Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.04.1931, Blaðsíða 13

Bjarmi - 01.04.1931, Blaðsíða 13
BJARMI 61 »Þá yrðu ekki margir til aó ganga í kristinn söfnuð hjá okkur. Af 300 manns kunna tæplega 20 að lesa og draga til stafs«. Jeg segi honum að okkur yrði engin vandræói úr því. Ef trúarhneigð vaknar og fólk veróur heillað af Kristi, þá vill það fyrir hvern mun læra að lesa og fá til- sögn í kristnum fræðum. ökumaóurinn stansar snögglega og' setur börurnar frá sjer. Hann þrífur í hand- legginn á mjer og segir meó ákafa: »Lá- má-sög síra Ölafur, jeg held jeg kannist við þetta. Jeg var á nokkrum kristilegum samkomum í Nanyamg fyrir mörgum ár- um. Þótt jeg reyndi til að hrista af mjer áhrifin, þá hafa þó þessar samkomur ekki lióió mjer úr minni. Þessar fáu leturmynd- ir, sem jeg kann, hefi jeg lært hjá frænda mínum. Hann er kristinn og kann orðið ósköpin öll. Og nú langar mig afarmikió til aó ganga á námskeið hjá ykkur«. Jeg tók fremur dauf-t í það, enda fanst mjer hann halda að artalverkefni okkar væri að kenna fólki að lesa; eða fanst hon- um það eitt eftirsóknarvert á kristniboðs- stöðinni? >>Til hvers er fyrir þig að fara að læra aó lesa? Ekki hefirðu efni á að slá slöku við aksturinn og fara að liggja yfir bók- um?« Ö, nei«, svarar hann, og er nú mjög al- vörugefinn. »En jeg verð nú samt að læra að lesa. Jeg má sjaldan vera aó, að fara á samkomur. En kunni maöur að lesa, þá er hægt aö lesa um þetta alt í biblíunni«. »Hvað er það nú sjerstaklega, sem þig' langar svo til að geta lesiö um í ritning- unni?« »Þetta, sem þið töluðuð um, þetta um syndina og' um fyrirgefninguna. Það get jeg ekki skilið hvernig maður losnar við syndirnar þó aó maður biðji Guó að fyrir- gefa sjer. En frændi minn breyttist þó ákaflega mikió eftir aó hann varö krist- inn. Hann losnaði við ópíumlöstinn, og ekki hefir hann verið nærri eins vondur við konuna; áður átti hann aldrei í friði vió nábúana, en nú hefir þetta alt breytst«. »Fanst þjer ef til vill aó ræðan um synd- ina og um fyrirgefninguna ætti erindi til þín?« »Já, mjer fanst líka þú eiga við mig. Jeg hefi fyrir löngu haft hugboð um, að geróir manns fylg'du manni inn í eihfð- ina. Konfúsíus talaði um »bá-ing«, endur- gjald. En mjer hefir ekki verið ljóst fyr en nú, hve mikið lig'gur á að losna við syndabirðina. Hjelt jeg ekkert lægi á aö hugsa um þaó fyr en rjett áður en maður deyr«. »Finst þjer ekki heimskulega seint að ætla ekki að losa sig vió bresti sína fyr en á grafarbakkanum?« »Jú. En svo er þetta alveg óþolandi að vera svo syndugur og' vondur, að maður er hræddur vió Guð föður sinn á himnum, og er glaöastur þær stundirnar sem mað- ur hefir ekki nafn hans í huga sjer. — Tvisvar hef jeg beðið Guð að fyrirgefa mjer syndirnar. En jeg get ekki skiiið hvernig jeg get losað mig við þær, hætt að syndga, þó að Guð vildi fyrii'gefa mjer«. Nú fór mjer loks að skiljast, að honum var eitthvaó meira í hug, en að vilja læra að lesa. Hann þarfnaðist leiöbeiningar í sáluhjálparefnum. Trúhneigóin vanrækta gjörir vart við sig, þorstinn eftir Guði. »Þú hefir ekki öðlast fyrirgefninguna ennþá; en syndafjöturinn fellur af okkur, samstundis og við eignumst hana. Einusinni gerði jeg á hluta vinar míns. Það olli mjer síðar óbærilegs hugarangurs. Loks varó jeg að segja honum frá þessu afdráttarlaust, og bað jeg hann fyrirgefn- ingar. Var þá eins og ljett væri af mjer þungri byrði. Enda hafói jeg nú losnaö viö þessa yfirtroðslu; þessi synd var skyndi- lega horfin úr hjartanu, við mintumst aldrei á hana framar. — Heldurðu nú að jeg hafi átt hægt með að fara af stað

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.