Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.03.1934, Blaðsíða 2

Bjarmi - 15.03.1934, Blaðsíða 2
40 BJARMI ekki hafa náð hámarki sínu ennþá. Sam- komur eru svo vel sóttar, að alstaðar er húsfyllir, og gildir einu hvort heldur er á virkum dögum eða helgum, síðla dags eða árdegis. En fáfræði manna í trúar- efnum tefur fyrir fyrir komu Guðs i'íkis hjer, öllu öðru fremur, því er svo mikil rækt lögð við námskeiðin. Hjer á stöðinni hefir verið bibííuskóli tvö undanfarin ár fyrir kínverska kven- trúboða, en skólastýran er norsk kenslu- kona. Þessum skóla verður sagt upp 1 næsta mánuði, en nemendurnir flestir hafa áður tekið virkan þátt í trúboðinu, og verður fjelagi okkar nú mikill liðsauki að þeim. Kristniboði yðar hefir sjaldan verið heima frá því er við komum heim úr sumarleyfinu og til, jóla. En degi síðar en þetta er skrifað, verður hann lagður af stað í ferðalag og gerir ráð fyrir að vera að heiman í 3 mánuði. Jeg hef lofað að halda samkomur á nokkrum kristniboðs- stöðvum í öðru hjeraði, fer þangað fót- gangandi og verð þrjár vikur á leiðinni. Með kærri kveðju okkar hjóna og ein- lægustu blessunaróskum. Tengchow, Honan, China, 12. 1. - -1934. Herborg og Ólafur Ölafsson. — ---------- Úr húsvitjunarferð. (Brot). Prestur var aleinn. — Það var komið undir rök;cur. — Klerkur stóð aleinn á 400- -500 métra hamrabelti, sem gekk þver- Imýpt í sjó fram. Á var norðaustan þræs- ingshríð, og hvein í veðrinu, og brimhljóðið kom dunandi frá berhögginu og bergsyll- unum upp til hans. Færðin var ill á fjallgarðinum, eins og oft vill verða í fyrstu snjóum - ekki hægt að koma við skíðum — og bar prestur þau því á öxlinni - kafhlaup á milli steina og í lautum - en glerhálka og broti þar sem jaðraði að . — Presturinn var í húsvitjun og tók það ferðalag venjulega 9—10 daga — og voru þó ekki nema 250 manns i prestakallinu. En margt af sóknarfólkinu bjó á víð og dreif í húsum, sem kúrðu eins og valhrædd rjúpa í básum og skápum utan í fjöllun- um og sumstaðar varð að hafa marga stiga til að komast upp og niður björgin frá sjón- um og víða tveggja til þriggja tíma ferð á milU bæia. — Frá bænum þar sem prestur húsvitjaði s'ðast fylgdi honum sjötugur öldungur upp- eftir fjallinu. Ætlaði jafnvel að ganga með honum alla leið til - Bása — en prestur gat ekki fengið af sjer að láta hann fylgja sjer lengra en upp í miðja fjallshlíðina — það skall og small svo í þindinni á gamla manninum af mæði upp brekkurnar — eins og blautri voð við hún er slæi' í baksegl. Og nú var prestur aleinn á háfjallinv farið að rökkva dimmdi að með hríð og herti veðrið. Ja nú er jeg bærilega settur - sagði prestur og skrefaði stórum niður fjalls- hlíðina. Á leiðinni íor hann að hugsa um, hvað hann ætti nú að tala um við fólkið á næsta bæ, því þar mundi hann gista um nótt- ina — en þangað var klukkutíma gangur og enn yfir háls að fara. Um fjallið og ireistmguna ... vitaskuld. Þegar yfir hálsinn kom var farið að skygg'ja og hríðarnaglandinn svo dimmur að varla grillti í bæjarþústuna. Venjulega er gengið heim að bænum eft- ir nokkurnveg'inn sljettri bergbrún um 50 metra hárri. Um flóð skellur hafaldan í bergið en nú var lágsjávaö. Þegar prestur gelík eftir bergbrúninni vii'tist honum hann koma auga á mann niðri í fjörunni, og bjóst við að hann væri að bera saman rekaviðarbúta og bjarga undan sjó.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.