Bjarmi - 01.03.1923, Page 9
B J A R M 1
37
wÞað kemur ekki til mála að Guð
ætli mjer einum þenna góða bústað,«
hugsaði Björk. »Jeg býð bingað ung-
um mönnum nokkra daga hverjum
hóp (15 í einu) og sje hvort Guð
blessar oss ekki í andlegu og efna-
legu tilliti« — Um þær mundir var
vistaskortur í Svíþjóð, svo rosknum
vinum hans leist ekki vel á að efna-
laus maður hefði svo stór heimboð.
Auðvitað fór alt vel. Það kom
ágæt veiði í vatn sem fylgdi eigninni,
þótt engin væri áður nje síðar og
matargjafir komu frá vinum fjær og
nær, oft á síðustu stundu, t. d. var
búið að láta einu sinni morgunverð
viðbitslausan á borðið þegar maður
kom með væna smjörsköku. —
Dvölin varð mörgum gesti »heilög
stund,« og nú hefir sra Björk þessi
síðustu 5 sumur haft um 700 gesti
f sumarbústað sínum. Allflestir voru
gestirnir stúdentar, oftast Svíar en
stundum Danir, Norðmenn og Þjóð-
verjar, 2 íslenskir guðfræðiskandídatar
voru gestir hans liðið sumar. —
Enginn borgaði neitt, en allir fóru
auðugri að góðum minningum frá
ræðum hans og sálgæslu. »Viðræður
og frásögurnar á kvöldin eru ógleym-
anlegar og þó var best síðasta stundin
er vjer krupum við kvöldmáltiðina,«
segir danskur stúdenl.
Auðug kona bauðst til að gefa fje
til nýrrar smákirkju við sumarheim-
ilið. Kirkjan var reist, en konan dó
áður en hún afhenti fjeð. Þá vantaði
4000 kr. til að greiða kirkjuskuldina.
sra Björk fór, sem oftar, með það
vandamál í bænaherbergi sitt. Þá kom
brjef frá fjesýslumanni. »Viöskifti mín
ganga hörmulega«, skrifaði hann,
»jeg hefi mist stórfje, og því urðum
við hjónin sammála um að nota ve ,
það sem eftir er, áður en það kann
að fara altsaman, og hjer er 3000
kr. ávfsun til starfs yðar.«
Þetta var á föstudegi, daginn eftir
fór Björk til Stokkhólms að prjedika,
eftir messu kom kona til hans, móðir
eins piltsins, sem hafði snúið sjer til
Krists í Bjernum, og fjekk prestinum
1000 kr. að gjöf. Þar með var kirkj-
an skuldlaus.
í sumar sem leið var þriðja húsið
reist af vinagjöfum, svo að nú verð-
ur gestkvæmt þar framvegis.
Sra Björk er bænar-maður. »Jeg
geng að bæn minni eins og annari
iðju,« segir hann. »Jeg undirbý mig,
og veit hvað jeg ætla að biðja Guð
um«. — Eitt kvöldið sagði hann
gestuin sínum þessa sögu, um það
hvernig sjer hefði orðið fyllilega ljóst
að þaö sje alveg óhætt að reiða sig
á orð Krists um bænheyrslu í Matt. 18
Hann var einn á gangi seinni hluta
dags, og mætti þá gömlum manni,
er bað hann koma með sjer og biðja
fyrir veikum syni sínum. Þegar þeir
komu inn til sjúklingsins, tók faðir
hans biblíuna, las orðin i Matt. 18. .
og bætti svo við: »Þetta sagðir þú
sjálfur Drottinn, og jeg reiði mig á
það«. Sjera Björk var um og ó, en
fjell þó á knje til bæna með gamla
manninum. Daginn eftir var pilturinn
frískur, og tók til vinnu á 3. degi,
hafði þó verið frá vinnu árum sam-
an, og er alheill síðan. — Jeg hefi
sjeð fleiri svipaðar bænheyrslur, segir
Björk.
Kunnugir segja, að sra Björk sje
alveg framúrskarandi laginn við sál-
gæslustörf, »af því að hjarfa hans sje
gagntekið af kærleika Krists.« Marg-
oft koma leitandi menn til hans allar
stundir sólarhringsins, og fá jafngóð-
ar viðtökur hvort það er nótt eða
dagur. — Aðalstarf sitt telur hann
»gestaboðin« í Bjernum og ferðaprje-
dikanir, og he'ir því alveg nýverið
sagt af sjer embættinu í Stokkholm og
9000 kr. launum er því fylgdu.