Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.03.1976, Side 6

Bjarmi - 01.03.1976, Side 6
st BLESSUÐ BÓK Um rlt Nýja testamcntisins Postulasagan Guðspjöllin fjögur, sem Nýja testamentið hefst á, eru frásögur um Jesúm, predikun hans, máttar- verk, dauða og upprisu. Þau eru stundum kölluð „Orð Drottins". Að öðru leyti er efni Nýja testamentis- ins að mestu leyti bréf frá postul- unum. Bréfin hafa verið nefnd „Orð postulanna". Ritið, sem nú verður fjallað um, er tengiliöur milli guð- spjallanna og bréfa postulanna. Einkum er Postulasagan nauðsyn- legur inngangur að hinum mörgu bréfum Páls postula. Einnig má segja, að Postulasagan sé framhald ritverksins, sem læknirinn Lúkas hóf að semja með guðspjalli sínu. Hún er „síðara bindi“ ritverks hans. í „fyrra bindinu" fjallar Lúkas um „allt, sem Jesús gjörði og kenndi frá upphafi, allt til þess dags, er hann var upp numinn, eftir að hann hafði fyrir heilagan anda boðorð gefið postulunum, er hann hafði valið“, Post. 1,1—2. í þessu seinna riti vakir fyrir höfundi að greina frá því, hvernig postularnir héldu áfram verki Drottins á jörð- unni. Þess vegna hefur ritið allt frá annarri öld verið nefnt „Postula- sagan“. Heiti rilsins Ekki er til þess vitað, að Lúkas hafi gefið frásögu sinni þetta nafn. Sumir benda líka á, að nafn- ið hitti ekki alveg í mark, enda segi ritið bæði meira og minna en lesendur hefðu vænzt, þegar þeir íhuga nafnið. Ef vér búumst við, að hér sé sagt frá starfi allra post- ulanna hvers um sig, þá verðum vér fyrir vonbrigðum. Sannleikur- inn er sá, að bókin segir að heita má eingöngu frá starfi hinna tveggja höfuðpostula, Péturs og Páls. Jakobs og Jóhannesar Zebe- deussona er lítillega getið. Hér er jafnvel ekki um að ræða rækilega frásögn af starfi Péturs og Páls. Þess ber þó að geta, að í Postula- sögunni er ekki aðeins fjallað um einstakar athafnir höfuðpostulanna tveggja, heldur má segja, að hér sé um að ræða kristniboðssögu postulanna, þar sem frásagan er öll í samhengi og atburðirnir flétt- ast saman. Lúkas fræðir lesendur sína um, að postularnir hafi hlotið úthellingu heilags anda — og síðan flytja þeir vitnisburðinn um Jesúm um jörðina, eins og þeim var boð- ið, þegar Drottinn Jesús gaf þeim fyrirmæli um kristniboðið, 1,8: „Þér munuð verða vottar mínir bæði í Jerúsalem og í allri Júdeu og Samaríu og til yztu endimarka jarðarinnar". Þarna kemur fram markmið höfundar: Hann vill sýna, hvernig vottar Jesú hlýddu þessu boði og kristin kirkja hóf göngu sína. Frá Gyðingum til lieiðingja Kirkja Krists, söfnuðurinn, sem hann stofnar, birtist á sviði sög- unnar. Sá atburður er í órofa sam- hengi við annan atburð, sem gerist í mörgum áföngum: Vottar fagn- aðarerindisins finna ekki hljóm- grunn meðal ísraelsþjóðarinnar — og fara því til heiðingjanna. Post- ulasagan lýsir því, hvernig Jesús er fyrst boðaður i Jerúsalem, höf- uðborg hinnar útvöldu þjóðar, og að lokum í Rómaborg, hinni miklu heimsborg. Hvað eftir annað hafna Gyðingar hjálpræðisboðskapnum, en heiðingjar veita honum viðtöku með fúsu geði. Því má segja, að kristniboðssagan gerist milli þess- ara tveggja skauta, Jerúsalem og Rómar: Til Júdeu og Samaríu — það er forsaga kristniboðsins með- al heiðingja — og áfram til Sýr- lands, Kýpur, Litlu-Asíu, Make- dóníu og Grikklands, hinna heiðnu landa. í samræmi við þetta skiptist rit- ið í stórum dráttum í tvo megin- hluta: Fyrstu tólf kapítularnir segja frá kristniboði meðal Gyð- inga og greina einkum frá Pétri postula; frá 13. kapítula er fjallað mest um kristniboð meðal heið- ingja, og þar er Páll aðalsöguhetj- an. Þó hefst saga heiðingjatrúboðs- ins þegar í fyrri hluta ritsins. Á sama hátt heldur saga Gyðingatrú- boðsins áfram í síðari hlutanum, enda er hvarvetna lögð á það áherzla í frásögunum um Pál, þar sem hann er á ferð í „dreifing- unni“, að hann bjóði Gyðingum fyrst fagnaðarerindið, allt til Róm- ar, en því er alls staðar hafnað af hálfu Gyðinga. Þar með er það orð- in staðreynd, að fagnaðarboðskap- urinn er fluttur heiðingjum. Guð leiðir Höfundur Postulasögunnar legg- ur mikla áherzlu á, þegar hann segir frá boðun fagnaðarerindisins frá Jerúsalem til Rómaborgar, frá Israel til heiðna heimsins, að Guð hafi haft hönd í bagga með þess- ari þróun. Postularnir yfirgáfu ekki þjóð sína vegna duttlunga, heldur hefur ísrael varpað þeim á dyr. Þeir voru knúnir af rás at- burðanna og af ótvíræðum opinber- unum Guðs. Þannig fluttu þeir vitnisburðinn um Jesúm æ víðar „til endimarka jarðar". Ofsókn hefst strax gegn fagnaðarerindinu, 4, allir hafa hafnað boðskap hjálp- ræðisins, ráð Gyðinga, 4—5, engu síður en íbúar Jerúsalem, 6—8, og loks konungar jarðarinnar, 12. Þeir ætluðu að stöðva framrás þess á þennan hátt. En í staðinn hafa þeir einmitt stuðlað að því, að sáð- korn gleðiboðskaparins dreifðust út um löndin. Gyðingar þeir, sem tóku trú og urðu að hrökklast í burtu, 8, 4, ferðuðust um og vitn- uðu um Jesúm, ekki aðeins í Júdeu og Samaríu, 8—10, heldur einnig utan landamæra Landsins helga, fyrir Grikkjum, 11, 19 o.n. Hann, sem frá upphafi var fyrir- liði ofsækjendanna, Sál, var sjálf- ur lagður eins og herfang að fót- um Jesú til þess að verða hið út- valda verkfæri til að boða nafn hans víða um lönd, 9. En Postulasagan hermir, að jafn- vel þessi postuli heiðingjanna hafi byrjað að boða Krist í samkundu- húsum Gyðinga, 9,20; 13,5,14 o.n. og víðar. Þá fyrst sneri hann sér beint til heiðingjanna, þegar Gyð- ingar höfðu látið hjálpræðisboð- skapinn eins og vind um eyrun þjóta, 13,46; 18,6; 28,28 og víðar. Og að lokum sýnir hann innilega tryggð sína við þjóð sína með því að takast á hendur hina síðustu meiri háttar ferð sína til Jerúsalem, þrátt fyrir margvislegar hættur, sem myndu bíða hans. Lúkas lýsir 6

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.