Bjarmi - 01.03.1976, Page 8
Séra Jónas Gíslason, lektor:
Kristileg skólasamtök 30 óra
Forsaga
Fyrst mun hafa verið rætt um
að hefja skipulagt starf meðai
skólanemenda í Reykjavík á árun-
um eftir 1940. Fyrirmyndin var
sótt til Norðurlandanna, einkum
Noregs, en fyrir áhrif þaðan hafði
Kristilegt stúdentafélag, KSF, ver-
ið stofnað árið 1936, skömmu fyrir
heimsókn prófessors Hallesbys og
norskra stúdenta með honum.
KSF hélt nokkra fundi sérstak-
lega fyrir nemendur úr Mennta-
skólanum í Reykjavik, þar sem
m. a. var rætt um möguleika á að
stofna sérstakt kristilegt skólafé-
lag, en ekkert varð úr framkvæmd-
um um sinn.
Þá var það, að 12. febrúar 1943
stofnuðu fjórtán nemendur í Gagn-
fræðaskólanum í Reykjavík félag,
sem hlaut nafnið Kristilegt félag
Gagnfræðaskólans í Reykjavík.
Haldnir voru fundir fyrir nemend-
uh skólans, þar sem mest áherzla
var lögð á að boða fagnaðarerindiö.
Árið eftir gaf það út í fyrsta sinn
Kristilegt skólablað, sem síðan hef-
ur komið út árlega.
Kristileg skólamót
Stofnun þessa félags ýtti enn
undir umræður um stofi^un al-
menns kristilegs félags fyrir skóla-
nemendur í Reykjavík. Vorið 1943
var haldið fyrsta kristilega skóla-
mótið í Kaldárseli, sem var opið
öllum skólanemendum. Þá voru
einnig haldin kristileg skólakvöld,
sem auglýst voru í öllum skólum
borgarinnar. Voru þau oft ágæt-
lega sótt.
Það mun síðan hafa verið haust-
ið 1945, að haldnar voru nokkrir
umræðufundir, þar sem rætt var
um að stofna almennt kristilegt
skólafélag. Þá höfðu ýmsir af
stofnendum KFGR lokið námi í
þeim skóla, og vafi lék á áfram-
haldandi starfi þess. Kosin var und-
irbúningsnefnd til þess að kanna
möguleika á stofnun nýs félags. í
ljós kom, að mikill áhugi var hjá
allstórum hópi skólanemenda á að
Merki KSS.
stofna almennt skólafélag og var
stofnun þess því ákveðin.
KSS stofnað
Stofnfundur var haldinn 22. jan-
úar árið 1946. Félagið hlaut nafn-
ið Kristileg skólasamtök, KSS, og
voru stofnendur þess 31. Lög voru
sett) og stjórn kosin. Leitað hafði
verið samvinnu og samráðs við
KSF og það beðið um að kjósa einn
mann til setu í stjórn hins nýja fé-
lags. Hefur sú skipan haldizt æ
síðan, nema hvað hin síðari árin
hafa KSF, KFUM og K sameigin-
lega skipað þennan stjórnarmann.
Þetta leggur áherzlu á, að KSS
starfar í nánu samstarfi við þessi
félög og á sama trúargrundvelli,
þótt það hafi haslað sér völl á þessu
sérstaka, afmarkaða starfssviði:
meðal skólaæskunnar.
Fundir eru í KSS á laugardögum á veturna, en bibliulestrar
á föstudögum á sumrin.
8