Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.01.1970, Page 22

Bjarmi - 01.01.1970, Page 22
Hann varð ekki karlægur. Enn var hann at- hafnasamur. Enn var hann í fyrirtæki sínu. Enn sótti hann mikilvæga fundi í félaginu. En starfsdagurinn var brátt á enda. Þegar leið að hausti, fékk hann ekki að búa lengur í Lundúnum. Læknarnir mæltu svo fyrir, að hann skyldi fara til lítils baðstaðar á suður- strönd Englands, Torquay. 1 síðasta sinn gekk hann um hið mikla fyrir- tæki sitt. Hann leit nákvæmlega eftir öllu. Rétt áður en komið var að brottför, hitti hann gaml- an viðskiptavin utan úr sveit. Hann tók í hönd hans, þrýsti hana lengi og sagði hægt: — Verum trúir allt til enda! Sir Georg var ekki lengi í Torquay. Heilsu hans fór að hraka, strax og hann kom þangað. Og 6. nóvember 1905 andaðist hann. Hann var eitt af mikilmennum Englands. Síð- asti virðingarvotturinn var honum sýndur, þegar hann fékk legstað í grafhvelfingu Pálskirkjunn- ar. Hann hvílir rétt hjá tveimur þjóðhetjum Eng- lands, Nelson og Wellington. Sir Georg Williams var maður mikilla hug- sjóna. En draumóramaður var hann ekki. Allri ævi sinni varði hann til þess að ná þeim mark- miðum, sem Guð hafði sett honum. Orð, sem hann lét sjálfur falla, gætu vel verið einkunnarorð ævi hans: „Ekki ber að keppa að því að gera sem allra minnst, heldur sem allra mest — öðrum til heilla!“ SÖGULOK. Lækningabæn Bjarni M. Brekkmann hefur beðið blaðið að geta þess, að Ijóðabók hans sé komin út. Fæst hún hjá höfundi, sem býr á Laugavegi 24B í Reykjavík. Jafnframt sendi hann blað- inu eftirfarandi bæn um lækn- ingu, en bænin er tengd guð- spjallinu um lama manninn, sem Jesús læknaði, og sagt er frá í upphafi 2. kafla Markúsar- guðspjalls. LÆKNINGABÆN Guð minn, ég trúi á þig, vegna þess að þú ert sann- leikurinn sjálfur. Ég treysti þér, af því að þú ert svo góður og trúfastur í fyrirheitum þín- um. Og ég elska þig af öllu mínu hjarta, vegna þess að þú ert óendanlega elskuverður. Ég þakka þér af öllu hjarta fyrir allar þínar velgjörðir, sem þú hefur auðsýnt mér. Sérstaklega fyrir það, að þú hefur vemdað mig í nótt og í dag. Varðveit mig frá hvers konar hættum. Ég bið þig auðmjúklega um fyrirgefningu allra minna synda, sem ég hefi andstyggð á, eingöngu af kærleika til þín, af því að þér mislíka þær. Að síðustu fórna ég þér í dag öll- um mínum hugsunum, orðum og verkum. Allt það er ég verð að þola, vil ég bera með þolin- mæði og með undirgefni undir þinn heilaga vilja. Veit mér, Guð, þína blessun. Tak mig undir vernd þína og varðveizlu og gef mér þá náð að lifa þenn- an og alla aðra daga ævi minn- ar, án þess að móðga þig. Guð minn góður, í þínar hendur fel ég sálu mína. Þú hefur endurleyst hana með þínu dýrmæta blóði. Ég bið þig: frelsa þú hana. „ Af kærleika til þín, Jesús Kristur, iðrast ég minna synda. Vertu mér náðugur, vertu mér miskunnsamur. Fyrirgefðu mér allar minar syndir. Minnstu alls þess, ljúfasti Jesús, er þú hefur gjört til þess að frelsa sálir vorar og láttu þær ekki tortímast. Minnstu þíns óendan- lega eilífa kærleika til þeirra og hrind ekki frá þér þeim sál- um, sem koma til þín, stynj- andi undir byrði eymdar sinn- ar og niðurbeygðar af svo mik- illi þjáningu. Virztu að hrær- ast til meðaumkunar með oss og minnst veikleika vors og þeirrar hættu, sem umkringir oss á allar hliðar. 1 trausti og kærleika höllum vér oss að hjarta þínu, sem ert hinn ástríkasti faðir, hinn blíð- asti og bezti vinur. Drottinn Jesús, leyf oss að finna áhrifin af meðaumkun þinni og kærleika. Vertu styrk- ur vor og árnaðarmaður hjá þínum himneska föður og veittu oss fyrir sakir verðleika þinna og þín dýrmæta blóðs styrk í veikleika vorum, huggun í hörmung vorri og náð til þess að elska þig hér í tímanum og öðlast þig í eilífðinni. Líknsami frelsari, eins og forðum hefur þú ennþá hinn sama mátt til þess að lækna sem þú hafðir meðan þú dvald- ir hér á jörð, er þú læknaðir alla þjáða og sjúka, sem trúðu á þig. 1 þessari trú hrópa ég einnig til þín: Jesús, Daviðs sonur, miskunna þú mér! Ef þú aðeins vilt, megna ég að rísa á fætur og ganga. Bænheyrðu mig eftir þinni óendanlegu miskunnsemi og gefðu mér heilsu mína aftur. IHUGUN. Jesús Kristur hefur verið um- ræðuefni prédikaranna. Hann hefur beðið þess, að vér tækj- um við honum sem elskulegum vini. Jesús Kristur er vinur, sem vér ættum að elska, heiðra og hlýðnast. Hann fegrar lífið, veitir gleði, frið og kraft. Kom því til Jesú Krists. Leita ekki hjálpræðisins með öðru móti. Hann sagði: „Ég er dyrnar. Ef einhver gengur inn um mig, sá mun hólpinn verða.“ Talaðu oft við hann í bæn. Treystu honum. Horfðu upp til Jesú. Nálægð hans skírir andlega sjón þína, þegar sorgarskýin gera veg þinn dimman. Já, treystu Jesú. Sól kærleika hans eyðir skýj- unum. Bjarni M. Brekhmann. 22 UJARMI

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.