Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.01.1970, Side 4

Bjarmi - 01.01.1970, Side 4
,,Ég kom til þess að gerast kristinn“ Awasa, 10. sept. 1969. Kæru vinir. Það er orðið langt síðan ég skrifaði síðast. Samt vona ég, að þið hafið haft einhverjar spurnir af okkur þennan tíma, sem liðinn er. Þau skiptin, sem ég hef áður skrifað, skrifaði ég frá Irgalem. Nú hefur kristniboðið flutt okkur suður á bóginn á stað, sem heitir Waddera. — Fyrir 4 árum kom hingað fyrst kristniboði, sem hóf starfið og byggði kristniboðsstöðina. Hef- ur lítill söfnuður einnig verið stofnaður. Waddera-hérað er gróður- sælt, sérstaklega fyrir norðan stöðina, en þar eru víðáttu- miklir skógar, sem teygja sig tugi kílómetra yfir hæðir og dali. — Eina dagleið fyrir aust- an stöðina rennur „Fljótið mikla“ (,,Ganale“ á Gallamáli). Fljót sem rennur alla leið til Indlandshafsins. 1 vestri renna fleiri fljót og ár. Þekktast þeirra er ,,Dawa“. 1 þessu héraði býr þjóðflokk- ur, sem heitir Gudji, harðgert fólk, sem lifir ennþá að mestu í skógunum. — Margt bendir til þess, að Gudji-menn hafi sinn vitjunartíma núna. Fólk kemur langar leiðir til þess að, gefa það til kynna, að það vilji trúa á Guð og snúa sér frá heiðn- Helgi Hróbjartsson, lcristniboði, sem starfar hjci Norslca lútherska kristniboðssambandinu, hefur ritað kristniboðs- vinum á Suðurnesjum tvö bréf, þar sem hann segir frá starfi sínu í Eþíópíu. Bjarmi fékk bréfin lánuð, til þess að fleiri vinum Helga gœfist kostur á að lesa þau. Birtist annað bréfið hér i opnunni, en hitt á bls. 15. inni. — Það líður varla sá sunnudagur, að ekki komi ein- hver í þessum erindagjörðum. Það var einn sunnudag, að við áttum eftirminnilega guðs- þjónustu. Texti dagsins var um Pétur postula, þar sem Jesús sagði við hann: „Legg þú á djúpið“. 1 lok samkomunnar stóð upp gömul kona, sem skalf svo mikið, að það var eins og hún gæti ekki staðið. — Hún vildi gerast kristin. Gamla konan kastaði í gólfið hálm- festi, sem áður hafði verið helg- uð djöfladýrkuninni. — Ég gat ekki tára bundizt að sjá þessa gömlu konu. — Með þessu braut hún allar gamlar venjur — venjur, sem höfðu gengið í arf frá kynslóð til kynslóðar. — Hún hafði komið gangandi 4—5 tíma til þess að hlusta. Hvað var það, sem rak hana af stað í þessa erfiðu gönguferð? — Ég held helzt, að það hafi verið neyð hennar, neyð sem enginn getur bætt úr nema Jesús.------Síðan þetta gerð- ist, hefur þessi gamla kona komið á hverja guðsþjónustu. Dag einn fór ég í eins konar könnunarferð út í hérað ásamt þrem eþíópskum samstarfs- mönnum. Þá komum við inn í strákofa. Þar sat gamall, blind- ur maður með bláa hálsfesti og marga hringi á handleggjunum. Gamli maðurinn tók vel á móti okkur og sagði, að það væri í raun og veru lítið, sem hann gæti borið á borð fyrir útlend- ing. Við sögðum honum, að við kæmum frá kristniboðsstöðinni og að okkar erindi væri fyrst og fremst að segja honum frá Guði. Hann kallaði þá á fjöl- skyldu sína til þess að hlusta á það, sem útlendingurinn hafði að segja. — Eftir að við höfð- um haft hugleiðingu og sungið einn söng, sagði ég við gamla manninn, að hann ætti að reyna að koma á sunnudags- guðsþjónusturnar okkar, því þar myndi hann fá tækifæri til þess að heyra meira um Guð. 4 B JARMI

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.