Bjarmi - 01.10.1933, Síða 8
152
BJARMÍ
sinnaskiftum. Var orðinn nýr maður fyrir
Jesúm Krist. Þeir verða í þeim söfnuð-
um, sem þeir hafa snúist til Krists í.
En kristinn Gyðingur verður aldrei
Þjóðverji, þ. e. a. s. í pólitísku lífi (stjórn,
menning og uppeldi) viljum vjer vera
lausir við áhrif og afskifti þeirra, vegna
þess að vjer álítum, að Guð hafi gefið oss
Þýskaland til að lifa þar og ala upp börn
vor eins og oss finnst rjettast. Þar að auki
sýnir mannkynssagan, að Gyðingar koma
ávalt fram sem föðurlandslausir menn.
Mjer detta í hug slæm áhrif þeirra á
stjórnmál vor, fjármál og listir.
Ef að Gyðingar eiga að lifa í framandi
landi, þá eiga þeir aðeins að dvelja þar
sem gestir, og reyni þeir til að hafa áhrif
á andlega lífið, verðum vjer að segja þeim
kurteislega og ákveðið: »Hjer í voru landi
ráðum vjer, þar eð þjer lifið öðru tilfinn-
ingalífi og á annan hátt en vjer.«
Jeg veit, að Luther var ekki mikill vin-
ur Gyðinga, og hafi verið sagt í Eisleben:
»Það var einmitt Lúther, sem kenndi
þýsku þjóðinni að halda ættstofni sínum
hreinum og utan við aðra kynflokka,« þá
er vert að minnast baráttu Lúthers við hin
stórkostlegu erlendu áhrif gegn um páf-
ann í Róm. Biblíuþýðing hans skapaði hið
þýska tungumál. Það var áður aðgreint i
margar mismunandi mállýskur, og vjer
munum aldrei gleyma, að hann flutti þýsk-
an söng og hljóðfæraslátt inn á þýsk
heimili. Hann sagði sjálfur einu sinni:
»Fyrir Þjóðverja er jeg fæddur, og fyrir
Þjóðverja vil jeg vinna.«
En jeg lofa yður, kæri prestur, að vjer,
»þýsk-kristnir« munum boða Guðs orð: um
syndina hjá mönnunum og náðina frá
Guði í Jesú Kristi, einnig nú á þeim tím-
um, sem Guð hefir gefið oss í Þýskalandi.
Með kærri kveðju, yðar einlægur
Kunrt Dryscke
(cand. theol.)
Hvaðanæfa.
Pingmenn Lettlands eru 100. Socialistar eiga
21, bændaflokkur 14. Smærri þingflokkar eru:
Ihaldsflokkur, Kommunistar, sem nefna sig
»bænda- og verkamannaflokk«, af því að »kom-
munismi« er bannaður með lögum, nýbænda-
flokkur, Þjóðverjar, Rússar, Gyðingar, Pölverjar
o. fl. Er því síst furða, þótt róstusamt sje oft
á þingi, og öll samtök mjög erfið, —og margir
sjeu svo þreyttir á flokkaskiptingunni, að þjóð-
ernishreyfingin, sem þar er nýlega hafin, fái
byr undir vængi. — Aðalmálgagn íhaldsmanna
heitir »Jaunakas Zinas« (Nýjustu frjettir).
Bændaflokksblaðið heitir »Briva Zeme« (Frjálst
land), en Pjóðernishreyfingarinnar »Perkon
krusts« (Þórshamar) o. s. frv. Kirsteins.
Stórt fyrirtæki i Stockholm sagði nýlega upp
57 starfsmönnum vegna kreppunnar. Þeir 400
starfsmenn, sem eftir áttu að verða, buðust þá
til að sleppa vinnu fimmtu hverja viku, og
kaupi sínu þá viku, ef hinir fengju að vera
kyrrii'. Þetta tilboð var þegið, og hefir vakið
mikla eftirtekt.
Frá Ungvcrjnlaildi. Hin kristilega hreyfing
meðal æskulýðsins á Ungverjalandi er nefnd
»Soli Deo Gloria«-hreyfingin. Nafnið þýðir:
Guði einum dýrðina, og tilgangur hreyíingar-
innar er auðskilinn af nafni því, sem hún hefir
valið sjer.
Einn leiðtoganna, Soos, segir meðal annars um
fjelag sitt: »1 staðinn fyrir skoðanir okkar á
Kristi, er aðalefni fagnaðarerindis okkar lifandi
kraftur Krists. — — •— Kristindómurinn er
hvorki sunnudagaföt sem við klæðumst til að
gleyma sorgum og áhyggjum lifsins nje svefn-
meðal gegn þjáningum þess, heldur þvert á móti
kraftur, sem í öllum erfiðleikum daglega lxfs-
ins hjálpar okkur til að vinna sigur.«
Hreyfingin á sterkastar rætur meðal stúdent-
anna á háskólunum og meðal nemenda mennta-
skólanna. — f júlí voru meðlimirnir ca. 2200,
og nú eru þeir skiftir í 65 deildir. Biblíulestr-
ar eru haldnir og vandamál lífsins rædd út frá
kristilegu sjónarmiði og skýrð fyrir æskulýðn-
um. Kjörorð piltanna er: »Hreinleiki, hófsemi,
ráðvendni», og stúlknanna: »Hreinleiki, hlýðni,
hjálpfýsi«. Jóh. H.
Ritstjóri: S. Á. Gíslason
PRENTSMIÐJA JóNS HELGASONAR