Bjarmi - 01.11.1934, Blaðsíða 15
BJ ARMI
173
[Niðurlag frá bls. 168].
og fara til föður míns«. Jeg hefi kynnst
mörgum sem eru í þessum flokk. Þar var
hinn »ríki ungi maður« sem kom einu sinni
til Jesú, en gat ekki yfirgefið fjársjóð sinn.
I þriðja flokknum eru þeir sem eru alveg
tilbúnir til að yfirgefa heiminn og ná sam-
fjelagi við Guð.
»Jeg vil« er einkunnarorð þeirra. Það er
allt af eitthvað karlmannlegt við þá. Þeir
vita hið rjetta og þora að fylgja sannfær-
ingu sinni.
Það er nauðsynlegt fyrir þig vinur, hver
sem þú ert, að grenslast eftir því í hverjum
flokki þú ert. Eða ef til vill ert þú sæll
að þú lifir í samfjelagi við Föður þinn
á Himnum.
Guð gefi þjer kraft til að sjá sannleik-
ann gagnvart sjálfum þjer og svo taka
ákvörðun þína.
Ekkert er sorglegra en að draga sjálfan
sig á tálar. Guði sje lof fyrir að Föður-
húsið er opið enn þá og að allir, allir hafa
tækifæri til að hlotnast eilífa sælu í sam-
fjelag'i við Drottinn.
Albert Ólafsson.
Hvaðanæva.
GuðfræxHsprófessorariiii' Sigurður P. Sivertssen
og Ásmundur Guðmundsson dvöldu i ágúst og
september s. 1. í Englandi til að kynna sjer vis-
indastörf enskra guðfræðinga við ýmsa háskóla,
og heimsóttu auk þess nokkrar mannúðarstofn-
anir eða hæli fyrir vanþroska unglinga. Jafn-
framt lögðu þeir drög fyrir að ísl. guðfræðingar
gætu komist í þær háskóladeildir (college), sem
veita sjerstakan undirbúning undir prestsstarf.
Barnavcrs úr Passíusálm. Landsnefnd Hall-
grímskirkju hefir fengið sra Árna Sigurðsson til
að velja versin; hefir það tekist vel, og er von-
andi að þetta kver stuðli að því að börnin læri
meira »í dag« úr Passíusálmunum en þau gjörðu
flest »1 gær«. Kverið er 138 bls. í litlu broti
og kostar bundið 2 kr. BO aura.
Aðalkristniboðsfjelag Norðmanna er rekur
kristniboð I Kina, á Madagaskar og i Zúlulandi
og Súdan er stutt af 7137 smáfjelögum um endi-
langan Noreg. Meiri hlutinn, eða 4665, eru trú-
boðsfjelög kvenna, 1052 fjelög eru »almenn<
(karlar og konur), 267 æskulýðsfjelög og 1153
barnadeildir, halda flest þessi fjelög mánaðar-
fundi. Kristniboðar fjelagsins eru 92 karlar og
61 ógiftar konur.
Árið 1933 voru gjafirnar til fjelagsins 1,534,000
kr. nokkrar og aðrar tekjur 100 þús. kr. þar af
fóru beinlínis til kristniboða og kristniboðsskóla
1,220,000 kr., stjórnar og skrifstofukostnaður 50
þús. kr. og tl starfsins heima fyrir (ferðaprje-
dikara o. fl.) 414 þús. kr.
Dæmd fyrir svlk. f Kaupmannahöfn voru Spir-
itistaprestur að nafni Alfred Nielsen og kvenmið-
ill, sem verið hefir í vitorði með honum, dæmt
hvort um sig, i 18 mánaða hegningarhúsvist,
fyrir að hafa svikið fó út úr ekkjufrú einni.
Komst rjetturinn að þeirri niðurstöðu, að þau
hefðu haft fjeð af henni með því, að telja henni
trú um, að henni bæri að láta það af hendi sam-
kvæmt vitrunum úr öðrum heimi.
fitburdur barna er alltíður í öllum heiðnum
löndum enn 1 dag. í stórborgum Austurlanda
m& oft heyra barnsgrát frá sorphaugum. Smá-
börn, vafin druslum, hafa verið lögð þar að næt-
urlagi og alveg látið ráðast, hvort nokkur hirðir
þau eða ekki.
Kristið fólk, aðkomið og innlent, fer oft á
morgnana að lfta eftir þessum »útburðum« og
bjargar þeim sem kraftar leyfa.
Árið sem leið hefir á þenna veg verið bjargað
um 24000 nýfæddum börnum í borginni Shanghai
í Kína, sem út voru bor.in, eða um 66 á dag.
Þykir Kfnverjum það allmikið, þótt þeir sjeu
ýmsu vanir. Er því um kennt, að hallæri sje svo
mikið í borginni, að þúsundir manna geti ekki
sjeð fyrir börnum sínum, en stjórnin bannar að
drepa börnin beinlínis.
Við biskiipskosiiingu f Khöfn í vor sem leið
voru greidd 2196 atkv. — Prestar og sóknarnefnd-
armenn hafa atkvæðisrjett.
Stiftprófastur Fuglsang-Damgaard dr. theol.
fjekk J287 atkv. Rúsendal prófastur 796. 20 at-
kvæði skiftust milli 8 annara kennimanna, 83
seðlar voru auðir og 10 ógild. Samkvæmt lögum
er kirkjustjórnin skyld að veita biskupsembættið
þeim sem fær 2/3 hluta greiddra atkvæða.
Grundtvigsmenn og jafnaðarmenn studdu Rós-