Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.1934, Blaðsíða 5

Bjarmi - 01.11.1934, Blaðsíða 5
B J ARMI 163 fjölskyldu einni í Köln; þar fjekk hann tækifæri til að kynnast mönnum, sem voru í biblíufjelagi. Löngunin hjá honum eftir að starfa fyrir Guðs ríki varð meiri og meiri. Og þar sem hann reyndist að hafa sjerstaka hæfileika sem æskulýðs- kennari, var honum boðin kennarastaða við einn af menntaskólunum. Þá var það, að Guð benti honum á aðra leið. Þjett við ána Rín lá lítill bær, sem heitir Kaisers- werth. Flestir, sem bjuggu þar, voru ka- þólskir. Þó var þar fámennur og fátækur evangeliskur söfnuður, sem trúði fagnað- arerindi Krists. Og það var þar, sem sem Fliedner fjekk sína fyrstu preststcðu, árið 1821. Hann átti erfitt með að trúa, að Guð vildi hafa hann þar, en svo fjekk hann fulla vissu fyrir því, og vegna hlýðni sinn- ar við Drottin tók hann þetta prestakall. Fátækur, en ríkur í Guði var hann. Fliedn- er fjekk tækifæri til á ferðalagi að heim- sækja ýmsa staði, svo sem: skóla, barna- og elliheimili og kristniboðsfjelög. Og alls- staðar sá hann, að þessar stofnanir höfðu verið reistar vegna lifandi trúar á Jesúm Iírist. Trú hans þroskaðist og hann gaf sig með lífi og sál í hendur frelsarans, og hag- aði öllu sínu starfi eftir Guðs boðum. — Fyrsta líknarstarfið, sem Fliedner tók þátt í, var á meðal fanganna. 1 Ehglandi kynnt- ist hann starfi Elísabetar Fry. Líknar- starfið í fangelsunum var þá mjög van- rækt. 1 litlum, loftlausum herbergjum voru ungir drengir lokaðir inni með göml- um og forhertum þjófum, ungar stúlkur ásamt dýpst föllnum konum. Engin kennsla, engin vinna, afarsjaldan lesið Guðs orð. I sannleika voru hegningahúsin skóli fyrir allt illt. Þrátt fyrir marga örðugleika tókst Fliedner að stofna líknarstarf á meðal fanganna í föðurlandi sínu. Það var smá- vaxið í byrjun, eins og allt í Guðs ríki, sem seinna kann að líkjast mustarðskorni og verða stórt trje. —• 1 blómgarði á prests- setrinu var lítið skrúðhús, sem var kallað »vaggan«. Þar varð fyrsta hæli fyrir fanga, sem komu frá fangelsunum. Kona Fliedners, sannkristin kona, varð honum til mikillar hjálpar og aðstoðar í starfinu. Síðar hófst aðal líknarstarf sra Fliedn- ers: Stofnun kvenlegrar, krístilegrar »día- kóni« innan þjóðkirkjunnar! — Hann hafði sjeð sjúkrahús úr skínandi marmara en konur þær, sem hjúkruðu, voru ómennt- aðar og ákaflega óþrifnar. Lifnaðarhætt- ir voru sjerstaklega ljótir, og þar var alls ekki borin nein umhyggja fyrir hinni and- legu velferð sjúklinganna. — Fliedner leitaði ráða hjá ýmsum embættismönnum í borgum Þýskalands, því að honum fannst ómögulegt að byrja slíkt starf á fámenn- um og afskekktum stað eins og t. d. Kais- enverth. En alstaðar var honum tekið fá- lega. Að síðustu sannfærðist hann um, að Drottinn hefði lagt þetta endurreisnar- starf í hendur hans. Honum var það ljóst, að til þess að ná fullu takmarki, yrði hann fyrst og fremst að stofna hjúkrunarskóla fyrir ungar stúlkur, sem ætluðu að verða díakónissur. Vorið 1836 keypti hann stærsta húsið í Kaiserwérth, án þess að eiga einn eyrir til þess að borga með, en í fullu trúnaðartrausti til Drottins að hann mundi hjálpa. Kaþólskir menn hæddu hann og evangeliskt fólk varð for- viða og spurði, hvort hann ætlaði að stofna nunnuklaustur innan þjóðkirkjunnar. En Fliedner svaraði: »Að dæmi postulanna og eftir þeirra fyrirmynd viljum vjer láta díakónissur vinna að kristilegri líknar- starfsemi. Og vjer viljum bæta allra þarf- ir, t. d. barna, unglinga, sjúkra og fá- tækra, sömuleiðis fanga, bæði í fangels- um og þegar þeir eru þaðan lausir. Og til þessa starfs viljum vjer mennta ungar stúlkur.« - Áhuginn vaknaði, fjegjafir komu víðsvegar að, og þegar húsið átti að borgast, var öll upphæðin til. 13. okt. 1836 var þessi fyrsta díakónissa-

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.