Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.03.1923, Qupperneq 4

Bjarmi - 01.03.1923, Qupperneq 4
32 BJARMI Þannig ber þjer að lesa Guðs orð og sökkva sál þinni niður í það, til þess að þú sjáir hvað Guð hefir gert fyrir þig og hvað hann vill að þú gerir. Leitaðu ráða í Guðs orði um dagleg störf þín og fyrirætlanir, um syndir og freistingar sem á þig sækja, um gleði og sorgir, líf og dauða. Þá verður biblían þjer handbók á lífsleið þinni og Ieiðarvísir til eilífðar. Bibliurannsóknir og bibliuskýringar. Þær geta orðið oss að miklu liði til að gera innihald biblíunnar ljósara. En þær mega aldrei skyggja á biblí- una sjálfa. Það er betra að lesa eitt biblíurit tíu sinnum, en að lesa tíu (mismunandi) skýringar þess sama rits. Biblíurannsókn lýtur að því, að vjer fáum svo nákvæmar biblíuþýð- ingar og skýringar sem auðið er. Látum oss þykja vænt um það starf og biöjum Guð að stjórna því. En vjer verðum — hver og einn — að fara sjálfir til uppsprettunnar og drekka hið lifandi vatni. Látum ekki erfiðleika og efasemdir aftra oss frá lestri biblíunnar. Það er ýmislegt óljóst og torskilið í biblíunni. Þar eru dularfull leynd- armál um líf vort með Guði, sem vjer fáum ekki skilið, nema með fulltingi heilags anda. Látum hin Ijósi^ um- mæli hjálpa oss til að skilja liin ó- skýraii, því að hvarvetna eru ótví- ræð orð, sem benda oss á Guðs vilja. Það er mikið í biblíunni um sögu og hugsunarhátt, siði og venjur ýmsra þjóðflokka fornaldarinnar, sem oss er harla fjarstætt og erfitt að skilja. En biblían er ekki gefin oss til þess að vjer lærum af henni fornaldarsögu eða tileinkum oss heimsfræði gamalla þjóðflokka nje heldur siðvenjur þeirra í jarðneskum efnum. Guð gaf oss hana til þess að vjer skylduin læra af henni að þekkja lians vilja og verða hólpnir. Biblían er skrifuð af mönnum og fyrir menn. En Guðs andi leiðbeindi þeim er skráðu, og með þeirra vitn- isburði opinberaði hann oss það, sem vjer þurfum að vita oss til hjálpræðis — til að öðlast eilíft líf. í öllu þvi, sem opinberað er til hjálpræðis, er biblían nægilega ljós og auðskilin hverjum þeim, er vill leita Guðs. Hið mannlega og óljósa má ekki aftra oss frá að fara eftir þvi guðdómlega og ótvfræða. Og Guðs vilja sjáum vjer skýrt og greinilega hvarvetna í orði hans. Hann kallar oss frá synd og dauða til hjálpræðis og eilífs lífs. Lestu því kostgæfilega Heilaga ritn- ingu, »sem getur veitt þjer speki til sáluhjálpar fyrir trúna á Jesúm Krist« (2. Tim. 3, 15). Á. Jóh. þýddi. ......- .................. Heimilið. Deilil þessa annast Guðrún Lárusdóttlr. :--- ■ -.-.4 Brúðargjöfin. Saga eftir Guðrúnu Lárusdótlur. (Frh.) Dagur var að kveldi kominn. Raf- ljósin vörpuðu birtu yfir mannfjöld- ann á forugum götunum. Flestir virt- ust eiga annríkt, blindös var í búð- unum í miðbænum og fyrir utan búð- argluggana stóðu hópar af börnum og fullorðnum, sem virtu vandlega fyrir sjer varninginn, sem skínandi rafljósin gerðu enn girnilegri útlits. Stúlkurnar í stuttu pilsunum stikl- uðu fimlega á háum hælum yfir for- arpollana á götunum, og litu margar hverjar brosandi augum til ungu »herranna« sem og fóru um farinn

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.