Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.04.1931, Qupperneq 15

Bjarmi - 01.04.1931, Qupperneq 15
BJ-ARMl 63 reynslu fyrir fjremur árum kostar förin frá Kaupmannahöfn til Búdapest rúmar 100 kr. ísl. aö meðtaldri gistingu í Berlín og- Prag. Fara mátti alla leiö í einum 36 stunda áfanga fyrir talsvert minna., en haö er auðvitaó ekki ráólegt fyrir þá, sem ókunnugir eru og langar til aó sjá sig um.*) Menn njóta sín ekki á slíkum þingum nema heir sjeu sæmilega aó sjer í ensku og þýsku. Allir mentaóir Búdapestbúar tala þýsku og margir frönsku, þótt ung- verska sje þeim kærust, en Noróurlanda- mál skilja sárfáir. En fari málaþekking og á.hugi á kristindómsmálum saman, er óhætt að búast við ágætum minningum eftir þingið. S. Á. Gíslason. Hvaðanæva. AðnlíuiHliii' Sambands kristniboðsfjelaganna verður að forfallalusu 2. og 3. júní i vor í Reykjavík. Sr. Árni Björnsson prófastur i Hafnarfirði prjedikar í fundarbyrjun og væntanlega verða fluttir fyrirlestrar fyrir almenning um kristni- boðsmál í sambandi við fundinn. A fundinum sjálfum verða rædd ýms starfs- mál, og auk þess verða þar umræður um leik- mannastarfsemi. Annars verður dagskráin birt síðar. Samkvæmt lögum Sambandsins geta deildir þess sent 1 fulltrúa i'yrir hverja 20 eða færri meðlimi og »stuðningsfjelaga«, sem árlega gefa í kristniboðssjóð, geta sent 2 fulltrúa hvert. i i' lirjefi frá 6. f. m.: Bestu þökk fyrir Bjarma. Hann flutti mjer eins og æfinlega margt, sem jeg las mjer til gagns og gleði. Pó þótti mjer *) Langdýrasti hluti ferðarinnar tiltölulega ei að komast frá fslandi til meginlands Norðurálfu. Pað má. komast frá t. d. Bergen eða Leith til þingsins, fara aukaferð til Rómaborgar á eftir og til baka aftur fyrir svipað fje. sjerstaklega vænt um greinina »Stækkun blaðs- ins«. Ekkert getur verið eins nauðsynlegt eins og aukið ákveðið kristindómsstarf, og er jeg sann- færður um að Guð muni blessa áræði þeirra, sem treysta málefni hans til að bera sigur út býtum, þrátt fyrir ait sem hindrar. Jeg vona að marglr bregðist vel við þeirri málaleitun þinni, að senda greinar í blaðið ...... i r brjefi að norðan 16. febr. þ. á.: »Það gladdi mig mikið er jeg las í nýkomnum Bjarmablöðum að blaðið stækkar. Við kaupendur þess og vinir út um land verðum nú að gjöra öflug samxök með oss, að styðja blaðið, bæði peningalega og með því að rita í það. Einnig fjölga kaupend- um svo sem hægt er. Að þvf er hið síðasttalda snertir eru ný-guðfræðisprestarnir I mínum aug- um versta hindrunin. Svo finst mjer það vera hjer. Því þar sem þeir ná sjer niðri, þar er fyr en varir áhugaleysi og jafnvel andúð gegn biblíu- legum kristindómi búin að hertaka sálirnar. -- Annars kvíði jeg engu. Herra kirkjunnar hefir sýnt það svo oft á liðnum öldum, að eftir þoku og kulda kemur sól og sumar, einnig í andlegu tilliti, og þá verður Bjarma þakkað, sem hefir nú um 25 ár flutt þúsundum heimila skilaboð frá góðum Guði og verið kærasti gestur margra trúrækinna manna, sem enga leiðbeiningu fengu góða hjá prestinum sínum«. Frá starfinu. Bjarmi hefir mælst til aö fá fregnir af kristilegu starfi víðsvegar um land, og birtir nú brjef um það efni frá öðru trúboðs- fjelaginu á Akureyri: Samkvæmt beiðni yðar, herra ritstjóri, sendi jeg hjer með lauslegt ágrip af störfum Kristni- boðsfjelags karla og kvenna á Akureyri á síðast- liðnu ári. Eins og yður mun kunnugt, var fjelagið stoi’n- að veturinn 1929, að tilhlutun ólafs kristniboða ólafssonar. Fjelagið hefir 13 meðlimi, 11 karl- menn og 3 konur. Hver karlmaður greiðir árs- tillag 5 kr., en kvenmaðurinn kr. 2.50. Fjelaginu var það ljóst, að tillögin einsömul mundu litlu orka til styrktar trúboðsstarfi ólafs, það ráð var [iví tekið að nota svo nefnda samskotabauka, bæði á fundum fjelagsins og heima fyrir. Alls hefir safnast innan fjelagsins kr. 265.00 s.l. ár, sem gjaldkeri þess hefir lagt I útibú Landsbankans hjer til vaxtadráttar. Snemma á árinu lagði fje- lagið kr. 250,00 I sambandssjóð íslenskra kristni- boðsfjelaga, sem þjer, herra ritstjöri, veittuð móttöku. Nokkrir fjelagsmenn skutu saman og keyptu Nýjatesetamenti og kristileg smárit.

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.