Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1970, Síða 24

Bjarmi - 01.01.1970, Síða 24
Fyrir fjórum árum birtust í Bjarma frásagnir og myndir af sumarbúðum K.F.U.M. og K. og skildra starfsgreina. Þá var og birt mynd af húsi félaganna í Reykjavík, þar sem aðalstöðvar þeirra eru við Amtmannsstíg 2B. Nú er ætlunin að halda þeim fróðleik áfram fyrir þá, sem utanbæjar eru og þekkja ekki til starfsemi félaganna. Næstu hús, sem félögin reistu sér hér í borginni, var félags- heimili þeirra við Kirkjuteig 33, sem mynd birtist af með þess- ari grein. Friðrik Ölafsson, kennari, hafði byrjað starf fyr- ir drengi í smáhýsi á jarðrækt- arsvæði K.F.U.M. við Reykjavík, sem nú er komið undir bílastæði íþróttaleikvangsins í Laugardal. Friðrik andaðist á öðru ári starfsins, og tók þá bróðir hans, Bjarni Ölafsson, handavinnu- kennari, við störfum þar, sem þá var orðið að „Yngri deild- inni“ í Laugarnesi. Smáhýsið varð fljótlega of lítið. Var þá farið að hugsa til að reisa fé- lagshús þarna innfrá. Mörg ár tók að fá byggingarleyfi og fjár- festingarleyfi, en þetta var á þeim árum, sem fjárhagsráð réð öflu varðandi byggingar- framkvæmdir. Húsið var tekið í notkun árið 1952 og hafa fé- lögin til afnota tvo sali í kjall- ara hússins, svo og eldhús. 1 stærri salnum eru fjölmennari fundir haldnir, aðallega yngri deilda fundirnir, en í smásal eru unglingadeildafundir oft hafðir. Félögin starfrækja þarna barna- og unglingadeildir og hefur sókn oft verið mjög mik- il. Einkum er yngri deild K.F. U.K. blómleg þarna, því tví- skipta verður fundum deildar- innar á mánudögum, þar eð Kirkjutcigur 33 í Reykjavík. FÉLAGS- HÚS K.F.U.M. & K.F.U.K. húsrými er ekki nægilegt. Yngri deild K.F.U.M. hefur sína fundi á sunnudagsmorgnum. Auk þessara vikulegu funda deildanna hafa einstakar sveit- ir þeirra fundi, eftir því sem sveitastjórum virðist þörf og þeir mega við koma. Unglingadeild K.F.U.K. varð tvítug 2. des. s.l., en unglinga- deild K.F.U.M. er árinu eldri. K.F.U.K. hefur sína fundi á miðvikudagskvöldum, en ung- lingadeild K.F.U.M. á föstudags- kvöldum. Auk þessara funda eru oft tómstundir í húsi félag- anna. Þar er aðstaða til fram- köllunar og kopíeringar á myndum fyrir þá, sem áhuga hafa. Þá hefur og oft verið haft föndur, t. d. módelsmíði, svo og margs konar leikir, svo sem tennis, bobb og fleira, sem venja er að hafa á slíkum stöðum. 24 BJAItMI

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.