Bjarmi - 01.11.1931, Qupperneq 8
168
BJARMI
Hvaðanæva.
I’rc.stflfjclngsritið, 13. ár, er nýlega komið og
i'lytur auk ýmsra erinda óvenjulega mörg æfi-
ágrip og minningarorð með myndum. Er þar
minnst sr. Stefáns . Thorarensens, sr. Kjai tans
Helgasonar, sr. Einars Jónssonar, sr. Pórðar
Tómassonar, Söderbloms erkibiskups og beggja
vígslubiskupanna. Þýðingar úr fundarskýrslum
Lambeth-fundarins og frásögnin um hann er alt
harla eftirtektarvert að ýmsu leyti. Ber bæði
þar og víðar í ritinu á góðri viðleitni á að kynna
þjóðinni ensk kirkjumál og er ekkert nema gott
um það að segja, enda þótt stórborgahættir og
fjölmenni þar t landi valdi, að strjálbýli vort
og fámenni geti fátt af því hagnýtt sjer.
Einir tveir ungir guðfræðingar skrifa minn-
ingar frá utanför sinni. Bendir Þórarinn Þórar-
insson i góðri en örstuttri grein: »Andleg bú-
hyggindi« prestum á ritsöfn með spaklegum setn-
ingum og smásögum, en óskar Þorláksson skrifar
nokkru lengra um kristilegu stddentahreyfing-
una.
Jeg átti von á að sjá erindi sr. Þorgrims á
Grenjaðarstað um nútíma og aldamótaguöfræðina,
sem hann flutti hjer í fyrra haust, eða m. k. ein-
hverja ritgjörð um hin miklu straumhvörf, sem
Barths-stefnan hefir valdiö 1 guðfræði vorra tíma,
— en það brást.
Er það varla vansalaust, að guðfræðiskennarar
vorir skuli ekki einu sinni segja alþjóö frá henni,
eöa fá einhverja unga suðurgöngu-menn til þess.
Ungu guöfræðingarnir fara þó nú orðið árlega til
háskóla meginlandsins og hljóta að kynnast henni
eitthvað.-----
Iiaunar leyfi jeg mjer að skjóta því hjer að,
að jeg llt svo á, að ungir menn, sem ætla að
verða prestar á íslandi, mundu að jafnaði fá
meiri og betri forða til æfistarfsins við að dvelj-
ast hjá áhugasömum prestum í starfsömum söfn-
uðum í erlendum sveitum, þar sem ytri staðhætt-
ii væru ekki gjörólíkir vorum, heldur en að stað-
næmast 1 stórborgum, þar sem bæði er margfalt
seinlegra að kynnast öðru en yfirborði kirkju-
mála og öll aðstaða er gjörólík vorri.
Auðvitað er bæði »gagn og gaman« námfúsum
guðfræðing að hlusta ái fræga guðfræðiskennara
og kynnast »stefnum« þeirra, en mjer hefir altaf
fundist mest um vert að kynnast hvernig »stefn-
an« reyndist utan háskólans — í lífi og starfi
lærisveinanna. »Af ávöxtunum skuluð þjer þekkja
þá«. —
Jörð heitir nýja tímaritið, sem sr. Björn O.
Björnsson í Ásum gefur út. Er fyrsta ■ heftið (88
bls.) nýl. komið og flytur margs konar ritgjörðir,
flestar eftir ritstjórann, nokkrar þýddar sögur
o. fl. Tímaritið ætlar að ræða fyrst um sinn
»einkum uppeldismál, skólamál, likamsraíkt, úti-
líf, heimili, ástir, þjóðerni, nýja tímann alment
og trúmál (í þrengri merkingu þess orðs)«
»alt frá sjónarmiði trúar«. Dáist jeg að því
áræði, að prestur austur í Skaftafellssýslu tekur
í öðru eins útliti og nú; er að gefa út stórt tíma-
rit norður á Akureyri með öðru eins risavöxnu
hlutverki. Er öðru nær en Bjarmi vilji að áslæðu-
lausu auka erfiðleikana, sem hljóta að verða á
slíkri útgáfu.
En þess er ekki að dyljast, að jeg varð alveg
forviða, er jeg las I boðsbrjefi um þetta tímarit
liðið vor, að því væri ætlað að flytja meðal ann-
ars þýðingar á hinni ágætu bók, »Kristur á veg-
um Indlands«, og alræmdustu klámsögum Norður-
alfunnar, »Deka meron« eða »Tídægru«. — Fyrir
nokkrum árum fóru ógætnir piltar að gefa þá
bók út 1 heftum á íslensku, en hættu brátt, því
ao bóksalar vildu ekki selja þennan óþverra. •—
Þvi var það meira en lltið ótrúlegt, að vandaður
prestur færi að prenta þær sögur innan um góðar
trúmálagreinar! Nú er 1. heftið komið, og flyt-
ur nokkrar velviljaðar, en fremur þokukendar
trúmálahugleiðingar, ekkert úr góðu bókinni frá
Indlandi, en eina sögu úr »Tídægru«, ógnarlega
ósennilega, og í lauslætis átt, þött ekki sje hún
úr ljótasfa hópnum í fyrnefndri bók. Von-
andi verður það fyrsta og — síðasta sagan úr
»Tídægru«, sem þetta tímarit flytur. útgefandi
mun fljótlega reka sig á, að tlmariti, sem kveðst
vera stofnað I trú á það, að I Jesú Kristi sje
fylling alls lifs að finna«, sæmir ekki að flytja
lauslætis sögur; og önnur eins öviðjafnanleg
smekkleysa verður ekki til þess að afla ritinu
vinsælda nje útbreiðslu. S. Á. 'Gíslason.
Gjafli'. Bjarma hefir verið afhent: 1 Jóla-
kveðjusjóð 30 kr. 35 aura frá börnum við Austur-
eyjafjöll. — Til Kristniboðssjóðs 100 kr. frá
kvenfjelaginu á Akranesi, og 18 kr. frá S. B.
Siglufirði, þaðan komið og 50 kr. »til ólafs
kristniboða persónulega« og 10 kr. til »barna I
Kína. - Til Hallgrlmskirkju 5 kr. frá konu við
Hvalfjörð.
Þetta blað er prentað snemma í október vegna
pósta.
Minnist þess, sem sagt er um útbreiðslu og
framtíð Bjarma I slðasta tölublaði.
Ritstjóri: S. Á. Gíslason,
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.