Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1976, Síða 5

Bjarmi - 01.03.1976, Síða 5
Gildi styrkrar kirkju Bréf frá séra Berisha Húnde, presti í Konsó hægt að framkvæma þetta, vegna þess hve mikill skortur er á hjúkr- unarkonum á starfssvæði suður- sýnódunnar. í júní lauk fyrsta eins árs nám- skeiðinu á biblíuskólanum. Allir 14 nemendurnir luku námskeiðinu. Seinni hluta ársins hafa kennar- amir á biblíuskólanum, Berisha Húnde og Jónas, kennt á biblíu- námskeiðum úti í héruðunum ásamt prestunum. í haust tók Adane Asfaw við stjórn barnaskólans. Þar eru 249 nemendur. Uppskerubrestur varð aftur í Konsó í janúar 1975. Matarforði fólksins entist því ekki lengur en fram í marzmánuð. Við vorum beð- in um að standa fyrir matardreif- ingu. Á tímabilinu marz—júlí dreifðum við 2500 tonnum af mat til um 90.000 manns. Að lokum viljum við kristniboð- amir í Konsó þakka þér, trúfasti kristniboðsvinur, fyrir fyrirbænir og gjafir til starfsins. Við höfum fundið, að þú ert með í starfinu hér. Fyrir hönd kristniboðanna í Konsó. Skilli Svavarsson. Tölur frá Konsó 1975: 5300 kristnir menn í söfnuðunum 961 nýr safnaðármaður á árinu 60 skipulagðir söfnuðir 93 predikunarstaðir 1 barnaskóli með 249 nemendum 68 lesskólar með 3277 nemendum 4.501.51 eþíópska dali hefur söfn- uðurinn gefið til starfsins 39.921 sjúklingur hlaut meðferð á sjúkraskýli 623 legusjúklingar 111 minni háttar uppskurðir 3 meiri háttar uppskurðir 62 fæðingar Konsó, 12. janúar 1976. Kæru kristniboðsvinir. Ég þakka innilega fyrir gott bréf (frá kristniboðsvini í Reykjavík). Það gladdi okkur hjónin mjög, svo og samverkamenn mína. Við lofum Drottin fyrir gæzku hans og mildi. Mér þykir miður, að bréfaskipti okkar í milli hafa fallið niður um langt skeið. Það táknar þó ekki, að við höfum misst móðinn og að við tileinkum okkur ekki framar huggun Guðs í einstæðum hjálp- ræðisboðskap hans til handa gjör- völlu mannkyni. Fagnaðarerindið um Jesúm Krist er einstætt og skal flutt sérhverri kynslóð, þjóð og kynkvísl. Það er aldrei háð stjórn- málum og landamærum. Við þökk- um Guði, að við höfum frelsi og fulla heimild til að útbreiða og veita hjálpræðið frá Guði. Því er ekki að leyna, að sumir starfsmenn lúthersku kirkjunnar í Eþíópíu átta sig ekki á því, að kirkjan er sérstæð og óháð öllum ytri aðstæðum. Þess vegna1 vinna þeir ekki sem skyldi að því að efla hin raunverulegu málefni kirkjunnar. Þetta er alvar- legt mál. Ég er þakklátur Guði fyrir það, að samstarfsmenn mínir í Konsó, prestarnir, hafa skilið þessi mál betur en margir aðrir og séð hið mikla gildi styrkrar kirkju á þessum tímum. Við leggjum nú allt kapp á að fræða og efla safn- aðarfólk, í von um, að það vaxi að kristilegum þroska. Þetta er að vísu mikið og erfitt starf, og það tekur nokkur ár að ná markinu. Hjarta okkar er fullt af þakklæti til bræðra okkar, kristniboðanna, sem eru hér að verki að tilstuðlan Sambands íslenzkra kristniboðsfé- laga. Við þökkum gott samstarf og innilega guðrækni þeirra. Kirkjan í Konsó er þeim hjartfólgin, og þeir Kaupendur Bjarma, látið afgreiðsluna vita um bústaðaskipti V__________________________/ bera hana fyrir brjósti. Við von- um, að bræðralag okkar megi varð- veitast og viðhaldast, hvernig sem allt veltur í þessum heimi. — Um þessar mundir gefast okkur alveg einstök tækifæri til þess að ná til fólksins með fagnaðarboðskapinn. Ég veit, að kristinboðarnir hafa sagt ykkur ýmsar fréttir héðan. Ég flyt ykkur innilegar kveðjur frá konu minni. Berisha Húnde. Sameignarbúskapur í Eþíópíu Kunnugt er af fyrri fréttum frá Eþíópíu, að nú eiga bændur að stunda búskap í samvinnufélögum. Allar jarðir eru ríkiseign, og hef- ur bændum verið úthlutaður til- tekinn skiki. Enn er langt í land, að regla sé komin á hina nýju starfshætti. Kristniboði einn segir frá því, að hópar Eþiópíumanna hafi verið sendir til annarra landa til þess að kynna sér jarðræktar- mál. Meðal annars hélt fjörutíu manna sendinefnd til Kína og kynnti sér, hvernig samtökum bænda væri háttað þar og hvaða aðferðum beitt í sameignarbúskap. Einn sendimaðurinn var fulltrúi lúthersku kirkjunnar í Eþíópíu. Eþíópskir leiðtogar, sem kristni- boðinn ræddi við, létu í ljós þá skoðun, að skipulagið í landi Maós virtist henta Eþíópum bezt. Samvinnufélög bændanna eiga lika að standa fyrir menningar- málum, t. d. koma á fót skólum, heilsugæzlustöðvum, efla búnaðar- hætti o. s. frv. Víða hefur leiðtog- um kristinna safnaða verið falin stjórn á þessum málum. Svo er háttað t. d. í Suður-Eþiópíu. Ýmsar ástæður valda því, að kristnir menn eru settir til forystu. Þeir eru læsir. í söfnuðunum hafa þeir lært að vinna að sameiginlegum hagsmuna- málum, t. d. í sambandi við stofn- un lestrarskóla. Þá eru þeir og virtir fyrir staðfestu í breytni og siðgæði. 5

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.