Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.09.1929, Blaðsíða 2

Bjarmi - 15.09.1929, Blaðsíða 2
166 B J A R M I kirkjusöfnuðunum íslensku. Tæki- færin til kristilegrar starfsviðleitni virtust okkur vera svo mikil, að það var miklum sársauka bundið að verða nú að fara af landi burt. Viðs- vegar um alt land eru Ieitandi sálir, þyrstar eftir orði frá Guði og eftir vitnisburðinum. Er sárt til þess að vita, hve lítið er um guðsorðs-boðun vlða á íslandi. Óefað verður ekki úr því bætt með öðru móti, en sjáll- boðastarfi trúaðra áhugamanna. Það gladdi okkur, því það spáir góðu um framtíð frjálsrar starfs- viðleitni innan þjóðkirkjusafnaðanna islensku, hvernig »gamla guðfraðin« um synd og náð, um guðdóm Krists Og friðþægingu, finnur aistaðar opin björtu. Pví fengum við að sjá vor- boða guðsríkisins: frið og fögnuð heilags anda i trúarlífi margra ein- staklinga. — Guð gefi okkar ástkæru þjóð marga votta, til að flytja henni þenna sáluhjálplega boðskap I Hvað það verk snertir, er við nú hverfum aftur að í Kma, þá skulum við vera fáorð í þetta skilti. Prátt fyrir óeyrðir og margskonar ann- marka, er alt útlit fyrir að nú fari miklir kristniboðstimar í hönd i Klna- veldi. Er engu siður af því látið á okkar starfssviði en annarsstaðar. — Frá því, og eins frá ferðalaginu til Kína, segjum við seinna. Um leið og við nú kveðjum ykkur, þökkum samveruna og óskum ríkustu blessunar Drottins, beygjum við okkur 1 auðmýkt og segjum af bjarta: »Jeg stend til brautar búinn, min bæn til þín og trúin er einka athvarf mitt, ó Guð, min stoð og styrkur; jeg stari beinl i myrkur, ef mjer ei Iýsir Ijósið þitt«. Stödd 1 Niðarósi, 22. júli 1929. IJerborg og Ólafur Ólafsson. Sadhu Sundar Singh. [Par eð margir spyrja um Sadhu Sundar Singh, er hjer ágrip af grein um hann, sem dr. A. J. Appasamy, fram- kvæmdastjóri í kristilegu bókmentafjeiagi i Madras, skrifaði í indverskt tímarit síðastl. voi]. Sundar Singh býr nú I Sabathu. Húsið hans er á hárri hæð, og ein- stigi 2 km. langt, um þjettan greni- skóg, upp að þvi. Næsta járnbrautarstöð er Dharam- pore, og 16 km. leið þangað. fo.pið Sabathu er honum kært, þvi að þar hóf hann Sadhu-starf sitt árið 1905. Þegar jeg kom til hans fyrir 5 ár- um, bjó hann I miðju þorpinu, í húsi er hann hafði keypt fyrir föður- arf sinn, en vegna heilsunnar varð hann að fá betra næði; gaf hann þá húsið vinum sinum, er höfðu stundað hann veikan. Fluttist hann svo út úr aðal-þorpinu og upp á hæðina. Trú- boð öldungakirkjunnar átti húsið, og býr þar ameriskur trúboðs-læknir, dr. J. N. Peoples, með honum. — Læknirinn stundar boldsveika í bæli þeirra skamt þar frá, en bæði veita þau læknishjónin Sundar Singh alla umönnun, einkum þegar hann er veikur, sem oft vill veiða nú siðustu árin. Andstæðingar hans seg a að hann hafi brugðist Sadhu-skyldu, með því að kaupa sjer bús, — hann á húsið, sem hann býr I. — Jeg talaði um það við hann, vikuna sem jeg bjó hjá honum siðast (24.—31. okt. 1928). Hann komst svo að orði um það efni: »Hugsjón mln hefir aldrei verið sjálfsafneilun, vegna hennar sjálfrar. Pað væri enginn ávinningur. Guð hefir skapað alt i heiminum, og alt

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.