Bjarmi - 01.01.1990, Side 12
Ada Lum í
viðtali
við Bjarma
./>•
Ada Lum.
onan
sem genr
£A
lifandi
ADA LUM hefur varið mestum hluta ævi sinnar til
kristilegs starfs meðal stúdenta. Fyrst á heimaslóðum á
Hawaií-eyjum, síðan hátt á annan áratug í Asíulönd-
um og eftir það í öllum heimsálfum. Hún hefur unnið
mikið að stofnum biblíuleshópa og skrifað margar
bœkur um biblíulestur. Ada Lum er nú biblíuskóla-
kennari á Hawaií, en notar skólaleyfin til að heimsækja
kristileg stúdentafélög. Réttfyrir jólin var hún hér áferð
og notaði fréttamaður BJARMA tœkifœrið til að leggja
fyrir hana nokkrar spurningar:
Ég sannfœrðist
um að hinn lif-
andi Guð var
að tala í orði
sínu.
— Ada, átt þú ættir að rekja til frumbyggja
Hawaií-eyja?
- Nei, foreldrar mínir komu frá Kína. Ný-
gift fluttu þau til Hawaií og þar fæddumst við
systkinin níu talsins. Ég var fimmta barnið í
• röðinni, en varð fyrst til að taka kristna trú.
Síðar komust foreldrar mínir einnig til lifandi
trúar á Jesú.
- Hvernig eignaðist þú trú á Krist?
- Nágrannar okkar buðu mér með sér í
sunnudagaskóla og þar lærði ég mikið, en ég
eignaðist ekki persónulega trú á Jesú fyrr en
eftir að sorgaratburður í fjölskyldunni hafði
svipti mig öllu öryggi. Þá varð mér ljóst að
fjölskylda mín var ekki sá óbifanlegi grund-
völlur, sem ég hafði ætlað. Ég leitaði til Bibl-
íunnar og Drottinn gaf mér nægan skilning á
14. kafla Jóhannesarguðspjalls, til þess að sjá
Jesú þar og skilja að hann er sá grundvöllur
sem ég gat byggt líf mitt á. Ég tók að lesa Bibl-
íuna og hugsaði mikið um boðskap hennar.
- / erlendu blaði sá ég að þú varst kölluð:
„Konan, sem gerir Biblíuna lifandi“. Hvað
varð til þess að Biblían varð svo lifandi í þín-
um huga?
- Þegar ég las guðspjöllin og sá að þau fjöll-
uðu um raunverulegt fólk og um Jesú sem
sögulega persónu, varð mér smám saman ljóst
hve mikið erindi Biblían á til fólks á okkar
tímum. Ég sannfærðist um að hinn lifandi
Guð var að tala í orði sínu og að hann vildi op-
inbera sjálfan sig öllum mönnum.
Ég eignaðist sífellt dýpri löngun eftir því að
aðrir kæmu auga á þetta, og ákvað að fara í
framhaldsnám í guðfræði og biblíulegum bók-
menntum. Afleiðingin varð sú að ég hef feng-
ið að nota líf mitt til að hjálpa öðrum að ljúka
upp Biblíunni sinni og kynnast Guð þar.
- Púferðast víða um heim og hveturfólk til
að lesa Biblíuna, en hvað varð til þess að þú
fórstfyrst til framandi landa.
- Þegar ég var nýkomin til trúar, gaf ég
Drottni líf mitt með það í huga að gerast
kristniboði. Ég hélt þá að Guð myndi leiða
mig til Kína, því þaðan er ég ættuð. En þegar
ég hafði lokið námi, var Kína lokað land, svo
ég gat ekki farið þangað. Ég byrjaði því að