Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 15.05.1934, Blaðsíða 6

Bjarmi - 15.05.1934, Blaðsíða 6
76 BJARMI oft að biðja fyrirgefningar eða afsökunar. En jeg þarf aldrei að biðja afsökunar á því að boða Krist. — Hann einn er galla- laus. Og hann er eina hjálpræðið. --------------- Grundvöllur kristniboðsins. Eftir dr. Stanley Jones kristniboða. I uppreisninni í Kína árið 1900 voru margir kristniboðar myrtir með mikilli grimd (134 evangeliskir kristniboðar og 52 börn þeirra). Kínverjar trúðu því í blindni, að kristniboðar væru óvinir menn- ingar þeirra (þeir hafa sjeð síðan, að kristniboðar eru bestu vinir Kína og hafa veitt unga lýðveldinu margháttaða aðstoð og hjálpað til að varðveita það frá að far- ast í fjármálaspillingu og innbyrðisdeil- um). Pitkin hjet einn kristniboðinn, sem var myrtur. Hann fór til Kína óstuddur af öll- um kristniboðsfjelögum, og gaf efni sín sjúkrahúsum og skólum. Hann kepptist vió að læra kínversku, en uppreisnin kom áð- ur en hann gæti vitnað um kærleika Krists á kínversku. Þegar uppreisnarherflokkur nálgaðist hús hans, sagði hann við kínverskan vin, sem hjá honum var: »Þú verður að flýja, svo þeir drepi þig ekki.« »Ef þeir drepa mig, þá segðu ástvinum mínum, að Drott- inn hafi verið með mjer til hinstu stund- ar, og að friður hans sje huggun mín. Bið þá um að senda son minn til Yale-háskól- ans, og segðu syni mínum, að hann skuli koma hingað og verða kristniboði, þegar hann hafi lokið háskólanámi.« Þessi Kínverji komst undan. Skríllinn brautst inn í húsið og skaut Pitkin, hjó af honum höfuðið og festi það yfir borg- arhliðinu, en varpaði líkinu út á víðavang fyrir úlfa og hunda. Sonur hans er nú, samkvæmt eindreginni ósk sjálfs sín, kristniboði í Kína, og fórnar lífi sínu til frelsunar föðurmorðingjum sínum. Hvað gat komið föðurnum til að fórna eigum sínum, lífi og syni fyrir erlenda þjóð svo vanþakkláta? Hvað gat komið syn- inum til að fórna glaður kröftum sínum fyrir þjóð, er hafði myrt föður hans? Aðeins eitt og ekkert annað. Faðir og son- ur höfðu báðir staðið við krossinn, þeir höfðu heyrt Jesúm biðja fyrir böðlum sín- um og morðingjum: »Faðir fyrirgef þeim því að þeir vita ekki hvað þeir gjöra.« Sami andi hafði gagntekið hjörtu þeirra og því voru þeir fúsir til að þjóna og.deyja, ef á þyrfti að halda. Þetta er ekkert einsdæmi. í annari kristniboðafjölskyldu voru faðir, móðir, sonur og dóttir öll drepin, en 3 systkini, sem eftir voru, fóru öll til Kína, til að helga líf sitt kristniboði Kínverjum til við- reisnar. Hannington biskup var myrtur í Afríku (29. sept. 1885 eftir skipun frá Meoanga konungi í Uganda«). Sonur Hanningtons fór seinna til Ug- anda að boða Krist. Fyrsti maðurinn sem snerist til kristinnar trúar fyrir starf hans var sami maður og hafði myrt föður hans. Annar kristniboði og kona hans voru myrt í Afríku. 5 börn þeirra starfa þann dag í dag að kristniboði hjá þjóðflokkn- um sem myrti foreldra þeirra. Hvað gat skapað þann anda í brjóstum þeirra? Ekkert annað en kross Krists? Sumir ætla að grundvöllur kristniboðsins sje amerískir dollarar og ensk pund. En þeim skjátlast stórlega. Grundvöllurinn er kærleikur Krists og fórnfúst hugarfar krossins. Kristniboðsgjafir skifta milljón- um, það er satt. En hvað knýr menn til að gefa stórfje til viðreisnar framandi þjóð- um? Kærleikur Krists! Það er sami mátt- urinn, sem hefir knúð tugi þúsunda ungra karla og kvenna frá háskólum Bandaríkja til að fórna lífi sínu til hjálpar erlend- um þjóðum og boða þeim endurlausn kær leikans. Engin höf eru svo breið, engin

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.