Bjarmi

Volume

Bjarmi - 15.01.1928, Page 6

Bjarmi - 15.01.1928, Page 6
22 B .1 A R M I Ef Jesús er Jósefsson, þá er það og víst, að Matteus toll- heimtumaður og Lúkas læknir, sem segja alt annað, hafa verið, hvor um sig, og báðir saman, nokkurn veginn jafnt, hjátrúarfullir, grunnhygnir og kærulitlir í meira lagi, og að minsta kosti mjög svo einfaldir og auðtrúa; og þá segir Lúkas ekki heldur satt, að hann hafi rannsakað frá rótum ait frásagnarefni sitt. Og enn lakara mætti hugsa og segja um báða þessa höfunda: það, að þeir hafi verið og sjeu æfinlega, vitandi eða óvilandi, mannskemm- endur af lakasta tægi. Með þvi að segja, að Jósef hafi ekki kannast við faðernið að þunga Maríu, og því ætlað að skilja við hana, gefa þeir tilefni til og fulla ástæðu, að hugsa og segja eitt af tvennu: Annað það, að Jósef sjálfur hafi ekki verið neinn merkismaður, heldur hið gagnsíæða, þar eð hann kannaðist ekki við það, sem hann átti, og hugsaði S]er að yfirgefa barns- móður sína, og bregðast þannig bæði heitmey sinni og barni sínu. Hitt er það, að hafi Jósef haft rjett fyrir sjer og ekkert átt í barni Maríu, og barnið þó ekki af Guði getið eða eingetið, þá er ekki nema eitt ætlandi, það, að María hafi reynst unnusta sínum ótrú og lauslát, og eignast barn sitt með einhverjum manni öðrum; og þá finst mjer, og líklega fleirum, að Maríu — móður hins mesta og besta á jarðríki — sje gerð skömm og smán i mesta máta. Nei, þetta dugar ekki; þetta nær engri átt; heilbrigð hugsun og óspilt tilfinning manns rísa öndverðar gegn öllu þessu. Það má ekki og á ekki að ætia Matteusi og Lúkási að hafa verið slíkir menn, og því síður Jósef og Maríu. — Margfalt framar og nær liggur að ætla og fullyrða, að þeir, sem báðir eru taldir menn vel að sjer á sinni tíð, hafi skrifað um getnað og fæðingu Betlehems-barnsins, eins og þeir gera, tilknúöir, neyddir til þess, af óhrekjanlegum sannleiks- ástæðum. Því að víst má þeim það ætla, að þeir hafi eigi verið öðrum mönnum alment svo miklu einfald- ari og auðtrúaðri, að þeir tæki gilda og trúanlega undir eins, og bókfestu slíka hluli, sem engum manni er unt að trúa, jafnvel ekki hinum einfald- asta, nema fyrir sterkustu sannanir og óræka vitnisburði. Fyrir því verð- ur það svo makalaust eðlilegt og sjálfsagt hjá Lúkasi, og honum fylli- lega ætlandi, að hann rannsakar alt frá rótum, áður en hann skrifar og sendir út frá sjer söguna alla um Jesúm Krist, í þeim góða og göfuga tilgangi, að lesendur hans skuli og þurfi ekki að vera i vafa um, hvað sje sannleikanum samkvæmt. Sjálfur Markús sýnist mjer líka benda i sömu átt og taka i likan streng og þeir Matteus og Lúkas, um faðerni og eðli Jesú, þar sem hann (Markús) byrjar guðspjall sitt með því, að kalla Jesúm »Guðs son«, auðfinnanlega f annari og æðri merk- ingu en alla aðra. Vel má eínnig benda á ummæli Jóhannesar skírara hjá Markúsi, líka í upphafi guðspjalls hans, þar sem Jóh. talar um þann, sem koma muni eftir sig (Jesúm) og að hann sje sjer svo miklu meiri, að hann sje ekki þess verðar, að »krjúpa niöur til að leysa skóþveng hans«. Þá var Jesú ekki enn kominn op- inberlega fram, og eigi nema fáum kunnur. Hvaðan hafði þá Jóh. þessa þekking og þessa himinháu hug- mynd um Jesúm? Varla annarstaðar frá fremur en frá kunnugleik um fæðingarsögu Jesú, og liklega einnig

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.