Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.03.1923, Qupperneq 14

Bjarmi - 01.03.1923, Qupperneq 14
42 B J ARMI Öðrum mann', er að vísu kennir ýmis- legt, sem jeg er honum ósammála um, birtist dýrð Guðs í yndislegri sýn. Pað var Horace Bushnell; hann segir svo, er hann hafði íhugað dýrðina: »Aldrei leit jeg Guð fyrri svo greinilega, aldrei birt- ist hann mjer eins dásamlega . . . Jeg hefði ekki getað borið hann saman við neitt, þótt jeg hefði reynt að lyfta hon- um i æðra veldi en pað var. Hann var það alt; alstaðar, alla vega óumræðileg kærleiksdýrð . . . Pað var eins og hann kæmi sjálfur alveg í nálægð, og gjörði mjer ómögulegt annað en nema staðar og líta hjálpræði hans. Þar var engin hugaræsing, engin ókyrð, en ósegjanleg sælufull kyrð«. Ritningin er »nytsöm« tit að veita oss slíka reynslu. Hún birtir, segir frá, ráð- leggur, leiðbeinir, uns peir, sem hlýöa henni, eru umvafðir andlegri dýrð, sem yfirgnæfir bendingar sjálfrar biblíunnar. En ritningin er einnig »nytsöm til fræðslu« um þá dýrð, sem mannlífið getur náð. í þeirri bók er greinileg leið- sögn um, hvað langt vjer komumst. Par eru ráð og lýsing göfgi og fullkomnunar. Par má læra, hvað sjerhver vor á meðal gæti orðið, samkvæmt hugsun Guðs um oss. Jeg get gefið þjer mjög hagkvæmt ráð í því efni. Tak Nýja testamenti þitt. Gættu að hvað það segir um, hvað þú getur orðið. Farðu hægt yfir, tak eitt og eitt atriði í einu. Set þau svo saman, eins og þú værir að búa til mynd. Lát augun í myndina, augu, sem sjá dýrð Guðs á Gol- gata; lát á hana varir, varir, sem Guð getur gefið þjer — þær formæla ekki; — lát á hana eyru, eyru, sem heyra orð frá hæðum. Lát hjartaö vera með, nýtt hjarta, hreínsað af synd, gagntekið kær- leika. Lát hendur á hana, hendur, sem ná til bágstaddra, og fætur, fúsa á vegi friðar og hlýðni. — Pú skilur hvað jeg á við. — Bættu við myndina, uns þú get- ur sagt: »Pannig hefir Guð hugsað sjer að jeg skyldi vera«. — En hafi hann hugs- að sjer það, skyldi hann þá ekki hata veitt þjer tækifæri til að verða það i raun og veru, en ekki að eins dreyma um það? Ritningin ílytur þjer, fræðir þig um þau tækifæri. Par er hjálpræöið í Kristi, þar er fyrirmyndin óviðjafnanlega, og þar er sýnt fleira en synd þin, tign þin cr þar einnig. Tak þjer gott næði til að horfa á mynd- ina, mynd sjálfs þin i huga Guðs, og þá skaltu taka vel eftir tvennu, sem greini- lega kemur i ljós. Myndin er bæði gjörfu- leg og fögur, hún er há og fyrirferðar- mikii. Hún er há, nær að fótskör Drott- ins, og þyggur vaxtarall sitt þaðan. Hún er svo fyrirferðarmikil, að hún nær til margra »nágranna«, þeir styðjast við hana, leita þar skjóls og verða fyrir kærleiks- áhrifum. — Ef þú gætir vel að þessu, fer hlýr straumur um þig. — Sá, sem lit- ið hefir sjálfan sig í huga Guðs, sjeð: »þannig ætlaöist Guð til að jeg yrði«, hann gleymir því ekki. — Ritningin er wnylsamleg til fræðslu«. Ennfremur er oss sagt, sð hún sje »nytsöm til umvöndunar«. Hún er nyt- söm, bæði til að birta oss lifið, eins og það ætti að vera og gæti verið — og eins og það er; þar eru bæði sýnd tækifæri mín og hvernig jeg nota þau. Reyndu það! Setjum svo, að þú læsir skáldsögu, ágæta sögu; hún er þjer ánægja, en hún sýnir ekki hvað hjá þier býr. Paðan fara ekki margir ljósgeislar niður í djúp sálar þinnar, til að sýna þjer hulin óhreinindi. Eða setjum svo að þú farir í leikhús, þú skemtir þjer ef til vill, en þú auð- mýkist ekki við það. Leikhúsin sýna þjer lífið eins og það er, en ekki eins og það ætti að vera. Pau sýna veruleika, en ekki hugsjónir. Jeg man eftir kunnum, enskum leikara, sem fullyrti að æðsta hlutverk leikhúsa væri, að sýna lífið eins og það væri. Astæða hans var þessi: »Sjeu auðvirðing og illar hvatir sýndar á leiksviði, fá áhorfendurnir viðbjóð á þeim«. Pað er hraparlegur misskilningur, eins og reynslan sýnir margoft. Vjer sjáum ekki betur óhreinindi sjálfra vor, þótt vjer venjumst við annara syndir, — það er nú eitthvað annað. — »Ekki þurfum við að þvo okkur, fyrst hinir krakkarnir eru svona óhrein«, hugsa börnin, — og margur fullorðinn. Skarn »sómir sjer vel« hjá sorphaug, — en á hvitu blaði er það bersýnileg lýti. Vinkona mín, frú H. P. Hughes, sagði mjer einu sinni frá góðu dæmi um þetta. Hún hjelt kvenna-samkomur í fátækra- hverfi í Lundúnum. Henni þótli leiðin- legt hvað þær voru óhreinar konurnar, en vildi ekki styggja þær með því að finna að þvi. Pá tók hún það ráð, að

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.