Bjarmi

Ukioqatigiit

Bjarmi - 01.11.1934, Qupperneq 4

Bjarmi - 01.11.1934, Qupperneq 4
162 BJARMI hver manneskja sjálfa sig og spyr ein- göngu eftir sinni eigin löngun, og það er gagnstætt spilltu eðli mannsins, að neita sjálfum sjer um nokkuð vegna annara. - Jesús Kristur kom í heiminn til þess að umbreyta þessum kærleikslausu boðorð- um heiðindómsins. Sem fyrirmynd lifði hann hjer á jörðunni, alltaf þjónandi í kærleika, og við dauða hans á krossin- um varð þessi kærleikur að ótæmandi brunni lífsins. Og þessi nýju boðorð, sem hann gaf heiminum í þessum orðum: »Sá, sem yðar er mestur, skal vera þjónn yðar« (Matt. 23, 11. v.), eru kjörorð díakóniss- anna. Ekkert próf eða lærdómur getur á- kveðið hvort við höfum hið rjetta díakón- issu-hugarfar. 1 smámunum hversdagslífs- ins mun það sýna sig, hvort sálin hefur fengið hið rjetta lunderni Krists, sem er fólgið í að þjóna. Ætli konur nútímans hugsi nokkuð um, að frjálsræði þeirra og sjálfstæði er kristindóminum að þakka? Ef svo væri, ættu þær þá ekki af þakk- læti til Krists að láta boðorð hans leið- beina sjer í lífinu, í staðinn fyrir að mis- nota frjálsræðið eins og oft vill verða’ 1 Austurlöndum var konan aðeins þræU. 1 Grikklandi var hún talin ómerkileg vera. Það sama álit á konum kemur fram hjá öllum heiðnum þjóðflokkum, og það meira að segja hjá háttsettum, menntuðum þjóð- um, allt fram á vora daga. T. d. í Kína og Indlandi er fæðing stúlkubarns talin óhamingja fjölskyldunnar. — Vjer getum lesið um, hvernig frelsar- inn kallaði konurnar til starfsemi Guðs ríki til eflingar á hjervistardögum sínum. Þær konur, sem nefndar eru hjá Lúkasi 8, 1.—3. mynduðu fyrsta fjelagsskap kven- legrar þjónustu, er nefna mætti: hið fyrsta diakónissufjelag! — I Rómverjabr. 16, 1. kallar Páll Föbe, konuna, sem álitið er að hafi flutt brjef Páls til Róm, »þjón safn- aðarins«. Orðið »diakonos« (þjónn) er notað í N.testam. bæði í víðari merkingu um sannkristna menn almennt, »þjóna Guðs og Krists«, og í þrengri merkingu um karla og - konur, sem falið er sjer- stakt safnaðarstarf. Seinna hefur mynd- ast orðið »díakónissa«. — Föbe er fyrsta »díakónissa«, sem vjer vitum um, og það er hennar arfur, sem díakónissurnar á 20. öldinni vilja hagnýta sem best. Sömuleiðis get jeg nefnt fleiri konur, t. d.: Tabítu í Postulasögunni 9, 36., Lýdíu 16, 14. og Priskillu 18, 26. Þær þjónuðu lærisveinun- um af kærleika til Guðs. — Fleiri dæmi gæti jeg nefnt frá Nýjatestam., en á þeim dæmum, sem jeg hefi bent á, getum vjer sjeð, að þessi regla hefir verið til frá fyrstu dögum kirkjunnar. Og þó það hafi verið á mismunandi þroskastigi, sjáum vjer hvarvetna löngun eftir að þjóna hon- um, sem á að vera höfuð safnaðarins, — Jesú Kristi. Lútherskur prestur, Georg Heinrich Theodor Fliedner, f. 21. jan. 1800 í Epp- stein í Nassau í Þýskalandi, fekk köllun af Guði til að endurreisa þessa kvenlegu »díakóní« innan lúthersku kirkjunnar. Nafn hans mun alltaf verða bundið við þessa starfsemi. Faðir hans var prestur, hann átti 12 börn og var bláfátækur. 13 ára gamall missti Fliedner föður sinn. Það var skot- ið saman peningum til hjálpar fjölskyld- unni, og Fliedner var styrktur til náms, svo 17 ára fór hann að lesa guðfræði við háskólann í Giessen. öll námsárin átti hann við fátækt að búa. En á margvís- legan hátt reyndi hann, hvernig Guð hjálpar þeim, sem leita til hans í erfiðleik- um lífsins. Og þetta varð til að styrkja hann betur og betur í barnslegu trúnaðar- trausti til föðursins á himnum. — Biðja og vinna! mætti í sannleika segja um líf Fliedners frá fyrstu æsku. Kennarar hans í guðfræði, sem voru skynsemistrúar- menn, fengu Fliedner ekki til að leiðast í villu, hann lifði í trúnni á kraftaverkin og upprisu Krists. — Þegar eftir embætt- isprófið varð hann heimiliskennari hjá

x

Bjarmi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.