Bjarmi - 01.07.1932, Blaðsíða 4
100
BJARMI
mannúðarmálum, sem þingið hefði haft til
meðferðar.
Loks var reifað málið um prestafækk-
un, sem í vetur komst á dagskrá með þjóð-
inni með tillögu til þingsályktunar, sem
borin var fram á Alþingi, og var eftir
nokkrar umræður samþykt svohljóðandi
tillaga með öllum greiddum "atkvæðum:
»Prestastefnan mótmælir eindregið
þingsályktunartillögu þeirri um presta-
fækkun, er samþykt var á síðasta Alþingi
og lætur jafnframt í ljósi undrun sína yfir
því, að slík tillaga skuli koma fram, þar
sem allir hjeraðsfundir og nálega allir
söfnuðir og hreppsnefndir lan'dsins hafa
árið 1929 sent kirkjumálanefnd eindregin
mótmæli gegn fækkun presta.«
Að þessari tillögu samþyktri, ávarpaði
biskup fundarmenn nokkrum orðum út
frá 2. Kor. 13, 11. 13. og lauk fundinum
með bæn. Sagði hann síðan prestastefn-
unni slitið.
Kl. 8Í um kvöldið sátu synodusprestar
kvöldboð heima hjá biskupi.
Tillögur,
sakþyktar á Land8[)ingi kvenna í júni 1932.
1. »Fundurinn felur stjörn K. í. að semja og
prenta skýrsluform fyrir heimilisiðnað og
senda Samböndum sem fyrst.«.
2. Tillögur sr. Ásmundar Guðmundssonar:
1. »Kvenfjelög styðji að barnavernd, með
því að vinna að því, að í skólanefndir og
barnaverndarnefndir verði kosnar þær kon-
ur, sein hafa mestan áhuga á barnauppeldi
og besta hæfileika og tækifæri til opinberra
starfa á því sviði.« 2. »Kvenfjelögin taki
þátt í fjársöfnun fyrir barnahæli, með prest-
um landsins, aðstoði þá við við sölu merkja,
fermingarspjalda og bóka, eða safni áskrif-
endum að föstum ái-sgjöldum.« 3. »Kvenfje-
lög beini tillögum og bendingum um barna-
vernd og barnahæll til barnaheimilisnefnd-
ar Pjóðkirkjunnar, sem mun taka þeim þakk-
samlega og meta þær míkils.«
3. Iívenfjelagasamband fslands vill styðja
barnahælisnefnd Pjóðkirkjunnar, með því,
að gefa henni upplýsingar um heimili, viðs-
vegar um land, sem gætu tekið að sjer börn
til uppeldis.«
4. xFundurinn ályktar, að mótmæla harðlega
þingsályktunartillögu þeirri, um undirbún-
ing til laga um fækkun prestsembætta, sem
samþykt var í Neðri-deild Alþingis, 3. maí
1932, þar sem telja má víst, að með slíku
lagaákvæði glati þjóðin þeirri háleitu hug-
sjón sinni, sem eina fremst allra hefir sam-
einað hugi hennar, til þess að vinna að krist-
indómsmálefnum.«
5. Kvenfjelagnsamband fslands skorar á barna-
kennara og skólastjóra, sem ekki geta að-
hylst kristindómsfræðslu í kenslustarfi sfnu,
að hafa ekki barnakenslu og barnauppeldi
fyrir aðra að lífsstarfi sínu.«
6. »Annað Landsþing kvenna biður fulltrúana
að vinna að því, innan Sambandanna, að efla
kristilega starfsemi meðal barna og unglinga
og vinna að því, eftir getu, að hæfir menn
starfi á þessum grundvelli í hverju hjeraði.«
7. Tillaga húsmæðrafræðslunefndar: »Annað
Landsþing kvenna skorar á stjórn Búnaðar-
fjelags íslands, að húíi afhendi nú þegar
stjórn Kvenfjelagasamb. íslands hiö umrædda
hús og lóð í Gróörarstöðinni í Reykjavlk
til eignar og fullra umráða.«
8. Annað Landsþing kvenna felur stjórn K. f.
að hjálpa kenslukonuefnum í húsmæðra-
fræðslu til framhaldsmentunar, eftir því
sem ástæður leyfa, til þess að þær geti orðið
sem færastar í starfi sínu.«
9. »Kvenfjelagasamband fslands skorar á allnr
konur fslands, að styðja að velgengni hús-
mæðrasköla landsins.«
10. »Annað Landsþing kvenna samþykkir, að
veita Sambandi austfirskra kvenna 300 kr.
styrk, til þess að taka þátt í þeim kostnaði,
sem af því leiðir, að hafa hjálparstúlku inn-
an fjelagsdeildanna.« Samþ. með þeirri
breytingu, að stjórn K. f. verði falið að á-
kveða fjárhæðina.
11. »Kvenfjelagasamb. íslands ályktar, aö ganga
ekki í neitt erlent kvenfjelagasamband, oð
svo stöddu.«
12. Ályktun um erindi Stórstúkunnar: »Lands-
þingið vísar málinu frá, sökum þess, að tími
vinst ekki til að ræða það.«