En tárin hrundu niður kinnar mínar. Um siðir spurði eg: »Drottinn, er mér hætta búin?« En eg fekk ekkert svar. Svo sofnaði eg. Dagiuu eftir kom hraðboði til mín frá næstu trúboðsstöðvum. Litli dreng- urinn trúboðans hafði orðið skyndi- lega veikur, og foreldrar haus báðu mig um að koma og biðja Guð með þeim um að lækna drengiun. Eg Iagði af stað. Vegirnir voru mjög vondir, Það var að áliðnu liausti og orðin dimm kvöld. Eg átti rúma 12 km. eftir, þegar myrkrið slcall á. 1) Brjcf þetta er trá norskum kvenn-trúboða, sem liefir starfað að trúboði í Kina um mörg ár. Olafur Olafsson, trúboði sendi Bjarma brjefið, i von um að það yrði mörgutn kristniboðsvinum hér lieima, til sannrar gleöi að sjú þess vott, liversu dásamlega Drottiun lejðir \ gegnuín þaíttur og þrautir, Var eg þá stödd í smáþorpi einu. Maður nokkur kom aö máli við mig. »Eg þekki þig,« sagði hann, »þú ert ungfrú Meng frá Namjang þú mátt ekki fara lengra. Það er fult af ræn- ingjum á leiðinni. Þeir eru búnir að drepa yfir 30 menn síðastliðinn mán- uð, einmitt á kvöldin i myrkrinu«. »Drottinn er sem eldveggur í kring- um fólk sitt.« hljómaði i hjarta mínu »Eigum við að halda lengra?« spurði ökumaðurinn. »Já,« sagði eg og við lögðum á stað, án allra mótmæla frá hans hálfu, mér til talsverðar undrunar. Við héldum áfram í 4 klukkustundir í myrkri og for, ökumaðurinn kveikti við og við á eldspítu þegar við sjáift lá að hann velti vagninum út af veginum. En í hjarta mínu bjó sigri hrósandi gleði, því eg vissi að þótt þúsund ræningjar kæmu, var eld- veggurinn á milli mfn og þeirra. Þeir geta ekki snert mig. Drottinn er eldveggur kring um alla vini sína. Og jeg kemst leiðar minnar öldungis tálmunarlaust. En jeg hugsaði á þá leið: Get jrg orðið hrædd við ræn- ingja úr þessu? Guð hefir á dásam- legan hátt sýnt mjer hvernig hann varðveitir börn sín. Þá var það í fyrra. Við komum frá Haistvan, þar sem við höfðum dvalið í sumarleyfi okkar, norsku trúboðarnir. Við vorum í 4 smábát- um. 6 útlendingar og nokkuð fleiri Kínverjar. Þegar við vorum komin yfir um hið stóra Han-íljót og vorum að leggja á stað upp eítir Bet-fljótinu, mættum við hermönnum í bát. Þeir kölluðu til okkar og sögðu, að við ættum ekki að fara lengra fyr en þeir kæmu aftur, þeir væru að sækja liðsafla. Það væri fjöldi af ræningj- um meðfram fljótinu,

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.