Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.03.1923, Page 7

Bjarmi - 01.03.1923, Page 7
BJARMI 35 »Góð kona, inainma, sem gaf mjer peninga, en jeg skal segja þjer það bráðum«. »Gott kvöld!« sagöi Helga um leið og hún gekk inn í herbergiskytruna. »Fyrirgefið að jeg veð svona inn til yðar, en jeg hitti drenginn yðar og hann leyföi mjer að heimsækja yður«. »f*að er verst«, sagði konan vand- ræðalega, »hvað hjer er óþrifalegt, húsnæðið er ekki sem best, eins og þjer sjáið, og annað eftir þvi. Gjörið þjer svo vel og setjast«. Hún rjetti Helgu eina stólinn, sem var í her- berginu. »Jeg hefi ekkert getað lagað i kringum mig í dag, barnið hefir alt af verið í höndunum á mjer, hann er' ný sofnaður, — jeg er dauð- hrædd um að hann sje lasinn, hann hefir verið svo óvær«. »Auminginn!« sagði Helga og gekk að rúminu þar sem barnið lá. »Hann er líklega lasinn, hann dregur and- ann svo ótt«. Nú tók Páll litli til máls og fór að segja mömmu sinni frá skemdu- blöðunum og hjálpsemi Helgu. »Þakka yður innilega fyrir okkur«, sagði konan og rjetti Helgu hönd sína. »Þjer eigið ötulan son«, sagði Helga, og leit brosandi til Páls litla, sem farinn var að gæða sjer á vænni brauðsneið, »Hann vill meira en hann getur, auminginn«, svaraði móðir hans. »Það hjeldu honum enginn bönd í dag, hann vildi selja blöð, eins og hinir drengirnir, sagði hann. Þá hefði ekki farið vel fyrir þjer, Palli minn, ef þú hefðir ekki hitt þessa góðu konu. Svona er það, oft hefi jeg rekið mig á það, að þegar neyðin er stærst, er hjálpin næst. Jeg get ekki stilt mig um að segja yður það, þó jeg þekki yður ekki, að hefðuð þjer ekki hjálpað drengnum svona vel, þá hefðum víð bæði farið matarlaus í rúmið í kvöld«. Barnið fór að kjökra og móðir þess tók það upp og lagði að brjóstí sjer. »Helga tók peningana, sem hún átti eftir í buddunni og rjelti konunni. »Þjer gerið mjer greiða ef þjer viljið þiggja þessar fáu krónur«, sagði hún og vottaði fyrir tárum i augum hennar. »Guð launi yður«, sagði konan hægt. »Gjafir sumra manna hafa stundum komið við hjartað í mjer, — en gjöf frá yður særir mig ekki, -- þvert á móti — jeg finn að hún er gefin af kærleika«. Helga leit undan. Hún vildi ekki láta ókunna konu sjá tárin sín. »Fátæktin er hörð í horn að taka«, hjelt konan áfram. »En verri er þó ófriður og deilur á heimilunum. Já, þuð er margt bölið, sein drykkju- mannskonan berst við. þjer sjáið það sjálfsagt að við hjerna búum við það böl. Það er líklega ljótt af mjer að kvarta við ókunnugan, og jeg kvarta ekki mjög oft, sjálfsagt mætti segja að jeg gæti kent sjálfri mjer um þetta að miklu leyti, því af frjálsum vilja gekk jeg manni mínum á hönd, þó jeg vissi að hann væri vínhneigður, — en vonin, skal jeg segja yður, vonin um að hann hætti, og að vín- bannið bjargaði honum, þó mjer tækist ekki að fá liann til að hætta að drekka, lifði furðanlega lengi, — og um tíma var svo að sjá að injer yrði að von minni. En þegar freisl- ararnir leggja snörur sinar að fótuin þeirra, sem breyskir eru, og gera all, sem í þeirra valdi slendur til þess að vekja fornar fýsnir, þá er sízt furða þó illa fari — sárgrætilegt er það, að sakleysingjarnir gjalda, — synd föðursins kemur niður á vesl- jngs börnunum«. Tár hennar hrundu ofan á höfuð

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.