Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1933, Blaðsíða 1

Bjarmi - 01.10.1933, Blaðsíða 1
Reykjavík, 1. okt. 1933. 19. tbl. XXVII. árg. Um fávita og fávitahæli. 2 útvarpserindi eftir ritstjórann, 1 fyrra sumar kom jeg með nokkrum öðrum gestum í stofu, þar sem 3 fávitar sátu. Oss setti hljóða, er vjer sáum þá. Jeg held vjer höfum allir hugsað: »En hve þessir veslingar eiga bágt.« Pessir 3 fávitar voru á lágu þroska- stigi, en þó sá jeg í sumar, sem nú er bráð- um liðið, marga enn aumari fávita, og sá jeg þá í tuga- eða jafnvel í hundraða tali. Jeg' vildi jeg væri fær um að sýna yður öllum, sem orð mín lieyrið, lifandi myndir frá þeim hópum. Jeg skil ekki annað, en að þær myndu knýja margan mann til að sinna málefnum fávita frekar en áður. Fagurt sumarkvöld (2. ágúst s.l.) kom jeg að fávitahæli skammt frá Oslo, sem Noi’ðmenn kalla »Fru Hjorths pleiehjem« eftir stofnanda þess, frú Emmu Iljorth, Þar var skínandi fagurt, hús fávitanna stóðu á allháum ás. — Jörðin heitir Toke- rud og sveitin Bærum. Hælið var einka- stofnun frá 1898 til 1915, en síðan tók ríkið við því alveg. Skóglendi var þar mikið, en ekki þjett- ari skógar en svo, að akrar og reisuleg býli sáust niður við Oslofjörð og út með firðinum, og eyjar skógi vaxnar úti á firði. Innan við ásinn var djúpur dalur og all- há fjallshlíð hinum meginn við hann, skógi vaxin upp á brúnir. Mjer þótti þar svo fallegt, og friðsælt, að mig langaði til að setjast þar að og hvíla mig En innan húsa var allt öðru máli að gegna. Umgengni virtist mjer prýðileg og húsakynni sæmileg, en vistmennirnir, fá- vitarnir, nálægt 200 að tölu, voru svo að jeg hefi aldrei aumara sjeð. — Aðalhúsin voru úr timbri og meir en fullskipuð. Ver- ið var að reisa nýtt hús til viðbótar úr steini. Þar eiga þeir að vera, sem erfiðast er að gæta, og verður sett girðing um þeirra blett — »annars þyrfti allt af að halda í höndina á| þeim, þegar þeir eru úti,« sagði forstjórinn. I karlmannahúsinu voru fávitarnir gengnir til hvílu, þótt klukkan væri ekki nema um 7. Voru um og yfir 20 í hverjum svefnsal, og tvær eða þrjár vökukonur á verði í salnum. Fávitarnir voru sumir hræðilega vanskapaðir, t. d. vantaði einn alveg nefið, og gleymi jeg aldrei því and- liti. I unglinga og barnadeildinni var og margt átakanlegt að sjá. — »Þarna sjáið þjer stærsta höfuð í Noregi,« var við mig' sagt, er jeg stóð við rúm drengs, 8 eða 10 ára að aldri. Höfuðið var svo stórt, og vanskapað, að hann gat ekki risið frá

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.