Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 15.01.1928, Qupperneq 2

Bjarmi - 15.01.1928, Qupperneq 2
18 BJAR MI Fyrst og fremst er verkefnið svo yfirgripsmikið, ágreiningsatriðin svo mörg, að ekki er neitt viðlit, að tala hjer greinilega um þau öll. í öðru lagi eru skoðanir svo marg- breyttar innan sjálfrar nýguðfræðinnar, og enda með báðum slefnum, að erfitt eða ómögulegt er að taka fult tillit til allrar þeirrar margbreytni í stultu erindi. Pá er hætt við því, að einhverjum finnist, að verið sje að höggva eftir einstökum mönnum, ef nefnd eru ummæli nafngreindra nýguðfræðinga vorra, en hins vegar erfitt hjá því að komast alveg, ef fólki á að skiljast að ekki sje verið að berjast við skuggann sinn eða andmæla skoðun- um, sem enginn hefir. — En reyna má að nefna fremur erlend en inn- lend dæmi, til að komast hjá grun um ýfingar, enda er mjer ekki kunn- ugt um, að íslenskir nýguðfræðingar hafi flutt nokkrar frumlegar skoðanir eða skýringar í þessum málum, og aðalatriðin eru alstaðar þau sömu, sem um er deilt. Loks er alt af hætt við, að sá, sem tekið hefir lengi þátt í trúmáladeilum, kunni að lita einhliða á eitthvert ágreiningsatriði, en úr þvi verður þá væntanlega bætt af öðrum, sem betur sjá og víðar horfa. — Jeg sagði að skoðanir væru marg- breyttar innan vjebanda nýguðtræð- innar. Býst jeg ekki viö að neinn beri á móti því. Ber einkum mikið á þeirri marg- breytni gagnvart Kristi sjálfum. Sumir nýguðfræöingar telja hann öfgafullan draumóramann, aðrir góð- an mann og göfugan, bæta þó sum- ir við að hann hafi fengið sjerstaka »guðdómsfyllingu« við skírnina eða við upprisuna* 1). Sumir telja hann 1) Jeg get skotið þvi hjer inn, að jegget alls ekki fallist á þá biblíuskýringu, sem getin af heilögum anda, allflestir þeirra ætla þó að hann hafi verið sonur Jósefs — eða einhvers annars manns, en valmennið Jósef tekið móður hans að sjer. Sumir telja dauða Krists ekki þýðingarmeiri en dauða annara píslarvotta, aðrir telja hann blessunarríkan, þótt þeir vilji ekki kannast við »friðþæginguna« í neinni venjulegri kirkjulegri merkingu, þess orðs. Flestallir nýguðfræðingar trúa ekki frásögn guðspjallanna um að Jesús hafi risið upp líkamlega, fáir ætla þó að upprisusögurnar sjeu eintómur uppspuni, en mjög eru »skýringar« þeirra sundurleitar á því hvernig »of- sjónum« eða vitrunum lærisveinanna þar að lútandi hafl verið varið. — Rjett sem sýnishorn svæsinnar ný- guðfræði i því efni má nefna um- mæli Linderholms guðfræðisprófess- ors í Uppsölum í Sviþjóð. Hann komst svo að orði í opin- beru erindi fyrir fám árum : »Það er ekki meiri líkindi til að Jesús hafi kallað lærisveina sína sam- an eftir dauða sinn og boðið þeim að fara út á meðal allra þjóða og boða fagnaðarerindið, heldur en að Gústaf Adolf hafi eftir dauðann kvatt saman hershöfðingja sína og veitt þeim fyrirskipanirö1). fram hefir komiö í erindi prófessors Har- alds Níelssonar í vor sem leið og í grein prófessors Sig P. Sívertsens í Prestafje- lagsritinu þ. á. þar sem þeir tala um 4 skoöanir nýja testam. höf. á því hvenær Jesús haföi oröiö Guössonur. Vonast jeg til aö geta síöar tekiö það málefni til meðferðar í blaði mínu. 1) Fyrverandi trúfræöisprófessor sænsk- ur Ad. Kolmodin, gætinn maður oglærö- ur, getur um þessi orð í ritisínu: »Kyrk- ans ansvar för prastbildningen« bls. 7), og bætir svo við: y>Eftir pví œtti kristinn söfnuður og kristindómsboðunin um víða veröld að vera reist á lygi og svikum, og pað af fg/stu lœrisveinum Krists og posl- ulum hansal

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.