Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 21.02.1928, Blaðsíða 6

Bjarmi - 21.02.1928, Blaðsíða 6
54 B J A R M 1 hjeldumst í hendur án þess að mæla orð frá vörum og hölluðum höfðun- um hvort að öðru. Við lásum instu hugsanir hvors annars — og það, sem við lásum, var einungis þakk- læti og aftur þakklæti. Þakklæti hans við mig og þakklæti mitt við hann, og þakklæti okkar beggja við Guð, sem Ijet svo mikla gæfu falla okkur i skaut þessi ár. Fmu. Thomas Laub. Blöð vor hafa oft getið látinna merkismanna erlendra og skýrt frá verkum þeirra. Meðal þeirra manna má eflaust telja Thomas Linnermann Laub, dáinn 4. febr. f. á., en jeg hefi ekki sjeð fráfalls hans getið í blöð- um vorum. Verk hans voru lika í þeirri grein mentanna, sem lítið hefir enn náð til athygli vor íslendinga, þótt vert væri, og er það meðfram með tilliti til þess, að línur þessar eru skrifaðar, Pað hefir einkum á síðasta manns- aldri sætt meðferð í ræðum og rit- um á Norðurlöndum, að kirkjusöng- urinn (lúterski) sje ekki á þeim brautum, sem honum eru samboðn- astar, og að eigi hafi verið framför í þeirri grein á síðustu öldum. Th. L. var aðalflytjandi þessa máls hjá Dön- um. — Hann hneigðist snemma að sönglist, enda af því bergi brotinn, dóttur- eða dóttur-dóttursonur Zinck, sönglagaskálds, sem flestir kannast við1). Th. L. var fæddur 1852, prestsson- ur frá Fjóni. Háskólanám hans var 1) J. W. L. Zinck (1776-1854). Faðir hans, H. O. C. Zinek (f 1832), var sömu- leiðis tónskáld og margir ættmenn þeirra hneigðust i þá átt. guðfræði. Hvarf hann þó frá því og gaf sig að öllu við sönglistinni. — Ferðaðist hann til Ítalíu (1882) að kynna sjer söng fornkirkjunnar. — Var hann að lokum talinn fróðastur manna á Norðurlöndum í sögu kirkju- söngsins. Eftirmaður Gade við Hol- mens-kirkju í Kmh. varð hann 1891 og hjelt því embætti til dauðadags. Ritaði hann snemma greinar og bæklinga um kirkjusöngleg efni. — Árið 1920 kom út bók hans »Musik og Kirke«. Það er saga kirkjusöngs- ins fyrst í kaþólskum sið til siðab., þá lútersku kirkjunnar og síðast sjerstaklega dönsku kirkjunnar. Sýnir hann, hvernig sönglistin var framan- af langmest á vegum guðsdýrkunar- innar, þá sem þjónn orðsins, og þroskaðist meir og meir, uns hún náði hæsta stigi sínu hjá Palestrinu1) og samtímismönnum hans. — Sömu umhyggju naut kirkjusöngurinn á 1. öld Lúterskunnar. En er lengra Ieið gekk sönglistin meir og meir í þjón- ustu leiklistarinnar, komst þar í önd- vegi, sem sjálfstætt áhrifaefni og »túlkur« heimsgæðalífsins. Hvarfhún þá frá að þjóna kirkjunni. Guðs- þjónusta safnaðauna tók að nýta sjer mola af borðum bins nýja verkefn- is; kirkjusöngslögin eldri breyttust að formi og efni. Pó telur Th. L., að lifað hafi hjá dönsku þjóðinni leyfar af forna kirkju- söngnum í lögum við þjóðkvæðin. Er það hiklaust endurbótaráð hans að kirkjan hverfi aftur til þeirrar meðferðar sönglaganna, sem tiðkaðist á fyrstu öld Lúterskunnar og í ann- an stað, að danska kirkjan leggi þjóðvísnalögin (upphafl. frá henni) til grundvallar fyrir nýjum kirkju- söngslögum. 2) Palestrina var italskur tónsnillingur og söngstjóri í Pjeturskirkjunni í Róm, dó 1594. Rilslj.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.