Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1964, Blaðsíða 6

Bjarmi - 01.03.1964, Blaðsíða 6
6 BJARMI kristiiiunar Hungurvorkfall Þrjúhundruð sjúklingar í holdsveikraný- holdsveikra. lendu á eynni Ceylon hafa hótað hungur- verkfalli til að mótmæla fyrirætlun stjórn- arvaldanna um að vísa úr landi síðasta hópi kaþólskra nunna, sem vinna að hjúkrunarstörfum í landi þessu, en þjóðin er búddatrúar. Árið 1962 gáfu stjórnarvöldin á Ceylon út fyrir- skipun um það, að allar kaþólskar nunnur yrðu að láta af störfum í sjúkrahúsum, holdsveikranýlendum og öðrum lækn- inga- og heilsuverndarstöðvum, og yrðu nunnarnar að hætta störfum fyrir 15. marz 1964. Þessi skipan stjórnarvaldanna var hluti af áætlun þeirra um að láta alla erlenda kristniboða hverfa úr landi. Ríkisstjórnin hefur á þessu tímabili tekið í sínar hendur alla kristna skóla, bæði mótmælenda og rómversk-kaþólska. Rcknir 1 „Bjarma" hefur nokkrum sinnum verið sagt frá Súdnn. frá þeim erfiðleikum, sem kristnir menn í Suð- ur-Súdan hafa átt við að búa af hálfu ríkis- valdsins í Súdan. Valdhafarnir þar eru ákveðnir múhameðs- trúarmenn og hafa gjört múhameðstrú að ríkistrú. Hafa þeir sett sér það mark að flæma kristniboða úr landi og undiroka íbúa Suður-Súdan. Þar hefur kristnin náð sterkustum tökum, og er talið, að íbúar suðurhéraðanna séu sjálfstæðastir og mennt- aðastir alls almennings í landinu. Samkvæmt síðustu opinberu fregnum hafa stjórnarvöldin nú rekið alla kristniboða úr landi. Saka þeir þá um stjórnmálaleg afskipti, en vitað er, að hér er eingöngu um að ræða framkvæmd áætlunar ríkisstjórnarinnar um, að landið skuli verða einlitt múhameðstrúarland. Þá er og þetta einn þátturinn í að undiroka minnihlutaþjóðflokkana, sem búa í héruðunum suður við suðurlandamæri Súdan. Þiðvidri Eftir því sem segir í norska blaðinu „Várt Land“, á Spáni. virðist nýtt þiðviðri gjöra vart við sig í afstöðu spænskra stjórnarvalda til mótmælenda þar í landi. Leyft var að opna á ný tíu kirkjur mótmælenda. Hafa kirkjur þessar um langt skeið verið lokaðar samkvæmt skipun valdhaf- anna. Þá hafa og yfirvöldin leyft að fluttar sé inn í landið fjórar guðrækilegar handbækur mótmælenda og tvær hugleið- ingabækur þeirra. Er ætlunin að prenta þær á Spáni. Áður hafði verið skýrt frá því, að árið 1963 hefði verið leyft að opna þrettán kirkjur mótmælenda á Spáni. Þá telst það og til tíð- inda, að stjórnarvöldin hafa leyft að gefinn verði út Bibiíu- bréfaskóli. Um tvennt að velja Kristur er upprisinn! * Eg er hræddur að deyja Það var víst Knut Hamsun, sem sagði einhverju sinni þessi orð: „Það er það hræðilegasta, sem ég veit — að deyja. Ég skyldi sann- arlega koma mér hjá því, ef ég væri ekki til neyddur." Þegar slikar tilfinningar bærast með trúuðum manni, verka þær stundum eins og sálarhrelling. Því að hver af oss getur sagt, að hann sé algerlega laus við, að óttinn við dauðann berji að dyrum við og við, einnig hjá þeim, sem lifir lífi trúarinnar með Guði? Og þá kann spurningin að vakna: Er það eðlv- legt, að kristinn maður óttist dauð- ann? I sambandi við þetta ber að at- huga tvennt: Það er fyrst, að dauð- inn er óvinur. Einnig kristnum, mönnum. Þegar ég sé líf mitt í ljósi hins upprunalega sköpunar- verks Guðs, er dauðinn svo sann- arlega óeðlilegur. Á morgni tím- ans skipaði dauðinn ekkert rúm í sköpunarskipan Guðs. Það var syndin, sem gjörbreytti öllu (1. Mós. 2,17. Róm. 5,12, 6,33). Veraldarvizkan viðurkennir ekki þann boðskap, að dauðinn sé af- leiðing af staðreynd syndarinnar. En bæði kennir Biblían þennan sannleika og meira en það, nefni- lega, að dauðinn er dómur Guðs yfir syndinni, bæði hinn tímanlegi dauði og hinn eilífi. Er það þá svo undarlegt, að jafnvel trúaður maður geti orðið uggandi? „Vegna reiði Guðs hljót- um vér að skelfast og óttast dauð- ann, því að hann er refsing synd- arinnar“, segir Lúther. í annan stað er þess að gæta, að Guð veitir ekki heldur trúuð- um mönnum hjálp — fyrir fram — til að deyja. Dauðvona kristinn maður orðaði þetta einhvern tíma á þessa leið: „Eg hugsa mér, að Guð hagi þessu eins og faðir, sem á stúdent við háskólann. Hann vill gjarnan fá hann heim um jólin, en hann sendir honum ekki pen- inga til ferðarinnar fyrr en í des- ember. Hvers vegna skyldi hann ganga með peningana hringlandi í vösunum, löngu áður en hann þarfnast þeirra?" Vertu þess fullviss, ef þú ert í samfylgd Jesú, að hann, sem varð- veitir þig, meðan þú ert enn á leiðinni, hann muni veita þér þann Framh. á 7. síSu. En með þvi út var leiddur alsœrður lausnarinn, gjörðist mér vegur greiddur í Guðs náðar ríki inn og eilíft líf annað sinn; blóðskuld og bölvan rrúna burt tók Guðs sonar pína. Dýrð sé þér, Drottinn minn. Passíusálmur 25, 9. v. 1 rauninni þyrfti ég ekki að hafa þennan vitnisburð minn lengri, vegna þess að þetta eina vers inni- heldur allt það, sem ég hef að segja. — Og hvers vegna get ég gjört þessi orð að mínum vitnisburði? — Hef ég nokkuð til þess unnið, hef ég lagt nokkuð inn hjá Guði, hef ég áunnið kærleika Guðs í Kristi Jesú með verkum mínum? — Nei, og aftur nei. — Það er allt af náð, án eigin verðskuldunar, að- eins af náð. Ég hef þegið frelsið í Kristi Jesú, en hvað hef ég gefið í staðinn? Ekkert nema mitt synd- um spillta hjarta.--------- 1 skírninni var ég færð Guði. Ég var borin þangað af trúuðum foreldrum. Þeim var það Ijóst, hvað þau voru að gera. Þau tóku orð Jesú gild, þar sem hann segir: „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim það ekki, því að slíkra er guðsríkið" (Mark. 10,14). — Þau stóðu frammi fyrir Guði og frammi fyrir söfnuði Guðs og lofuðu að veita mér kristilegt uppeldi. Og það loforð héldu þau. Mér finnst ég geta tekið undir orð- in, sem standa í Sálm. 22,11: „Til þin var mér varpað frá móður- skauti, frá móðurlífi ert þú, Guð minn.“ Þau báru mig á bænarörm- um og þau bentu mér á frelsarann, á það, hvað hann hafði fyrir mig gjört. Að hann hefði gefið líf sitt til lausnargjalds fyrir mig. En svo kom að því, að ég átti sjálf að staðfesta skírnarheitið. Nú gat ég ekki lifað á trú foreldra minna, nú varð ég sjálf að taka afstöðu. Ég kunni söguna um Jesúm. Ég vissi, að hann hefði liðið og dáið mín vegna. Mér var það samt snemma ljóst, að það eitt var ekki nóg, að vita. Ég varð sjálf að taka afstöðu, ég varð að trúa, ég varð að gefast Guði algjörlega. Um fermingaraldur hugsaði ég mikið um endurkomuna. Ég hugs- aði mikið um orðin í Matt. 24, 40 —42: „Þá munu tveir vera á akri; annar er tekinn og hinn skilinn eftir. Tvær munu mala í kvörn; önnur er tekin og hin skilin eftir. Vakið því, þar eð þér vitið eigi, hvaða dag herra yðar kemur.“ Við systurnar sváfum í sama herbergi, og ég vissi, að hún hafði eignazt sitt afturhvarf, en ég ekki, og þess vegna óróuðu þessi orð mig og töluðu mikið til mín. Eitt sinn spurði ég mömmu, hvernig það væri með börn, sem ættu trúaða foreldra, hvort þau yrðu skilin eftir, þegar Kristur kæmi að sækja sína? — Þá svaraði mamma eitt- hvað á þá leið: „Það getur enginn lifað á trú annarra. Við verðum að taka eigin afstöðu, með eða á möti. Við getum ekki verið hlut- laus.“------ Þetta olli mér mikilli baráttu. Mér varð það ljóst, að það var ekki nóg að sækja kristilegar sam- komur af trúmennsku. Það var ekki heldur nóg að taka þátt í kristilegu starfi. Ég verð að gefa Guði líf mitt. Ég varð að leggja alla mína æskudrauma í hans hend- ur, og einnig varð ég að leggja mína viljans tauma í hans hendur. Ekki aðeins að biðja hann um að blessa minn vilja, en að spyrja um hans vilja með lífi mitt, að biðja hann um, að hans vilji mætti ávallt verði minn vilji í einu og öllu, i smáu og stóru.------- Það er oft erfitt að beygja sig undir Guðs vilja, en það er án efa það allra bezta. Við skiljum ekki alltaf, þegar Guð agar okkur — en við vitum, að Drottinn agar þann, sem hann elskar.------- Þegar ég lít til baka yfir þau ár, sem ég hef verið í fylgd með Jesú, þá hlýtur hjarta mitt að fyllast undrun og þakklæti yfir, hve Guð hefur verið mér þolinmóður og gæzkuríkur. — Hve oft hef ég ekki hrasað, hve oft hef ég ekki óhlýðnazt að vitna um Drottin minn og frelsara! — Hve oft hef ég ekki reynzt ótrú — en Drott- inn er samt trúr. Það er svo gott að vita það, að Drottinn rekur engan burt frá sér, sem til hans leita.------ Það er niðurlagið á 3. versi í 24. Passíusálminum, sem mér þyk- ir svo vænt um, sem veitir mér svo oft styrk, þegar ég ætla að hníga: athvarf mitt jafnan er til sanns undir purpurakápu hans; þar hyl ég misgjörð mína. Þegar ég stend frammi fyrir dómstóli Guðs, þá stendur Jesús þar í minn stað frammi fyrir heil- ögum og réttlátum Guði og segir: „Ég hef hulið misgjörðir hennar undir purpurakápu minni,“ Guð horfir á mig í gegnum Jesú. — „Réttlættir af trú höfum vér því frið við Guð fyrir Drottin vorn Jesúm Krist.“ Róm. 5,1. Að endingu langar mig til þess að beina einni spurningu til þín. — Hvað ætlar þú að gjöra við Jesúm, sem Kristur er kallaður? — Ætlar þú að taka á móti honum í trú eða ætlarðu að hafna honum? Það er aðeins um tvennt að velja. Kristín Pálsdóttir.

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.