Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.01.1970, Side 12

Bjarmi - 01.01.1970, Side 12
Hann var alltaf kallaður Lilli, og enginn var í efa um, við hvern væri átt. Að minnsta kosti enginn í þeim vinnuflokki, þar sem Anderson hafði hlotið þetta nýja nafn. Engum datt það í hug, að raunverulega héti hann Olaf Anderson. Þeir hugsuðu heldur ekki mikið um það, að hann féll eiginlega ekki alls kost- ar inn í félagahópinn eins og hinir. Þeir litu á hann sem ein- hvern sérvitring, svona dálítið einkennilegan mann, án fót- festu í hinum kalda heimi veru- leikans. Það var raunverulega ekki takmörkuð hæð Ölafs Ander- sons, sem hafði veitt honum þetta óhjákvæmilega viðurnefni. Það voru hendurnar á honum. Jafn litlar hendur og hendur Andersons voru venjulega ekki á karlmannshandleggjum. Litlar, mjúklegar kvenhendur voru sumar hverjar stærri en hendur Andersons aðstoðareim- reiðarstjóra, og auðvitað tóku karlmenn eftir þessum sérkenn- um, því að þeir voru vanir hand- tökum, þar sem beita þurft kröftum við hemlun og að vera sífellt með smurolíukönnurnar. Þegar Olaf Anderson, rúmlega tvítugur piltur, kom inn í bið- stofu járnbrautarstarfsmann- anna á járnbrautarstöðinni og lét nestisboxið sitt á borðið, horfðu margra augu á þessar litlu hendur, sem voru alveg ein- stæðar. Þeir sögðu ekkert. Ekki fyrsta daginn. En annan daginn. Þá byrjuðu spurningarnar. Þeir vildu fá að vita, hvernig Anderson héldi höndum sínum svona hvítum og hreinum, og hvers vegna þær væru svona litlar og grannar eins og á ung- mey. „Ertu alltaf með hanzka, þeg- ar þú gerir eitthvað?" sagði einn. Olaf Anderson brosti, en hann roðnaði dálítið í framan. „Stundum hef ég það,“ sagði hann, „en ekki alltaf.“ „Þær eru eitthvað svo fínleg- ar og hvítar að sjá,“ sagði Per- son eimreiðarstjóri og leit á hendur sínar, sem voru kafloðn- ar og brúnleitar. „Ekki get ég fengið svona hendur. Það er ekki hægt, þegar maður á að sjá um eimlest. Þá er ekki hægt að gæta handanna svona vandlega, ef maður á að afkasta einhverju.“ Anderson handsmái vissi mjög vel, að hendur hans hæfðu ekki alls kostar venjulegum eim- reiðarstarfsmönnum. Það hafði hann fengið að heyra frá upp- hafi, þegar hann byrjaði starf sitt sem aðstoðareimreiðar- stjóri. Olaf Anderson þurfti eins og oft áður að segja dálítið um hendur sínar, og til hvers hann notaði þær, þegar hann væri ekki að stjórna lest. „Því er sem sé þannig farið, að ég leik á fiðlu,“ sagði hann og bros hans var eins og endur- skin litlu, hvítu handanna. „Það er ekki gott, ef maður fær stirða og olíuborna fingur. Það bitnar á leiknum. Þess vegna reyni ég að hirða þær eins vel og ég frek- ast get ...“ Nokkrir kinkuðu kolli og virtust skilja, hvað um væri að ræða, en einn starfsfé- laganna hélt áfram að spyrja. „1 hvaða danshljómsveit ert þú?“ Því var nú þannig farið með Anderson, að hann vann ekki í hljómsveit. Hann lék á hljóð- færi. Og hann lék meira að segja ekki í danshljómsveitum. Hann lék í orkestri. „Ég leik í orkestri fríkirkj- unnar,“ sagði hann og brosti enn sínu bjarta brosi. — „Ég er fyrsta fiðla . . .“ Olaf Andersson hafði alltaf keppt að því að komast í sæti fyrstu fiðlunnar, enda þótt hann hafi í fyrstu látið sér nægja ann- arrar fiðlu sess. Þegar hann náði í fyrstu fiðlu, varð hann gagn- tekinn svo mikilli hamingju, að hann hafði aldrei rennt grun í neitt slíkt. Hinir kinkuðu nú ekki lengur kolli. Nú hristu þeir höfuðin. Þeir skildu, hvers konar hljómlistarmaður hann var. Þegar nokkur tími var liðinn, vissu þeir nær því allt um And- erson með litlu hendurnar. Þeir vissu, að hann var í fríkirkj- unni, að hann lék fyrstu fiðlu i fiðlusveitinni, og hann var í hópi þeirra, sem oft spenntu greipar til bænar. Nokkrum mánuðum seinna vissu þeir einnig, að Anderson var ekkert hrifinn af því, að vera gerður eimreiðarstjóri á litlu lestinni, þar sem eingöngu var fluttur varningur og helzt kol. Hann kunni yfirleitt ekki við sig þar, sem menn urðu sót- ugir og mjög óhreinir. Anderson var mjög varkár og hlédrægur eins og hendur hans voru litlar og lítið áberandi. SMAHENTI ANDERSON 12 BJAUMI

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.