Bjarmi - 15.02.1932, Page 8
32
BJARMI
bónda Rafnssyni, er þar bjó þá, en síðan
fór hún á Valþjófsstaði, og var þar í tvö
ár, en árið 1882 fór hún að Leirhöfn, oi>'
giftist Kristjáni Þorgrímssyni, sem þar
bjó þá ekkjumaður með börnurn sínum.
Þau Kristján og Helga áttu 6 sonu: Jóhann,
Kristinn, Sæmund, Sigurð, Guðmund og
Ilelga; eru fjórir þeirra á lífi, en tveir
dánir, Jóhann, ættfræðingur, dó úr
Spönskuveikinni 1918 í Reykjavík, Guð-
mundur dó úr tæringu 1929.
Kristján Þorgrímsson dó 14. maí 1896.
Bjó þá Helga áfram með sonu sína sex i
ómegð í Leirhöfn, og kom þeim öllum upp
aðstoðarlaust, og græddist mjög efni, eft-
ir að þeir fóru að komast upp, enda er
jörðin góð bújörð, og fleytti fjölda fjár.
Bjó Helga í Leirhöfn með sonum sínum
öllum, nerna Jóhanni, sem fór til Reykja-
víkur 1903, og dvaldi þar þar til hann dó,
sem fyr segir, til áysins 1919, þá skifti
hún jörð'nni og eignum með sonum sínum
og hætti að búa, en þeir tóku við búrekstri
þar og búa þar enn.
Helga dvaldi hjá þeim sonum sínum við
allgóða heilsu, og sístarfandi, þar til seint
á árinu 1930, að hún veiktist af slagi, og
varð máttlaus önnur höndin, svo að hún
lá rúmföst þann vetur, en komst þó á fæt-
ur með vorinu, og var nokkuð hress, þar
t'l í ágúst síðastl., að hún fjekk aftur slag,
sem leiddi hana til dauða eftri þriggja
vikna legu. Hún dó 28. ágúst s.l. Var jarð-
sett að Snartastöðum 8. septbr., að viö-
stöddu miklu fjölmenni.
Framanritað er eftir nákunnugan, en
ritstj. getur bætt þessu við:
Helga heitin var prýðilega gefin og bók-
hne'gð vel. Lærði dönsku tilsagnarlaust og
útvegaði sér góðar bækur, erlendar sem
innlendar. Kristinni trú unni hún af al-
hug og reyndist Bjarma trúfastur vinur
fráj fyrstu viðkynningu, og útbreiddi hann
eftir föngum. Gestrisni og göfuglyndi voru
heim'lisprýði í Leirhöfn, eins og t. d. gam-
almennin, sem þar voru reynd.u.
Guð blessi niðjum hennar og vinum
ágætar minningar.
S. Á. Gísloson.
Hvaðanæva.
Kaiiiicndur Hjarina I Vrstiirliclini eru vinsam-
'ega beðnir að greiða andvirði blaðsins til um-
boðsmanns ]iess, mr. S. Sigurjónsson, 724 Beverly
Str. Winnipeg, Man., og snúa sjer til hans með
nöfn nýrra kaupenda og alt það, er að útbreiðslu
blaðsins vestra áhrrerir, nema þeir fái blaðið hjá
sjerstökum útsölumanni í sveit sinni. Jafnframt
eru vinir Bjarma vestan hafs beðnir að minnasc
þess, að nú þurfa þeir að vera samtaka, ef blaðið
á að geta haldið áfram að vera útbreiddasta blað-
ið frá fslandi vestan hafs. Gamlir vinir blaðsins
hverfa yfir úthaf dauðans, og unga kynslóðin
gleymir í ensku umhverfi að leggja rækt við
»blað foreldra sinna«, nema hún sé mint á það
hvað eftir annað. En reynslan sýnir bœði þar og
hjer, að meiri hluti þeirra, sem fer að lesa blað-
ið, vi 11 ekki missa það aftur. — Prestar Kirkju-
fjelagsins og aðrir áhugamenn, sem telja Bjarma
eiga erindi vestur, gætu gert blaðinu stórgreiða
með því að láta ritstjórann vita um hverjir I ís-
lenskum bygðum vildu útvega blaðinu kaupendur
og verða umboðsmenn þess í þeim, þar sem engir
eru nú. Þeir geta fengið fyrir ómakið ýms kristi-
leg rit ísl. ókeypis hjá umboðsmanni blaðsins í
Winnipeg eða beina leið hjeðan.
Sjcr-lilkar. Margir, víða urn land, tala um hvaö
œskilegt væri að sjer-bikarar væru notaðir við
altarisgöngur, en lítið verður þó úr framkvæmd-
um með að útvega sjer þá, líklega meðfram þess
vegna, að fólk veit ekki hvar þeir fást. Pess
vegna leyfir Bjarmi sjer að benda á, að sú versl-
un í Kaupmannahöfn, sem öðrum fremur selur
alls konar kirkjumuni, hefir jafnan gnægð at
þeim og verðið þetta á sjer-bikurum hjá henni:
úr gleri 1 kr. hver, úr silfruðu tini 3,60, úr »silf-
urpletti« 4 6 kr. (4 tegundir), úr hreinu silfri
14-16 kr. (2 tegundir). Verðið talið 1 dönskum
krónum og miðað við að nokkuð margir sjeu tekn-
ir í einu. Verða sendir með póstkröfu, ef inn-
flutningsleyfi fæst. Áritun: Dansk Paramental-
handel, Gothersgade 115 A I., Köbenhavn.
Útgefandi: S. Á. Gíslason.
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.