Bjarmi - 15.06.1934, Page 3
BJ ARMI
89
varnað syndum, fyrirgefið syndir og leitt
afvegaleiddan mann á rjettan veg.
Og nú kemur hann á heilagri hvíta-
sunnuhátíð með bestu gjöfina af öllum
gjöfum með blessaðan anda sinn, heilag-
an Anda, til þess, ef verða mætti, að blása
nýju lífi í stirðnaða limi. Hann kemur
með anda sínum, eins og hann hefir gert
um liðnar aldir, til allra kristinna manna
um öll kristin lönd, til allra einstaklinga,
manna og kvenna og barna, sem vilja að-
hyllast hann.
Vjer á þessu landi eigum margar óskir,
vjer þ'urfum margt og vjer þráum margt,
vjer eigum ekki síður en aðrir við margt
að stríða, margt, sem er erfitt fram úr
að ráða, og enginn maður kann einhlýt ráð
við til úrlausnar. En það sem er við að
stríða hjá oss, er hið sama og hjá öðrum
þjóðum, þótt mörg- sje nöfn hinna ýmsu
meina. Og það sem við er að stríða, er
syndin, syndin í þjóðlífi voru og syndin
í lífi hinna einstöku manna. Enginn nema
Jesús getur bætt úr því aðalmeini, en þetta
vill hann gera og þess vegna vill hann gefa
OSS öllum anda sinn, heilagan anda sann-
leikans, anda huggunar, anda trúar og
anda vonar. Hann vil gefa oss anda sinn,
svo að sjerhver íslenskur maður vilji öðr-
Um íslenskum manni vel, svo að allir geti
starfað saman í einingu og bróðurhuga, svo
að hver einstaklingur líti ekki til síns gagns
einungis, heldur og annara. Vjer getum
verið sammála um, að þetta vanti og að
annað vanti, að vjer þurfum bétri sam-
gongur, fleiri brýr, vjer þurfum betri húsa-
kynni, að vjer þurfum meiri ræktun jarð-
arinnar. Alt er þetta raunveruleg þörf. En
það sem vjer helst þurfum er heilagt líf,
brennandi áhugi í því að vera og reynast
bristnir menn í orðum vorum og öllu hátta-
*agi. Vjer þurfum innilega velvild og vin-
arhuga, hver til ahnars, meiri sanngirni,
^eeira umburðarlyndi, sáttfúsari huga og
°llu því fram ljóst og leynt, sem göfgast
nieð oss býr. Til þess að þetta allt geti
orðið, vill Jesús gefa oss öllum anda sinn.
— Þá mundi ekki beinast áhuginn að því
sem er lítilsvirði nje einskisvirði, ekki að
því sem er hverfult, ekki að því að svala
nautnalöngun, eða þsesháttar, heldur að
því að láta allt, alla bestu hæfileika njóta
sín oss öllum til blessunar sameiginlega og
Guði til dýrðar.
Hann, Drottinn vor, kemur nú til að gefa
oss anda sinn. Hann kemur til að gefa oss
góðan vilja til alls hins góða. Hann kemur
til að gefa oss brennandi þrá til þess að
verða ljós til að lýsa öðrum. Hann kemur
til þess að gefa oss heita þrá til að veita
einhverjum straumum gleði og farsældar
inn í annars líf. Hann kemur til að gefa
oss skilning og mátt til þess að ávaxta sjer-
hvert það pund, sem Drottinn hefir oss
í hendur fengið. Hann kemur eins og líf-
gjafi, eins og ljós-gjafi, eins og kraftalind,
til þess að láta hugsjónir rætast, þær sem
fegurstar eru. Hann kemur til að sameina
hugina, þótt skoðanir á hinum ýmsu mál-
um sjeu skiptar, sem hljóta að vera meðal
frjálshuga manna. Hann kemur til að
flytja gleði og heillir til hvers einasta
manns, sem vill meðtaka hinn heilaga
anda, Hann kemur til að gefa oss öllum
hæfileika til að tala nýrri tungu, máli kam-
leikans. Hann kemur til að slökkva eld öf-
undarinnar, kalans, óvildarinnar, haturs-
ins. Hann kemur til að lægja eld ástríðn-
anna, til að slökkva þorstann eftir því, sem
er svívirðing, eftir því sem er skömm og
allra lýða tjón.
Frh.
-----------------
Sra (Piðiiuindiii' EiiiiU'Sson á Mosfelli er ný-
kominn heim frú líknarmálaþingi i Khöfn, sem
»Folkekirkeligt filantropiskt Forbund« í Dan-
mörku gekkst fyrir. Aðalumræðuefnin voru um
frjálsa líknarstarfsemi og fátækfalögin nýju í
Danmörku, en fulltrúar voru þar boðnir frá
Sviþjóð, Noregi, íslandi og Finnlandi.