Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.01.1970, Page 3

Bjarmi - 01.01.1970, Page 3
Sjatni KRISTILEGT BLAÐ Kemur út einu sinni í mánuði, 16 siður nema sumarmánuðina. Þá 8 síður. Árgjald kr. 120,00. Gjalddagi 1. maí. Afgreiðsla Amtmannsst. 2B, Reykjavik Pósthólf 651. — Símar 17536 og 13437. Ritstjórar: Bjarni Eyjólfsson og Gunnar Sigurjónsson. Prentað i Prentsmiðjunni Leiftur h.f. Efni tn. Miskunna þú mér ................. 2 1 örum vexti .................... 3 Bréf frá Helga Hróbjartssyni 4 og 15 Konsófréttir ................. 6,7 Vitnisburður Kínverjans ......... 8 Or erlendum blaðagreinum .. 10,11 Smáhenti Anderson (saga) ....... 12 Fréttir ........................ 14 Minningar frá starfsferli ...... 16 Framhaldssagan ................. 20 Lækningabæn .................... 22 Félagshús K.F.U.M. og K..........27 Xtvstu hlaiY tn. «.: Utan úr heimi, saga, bænavers, bréf ijj frá kristniboðum, páskahugleiðing, ;j| föstuhugleiðing. Næsta blað kemur ii: væntanlega út um miðjan marz-mán- jjj uð og verður páskablað. jjj Ó(fvvidtl áshriftagjöld hafa um langt skeið ekki verið eins jjj mörg hjá kaupendum Bjarma eins og jij síðast liðið ár. Kvittanir þó nokkuð iii margra kaupenda í Reykjavik fyrir iii greiðslu ársins í fyrra bíða á af- jii greiðslu blaðsins eftir þvi, að þær jii verði greiddar. Eru það vinsamleg til- jjj mæli, að kaupendur í borginni, og þá jjj einkum í úthverfunum, athugi, hvort jjj þeir eigi blaðið frá í fyrra ógreitt, og ij; greiði það við fyrstu hentugleika. Kristniboðsvika t Itrijkjavíh. Um margra ára skeið hefur kristni- ii; boðsvika verið í Reykjavík í október- jjj eða nóvembermánuði. Nú, þegar jjj kristniboðsdagurinn hefur verið færð- jjj ur tU, hefur verið ákveðið, að kristni- jii boðsvikan skuli vera síðari hluta vetr- jjj ar. Hefur verið áhugi á því, að hún jjj yrði á einhvern hátt tengd pálma- jj; sunnudegi, þar eð hann hefur um svo jjj langt skeið verið helgaður kristniboði jjj hér í borg. Samkvæmt því er í ráði, jjj að kristniboðsvika verði hér i borg- jjj inni dagana 15.—22. marz. Endar hún jjj þá á pálmasunnudegi. Nánar verður jjj um vikuna auglýst i blöðum, þegar jjj þar að kemur. í ÖRUM VEXTI Kristniboðiö í Eþíópín er í örum vexti. Vér íslenzkir kristni- boðsvinir verðum þess varir í sívaxandi þörf þess. Starfsliði og stofnunum fjölgar, framfœrslukostnaður þar í landi hœkk- ar, eins og annars staðar. Því er ekki að neita, að stundum fer ekki hjá þvi, að Tcvíði lœðist að, þegar hugsað er um vaxandi þörf. Á árinu sem leið greiddi Samband íslenzkra kristniboðsfélaga nálœgt tveim milljónum og eitthundrað og fimmtxu þúsund krónum í sam- bandi við yfirfœrslur til starfsins í Konsó og Gidole. Það er ótrúlegt, að slíkt skuli hafa tekizt, þegar þess er gœtt, hve hagur margra þrengdist á s.l. ári og hve fámenn samtök is- lenzkra kristniboðsvina eru. Auk þessarar upphœðar greiddu þau tveim ferðastarfsmönnum laun og ferðakostnað. AfgreiSslu- kostnaður varð og óumflýjanlega nokkur, þótt hverfandi lítiU sé móts við það, sem eðlilegt telst í öllu félagsstarfi. Enginn kristniboðsvina mun vera í vafa um, hvex't beri að beina þakklœti fynr það, sem starfinu gafst á Uðnu ári. Þeim getur ekki dulizt, að þar var Guð að verki. Hann heyrði bænir. Hann vakti kœrleika í hjörtum, sem báru skerf sinn fram með gleði og þakklœti til Drottins. Bumbur voru ekki barðar. — Það eina, sem leitað var út fyrir starf kristniboðs- félaganna, var fjársöfnvnin á kristniboðsdaginn, sem að þessu sinni var 9. nóvember. Er Ijúft að þakka þcei' undirtektir, sem sú máláleitun fékk og þær gjafir, sem bárust, en þœr eru orðn- ar nokkuð á annað hundrað þúsund, þegar þetta er ritað. Þegar lit.ib er á gjafastrauminn og aðstœður allar, fer ekki hjá því að kunnugir scgi: „Þetta er gjört af Drottni og það er undursamlegt t augum vorum.(< Fátt hefur auðgað íslenzka kristniboðsvini eins og framlög þeit'ra til kristniboðsins. Sú fjárfesting hefur fœrt þeim lifandi fögnuð og þakklœti t hjarta. Það hafa verið óverðskúlduð foiréttindi að hafa fengið að taka þátt í þessu. Vér þökkum Guði sameiginlega fyrir þá blessun, sem hann veitti íslenzka kristnibcðinu á árinu 1969. Vér þökkum einnig undursamlega varðveiziu hans á starfsmönnum vorum í Eþí- ópíu. Og vér, sem önnumst daglega afgreiðslu fyrir kristni- boðið, þökkum samstarf og skerf yðar allra, sem þar hafið verið að verki. Og nú er nýtt starfsár — 1910. Enn fengum vér tilnweli frá kristniboðunum um aukið framlag. Samkvœmt fjárhags- áætlun þeiiTa fyrir þetta ár þarf starfið í Konsó og Gidole um tvær milljónir og fjögurhundruð þúsund krónur. — Það er „svimandi(( u-pphœð í vorum augum. Enn sem fyn' er eitt megin wræði: „Fél Drottni vegu þina og treyst honum. Hann mun vel fyrir sjá.(( Biðjum eins og ékkert stoði nema bæn og störfum eins og ekkert stoði nema strit vort. Verkefnið er ofviða oss, og samt mun það takast, ef vér tökum til vor orð Jesú: „Vertu ékki hræddur, tríiðu aðeinsV Leggjum höndina á plóginn og leggjum af stað í nýjan áfanga í trausti til hans, sem segir: „Lítið á akrana.“ Þá mun vel vegna einnig í ár, þótt verkefnið virðist oss oft ofvaxið. Drottni er ekkert ómáttugt. II J a n M I 3

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.