Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1976, Síða 16

Bjarmi - 01.03.1976, Síða 16
 Bænin má aldrei bresta þig Það var sagt um tónsnilling einn þýzkan, að hann hafi, hvert sem hann fór til að láta menn heyra list sína, flutt með sér hljómlaust hljóðfœri, þ. e. eins konar áhald, sem hann gat œft á fingurna, þótt það gœfi ekki tóna frá sér. Þannig gat hann iðkað list sína í kyrrþey, hvar sem hann var. Hann sjálfur komst svo að orði um þetta: „Líði einn dagur, án þessarar hljóðu iðkunar, finn ég sjálfur mun á mér. Líði tveir dagar, verða vinir mínir þess varir. En líði þrir dagar án þessarar hljóðu iðkunar minnar, þá verða áheyrendumir í sönghöllinni varir við það." Einnig þannig er þessu og varið um bœnalífið hjá mér og hjá þér. Svo miklu veldur hin kyrrláta og hljóða iðkun, sem enginn maður sér, iðkun lífs þins í Guði. Líði einn dagur án hennar, kemur það í ljós við þá, sem oss standa nœst. Líði þrir dagar án skrifta fyrir Drottni, verður það opinbert út í frá. Þorsteinn Briem, prestur. CT^S/ Stutt bæn Kröftugustu bœnirnar hafa alltaf verið stuttar. Bœn kanversku kon- unnar var aðeins orðin: „Herra, hjálpa þú mér." Sumir kristnir menn yrðu skelfingu lostnir, ef ég bœði svo stutta bœn, en við mun- um komast að raun um, að þessar bœnir verða skjótlega heyrðar. Rœninginn á krossinum bað: „Herra, minnst þú mín, þegar þú kemur í ríki þitt." Og Drottinn svar- aði þeirri bœn þegar í stað með orðunum: „I dag skaltu vera með mér í paradís". Og nú þarft þú ekki einu sinni að biðja eins langa bœn og rœninginn, því aö nú er Drottinn í riki sínu. Segðu aðeins: „Minnstu mín!" Við munum líka eftir bœn Péturs, þegar hann fór að sökkva: „Herra, bjarga þú mér!" Ef Pétur hefði beðið eins langa bœn og sumir predikarar gera nú á tímum, þá hefði hann verið kom- inn niður á 30 faðma dýpi, áður en hann heíði lokið innganginum. Ég skil ekki, hvaðan þetta er komið, að menn biðja svo langar bœnir. Bœn Drottins er geíin fyrir alla tíma og allar þjóðir, ríkum og fátœkum, Iœrðum og ólœrðum. Þó tekur þessi bœn til allra þarfa okkar. D. L. Moody, predikari. Engin bæn er árangurslaus Allar bœnir, sem beðnar eru sam- kvœmt vilja Guðs, eru heyrðar. Það er engin afsökun, þó að okkur kunni ekki að vera ljóst, hvort við eigum „persónulega trú” eða ekki. Við getum öll beðið. Bœn er ekki neitt hátíðiegt. Við getum talað einfaldlega við Guð um hvaðeina, sem liggur okkur á hjarta. Við þurfum ekki einu sinni að nota orð, sem heyrast. Guð heyrir Hka hugsanir okkar. Ekki er heldur alltaf nauðsynlegt, aö við hugsum um, hvað við eigum að biðja um. Ef við getum aðeins ver- ið hljóð og beðiö eftir Guði, þá mun hann sjálfur minna okkur á, hvers við eigum að biðja og fyrir hverjum. Sá, sem fer að biðja, eftir því sem hann er hvattur til þess í hjarta sér, hann mun þreifa á blessun Guðs. Engin bœn er árangurslaus. Eng- in bœn fyrir öðrum er áhrifalaus. Nefnum því fyrir Guði það, sem okkur finnst við eigum að biðja fyrir. Þá tökum við þátt í því að stjórna heiminum, jafnvel í hárri elli. Einar Lundby, læknir. Fyrirheit Jesú um bænina Biðjið, og yður mun gefast; leitið, og þér munuð finna; knýið á, og fyrir yður mun upp lokið verða; þvi að hver sá öðlast, er biður, og sá finnur, er leitar, og fyrir þeim mun upp lokið, er á lcnýr. Eða hver er sá meðal yðar, sem mundi gefa syni sínum stein, ef hann bœði um brauð? Og hvort mundi hann gefa honum höggorm, ef hann bœði um fisk? Ef nú þér, sem vondir eruð, haíið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir, hversu miklu fremur mun þá faðir yðar, sem er í himnum, gefa þeim góðar gjafir, sem biðja hann. Matt. 7,7—11. 16 BJARMI

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.