Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1976, Blaðsíða 3

Bjarmi - 01.03.1976, Blaðsíða 3
Hlustaðu - °g sál þín lifir Fastan stendur nú yfir. Að vissu leyti er fastan erfiður tími. Ýmist finnst oss vér vera grunnfærir, er vér hugleiðum píslir Jesú, eða þær verða oss svo alvar- legar, að það íþygnir oss. Vér þörfnumst því leiðbeiningar. Hún ætti að veitast oss í hverri predikun, sem vér heyrum, bæði sunnudaga og aðra daga, sem orð Guðs kann að vera boðað. Predik- unin á að benda á hann, sem vill sjálfur vera leiðbeinandi vor um föstutímann, hinn lifandi Kristur, hinn sigursæli Drottinn vor. Sjáið til, vill hinn lifandi Drott- inn segja við oss, hversu mikils ég met þig: Svo dýrt met ég þig, svo dýru verði ertu keyptur, ekki með gulli eða silfri, heldur með beiskri þjáning minni og dauða, með dýr- mætu blóði mínu. Svo mikils met ég þig nú, svo dýrmætur ertu. Fyr- ir því máttu ekki lítilsvirða þig og halda, að himinninn fyrirlíti þig. Þú getur ekki hugsað of hátt um þig, þú, mannsbarn. Þér er ætlað að verða erfingi Guðs. Sjáðu, hversu mér er umhugað um að finna þig og vinna þig. Svo langa leið fór ég, svo djúpt steig ég niður til þess að komast þangað, sem þú varst: Úr dýrðinni í fjár- hús og jötu, til ofsókna og kross og grafar. Svo langt og djúpt fór ég til að finna þig þar, sem þú ert. Og nú er ég kominn að takmark- inu, við dyr hjarta þins. Þú vilt eiga mig að frelsara, er það ekki? Ég vil vera þinn. Sjáðu, hversu sakfelldur þú ert og dæmdur og glataður. Já, ég tók að mér þín mál, gerði ákærendum þínum skil: Mönnum, sem höfðu sök að sækja gegn þér vegna svika og óheiðarleika. Já, ég skildi þá. Ég vissi, að vanþóknun þeirra á þér var réttmæt. Allur himinninn var sammála þeim, Guð var sammála þeim, fullur hryggðar og reiði vegna þess, sem þú hafðir gert. Og þó hugsaði Guð til þin, og ég hugsaði líka til þín, og allur him- inninn var vitni að því, er ég tók syndir þínar inn í mína samvizku og iðraðist og sneri aftur þín vegna. Ég gerði það, þegar menn kvöldu mig, og faðir minn var sam- þykkur mér um, að þannig varð það að gerast. Skilur þú, að synd þín er alvar- leg? Skilur þú, að ég hef gert upp fyrir hana? Skilur þú, að ég hef lokið öllu af hennar vegna, að ég gleðst af því, að ég gerði það, að ég er fullur fagnaðar af því að geta tjáð þér, að nú mátt þú líka gleyma henni? Þú þarft ekki að hryggjast framar vegna sjálfs þín og ekki vegna mín, því að ég lifi og á fyrirgefning og frið handa þér — og þú skalt hljóta fyrirgefning og frið, líf og sáluhjálp hjá mér, frjálst og ókeypis. Þetta segi ég þér og vil innræta þér. Hlustaðu, og sál þín lifir. Þannig vill sigurvegarinn á krossinum, hinn lifandi Drottinn páskadags, leiða þig inn í heilaga þjáningasögu sína nú á föstunni. Verði hún þér til gagns. Til heilla og hjálpræðis. Ole Modalsli. 3

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.