Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 15.02.1932, Side 5

Bjarmi - 15.02.1932, Side 5
BJAEMI 29 Sunnudagaskól ar. Eftir því, sem jeg hefi komist næst, er sunnudagaskóli eða barnaguðsþjónustur að staðaldri á vegum þjóðkirkjunnar á þessum 9 stöðum: Reykjavík, Hafnarfirði, Akranesi, Borgarnesi, Eskif'rði, Grindavík, Höfnum, Sandi og Vestmannaeyjum, starfsfólk þeirra er um 70 og börnin urn 1920. Samkvæmt skýrslu, frá yfirmanni Hjálpræðishersins hjerlendis eru sunnu- dagaskólar hans á Akureyri, Glerárþorpi, Hafnarfirði, Hnífsdal, Isafirði, Seyðisf'rði, Siglufirði og Reykjavík. Börnin eru 600 og starfsmennirnir 35. Sjónarhæðarsöín- uður hefir ennfremur 1 sunnudagaskóla með 132 börnum og 7 starfsmönnum. Telst þannig til, að á öllu landinu sjeu 18 sunnu- dagaskólar með 2650 börnum og 112 siarfs- mönnum. Af því að ritstj. er oft beðinn um skýrsl- ur um þetta, sem annað sjálfboðastarf, vær' mikilsvert að fá, leiðrjett, ef nokkuð er hjer ofhermt eða vanhermt. og best væri að alíir leiðtogarnir sendu Bjarma stutta skýrslu um sjálfboðastarfið árlega. 1 þetta sinn vantar mig nokkrar tölur barna og' starfsmanna við barnaguðsþjón- usturnai- sumstaðar, og hefi því áætlað þá tölu. — Síðustu vikuna í júlí í sumar verður al- þjóðaþing sunnudagaskólanna haldið suð- u,r í Brasilíu, í borginni Rio de Jane'ro. Mun það vera í fyrsta sinn, sem slíkt evan- geliskt alþjóðaþing er háð í Suður-Ameríku »þar sem alþýða er illa kaþólsk en fnenta- menn flestir trúlausir«, að því er ferða- menn segja. Er búist við miklu fjölmenni á þingið, og ætla sumir leiðtogarnir í fyrirlestra- og pi’jedikanaferðir um Suður-Ameríku á undan og eftir. Áhersla er á það lögð, aö fá fulltrúa frá öllum löndum, þar sem sunnudagaskólar eru, og verður vafalaust farið frá öllum Norðurlöndum — nema Tslandi. Sýning verður í sambandi við þingið, og er óskað eftir sýnishorni af öllum ritum og sálmabókum sunnudagaskólanna, og sömuleiðis myndir af starfsfólki og börn- um. Þeir, sem vilja senda eitthvað slíkt, ættu að koma því til mín fljótlega. Þótt ekki væri annað, þá gætu myndir hjeðan sýnt sýningargestum að »hvítir menn« byggja Island, en um það mun Suð- ur-Ameríkumönnum vera lítt kunnugt. S. Á. Gíslason. Eftirmæli. Helga Sæmundsdóttir var fædd 19. des. 1856 að Presthólum í Núpasveit í Norður- Þingeyjarsýslu. Foreldrar hennar, Sæ- mundur Sigurðsson og Kristín Sigurðar- dóttir, voru, þar þá vinnuhjú, en fluttu þaðan á næsta ári að Valþjófsstöðum í sömu sveit, og voru þar í húsmensku nokk- ur ár, og fluttu síðan að Hrauntanga í sömu sveit og bjuggu þar allmörg ár, og þar mun Sæmundur hafa dáið, en Kristín bjó þar ekkja í mörg ár. Ölst Helga upp með foreldrum sínum, og móður sinni, eft- ir að hún varð ekkja, en fór svo í vinnu- mensku1 stuttu eftir fermingu, og dvaldi lengst á Sigurðarstöðum, hjá Magnúsi

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.