Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.12.1922, Blaðsíða 16

Bjarmi - 01.12.1922, Blaðsíða 16
208 B;ja þeirra. — A 25 ára stúdentsafmælinu í vor mintumst vjer þriggja dáinna fjelaga, og nú er sá fjóröi farinn. — En hver verður næstur? Söngmálablað ætla þeir að gefa út organleikararnir Sigfús Einarsson og Friðrik Bjarnason, og söngkennari Bjarni Pjetursson. fað verður ársfjórðungsrit, og kemur 1. tbl. út fyrir jól. A það að llytja leiðbeiningar, fróðleik og frjettir um söngleg efni. Mun kirkjusöngurinn, og önnur áhugamál organleikara, verða eitt aðal-umræðuefnið. Blaðið verður í líku broti eins og Skólablaðið, 6 bls. með meginmálsletri og 2 með smálctri, en utan um kápa með auglýsingura. Árgangurinn kostar 3 kr., sem borgast um leið og blaðið er panlað. — »Bjarmi« leyfir sjer að mæla með því blaði við alla söngkæra lesendur sína. Bibliu-almanakið fyrir 1922 fæst nú á 50 aura hjá útg. »Bjarma«. — Pótt árið sje á förum, geta menn haft ritn- ingarorðin á veggnum, og aðgætt þau hvern vikudag. — Næsta ár verður lítið um veggalmanök, minsta kosti verða þessi ekki gefin út fyr en útgáfukostnaður rainkar að mun. Le i ð r j e tti ng. Orðin, sem höfð eru eftir próf. Haraldi Nielssyni í síðasta tbl. munu ekki vera rjett. Jeg tók svo eftir á fundinum, að hann segðist skammast sín eða blygðast sín fyrir að vera lúterskur, og minnir það cnn. En það hlýtur að vera misminni, því að H. N. hefir sýnt mjer vottorð sjö mætra fundarmanna, er lýsa yfir því, að þess minnist þeir aldrei, að hafa heyrt próf. Har. Níelsson segja, að hann »skammaðist sín fyrir að vera lúterskur«, en votta með honum, að hann hafi komist svo að orði á safn.fundinum: »Pað, sem jeg hefi aðallega á móti kver- kenslunni, er það, að kverin halda fram trúarlærdómakeríi hins lútsrska rjett- trúnaðar, og skyggja með því á kenning Krists. Besti kostur nýju guðfræðinnar er sá, að hún vill setja kenning Krists ofar öllu öðru. Mig hefir oft furðað á því, að menn skuli svara, þegar þeir eru spurðir hverrar irúar þeir sjeu, aó þeir sjeu lúterskir, en elcki kristnir. Pegar jeg hefi verið að hugsa um þetta, liggur við RMI að jeg blygðist mín fyrir, að menn skuli heldur vilja kenna sig við Lúter en Krist. Jeg vil umfram alt vera kristinn«.-------- Undir eins og jeg frjetti, að H. N. teldi farið rangt með orð sín, tjáði jeg honum brjeflega, að jeg treysti minni hans í þessu atriði hetur en minu, og bauð honum að leiðrjetta ummælin, eins og hjer með er gert. Leyfi jeg mjer að biðja H. N. að afsaka þetta misminni mitt. Nóg er samt, sem á milli ber; meðal annars ofangreint hrós bans um nýju guðfræðina. Lesend- urnir talca sjálfsagt eftir því, að þessi ræðupartur hans staðfestir á hinn bóg- inn aðalatriðið i umræddri Bjarma«- grein, að mótstaðan gegn »kverunum« væri oft aðailega af trúarlegum ástæðum. S. A. Gíslason. Erlendis. Sadhu Sundar Singh kom til Norður-Indlands aftur í september, og starfar þar til vorsins, en fer þá til Tíbet, eins og fyrri. »Siðferðið hjer í bæ«, var uin- talsefni á fjölmennum fundum í Kaup- mannahöfn 4 daga um miðjan þenna mán. Einn daginn voru erindi flutt í 11 al- mennum fundahúsum borgarinnar, og talaði þá Ostenfeldt Sjálandsbiskup og ungfrú Karen Andersen læknir, í aðal- fundarsal jafnaðarmanna. Siðasta daginn, föstudaginn 17. f. m., voru sjerstakar guðsþjónustur í fiestum kirkjum K.hafnar. Forgöngu þessara funda höfðu ýms kristileg fjelög borgarinnar. Fyrstu jólabækurnar til Bjarma þ. á. komu frá Evangeliske Festerlandsstiftels- en i Stokkholm: Julgúvan, stórt jólahlað íneð myndum og sögum, 16. ár, verð kr. 2,25, og Julkárven, barnarit með myndum, verð 60 au., allur frágangur er í bezta lagí og cfnið gott. Titilblað og efnisyfirlit kemur með jan- úarblaðinu. Útgefandi Sigurbjörn Á. Gíslnson, Prentsmiðjan (lutenborg.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.