Bjarmi - 01.01.1990, Síða 20
Liðsauki til Afríku
Sr. Guðmundur Guðmundsson kom heim til íslands um ára-
mótin úr námi erlendis en hann hefur verið að búa sig undir að
fara út á kristniboðsakurinn. Hann var í kristniboðaskóla í Osló í
fyrravetur en nam ensku í Lundúnum í haust. Sr. Guðmundur
verður nú í hálfu starfi hjá Kristniboðssambandinu í vetur en býst
við að fara til Eþíópíu síðar á árinu eða strax og hann hefur fengið
atvinnuleyfi. Þegar þetta er ritað er ekki vitað hvar hann muni
Starfa en það verður á svæði suðursýnódu lúthersku kirkjunnar
þár syðrá.
Lengi hefur verið um það rætt að þörf væri á íslenskum
kennara fyrir börn kristniboðanna og hefur það verið á bænalista
kristniboðsvina. Nú hefur Kristín Bjarnadóttir, kennari í Reykja-
vík, tjáð sig fúsa til að fara til Afríku, fyrst um sinn í eitt ár, og er
ráðgert að hún hefjist handa í norska barnaskólanum í Nairóbí í
Kenýu á komandi hausti.
Kristniboðsvinir eru hvattir til að biðja fyrir þessum ungu liðs-
mönnum.
Þá er þess að geta að Valgerður Gísladóttir og Guðlaugur
Gunnarsson eignuðust dreng 22. desember sl. og heitir hann
Gísli.
Ritsmíð
Þórarinn Björnsson, framkvæmdastjóri Landssambands
KFUM og KFUK, hefur nýlega fjölfaldað lokaritgerð sína í
kirkjusögu er fjallar um upphaf kristilegs stúdentastarfs á íslandi.
Ritgerðin er mjög ítarleg og rekur m.a. feril fyrsta kristilega stúd-
entafélagsins á íslandi er hét „Bandalagið“ og starfaði árin 1898-
1900. Meðal stofnenda félagsins var Friðrik Friðriksson er síðar
stofnaði KFUM og KFUK. Varpar ritgerðin m.a. nýju Ijósi á
vissa þætti er varða upphaf KFUM hér á landi og afdrif íslensku
KFUM-deildarinnar í Kaupmannahöfn.
Ritgerðin er til sölu á aðalskrifstofu KFUM, KFUK og SÍK og
í Bóksölu stúdenta.
Vitnisburður andans
Hinn kunni prestur, Klaus Harms var einhvern tíma að hug-
leiða, að það væri heilagur andi, sem lyki orðinu upp fyrir okkur
og að menn megnuðu ekkert án hans. Væri því réttast að fela
honum að gera alla hluti.
Hann ákvað því að búa sig ekki undir prédikunina næsta sunnu-
dag, en segja það eitt, sem andinn blæsi honum í brjóst.
Þegar hann kom heim að lokinni guðsþjónustunni, spurði kona
hans, full eftirvæntingar:
„Jæja, hvað sagði andinn þér?
Presturinn svaraði: „Andinn sagði: Þú hefur verið latur,
Klaus.“
Éghef
fundið Jesúm
Ég var einu sinni beðinn að koma til konu
sem lá fyrir dauðanum. Hún hafði ekki látið
frelsast. Konan sagði:
- Ég er svo hrædd við að deyja! Ég er svo
hrædd við að deyja!
Fjölskyldan stóð í ganginum fyrir utan
sjúkrastofuna. Þa.u þorðu varla að koma inn.
Ekkert þeirra átti samfélag við Guð. Trúaður
hjúkrunarfræðingur fylgdi mér inn til konunn-
ar. Hún lá í rúminu. Það var óhugnanlegt að
sjá hana og sárt að heyra neyðarópið. Ég vissi
ekki hvað ég átti að segja en Guð sýndi mér
það eins og í leiftri. Svo sagði ég við hana:
— Vertu nú róleg og reyndu að hlusta á mig.
Hugsaðu ekki um neitt annað. Það er Guð
sem talar til þín. Taktu nú eftir hvað hann
segir: „Hefir þú mætt mig með syndum þínum
og þreytt mig með misgjörðum þínum.“
- Er þetta rétt; spurði ég. Hún stundi.
Þannig var því einmitt farið.
- Þá verðurðu að heyra hvað Guð segir í
sömu andránni: „Ég, égeinn, afmái afbrot þín
sjálfs mín vegna og minnist ekki synda þinna“
(Jes. 43,24-25).
Sjúklingurinn hvíslaði: - Segðu það aftur.
Ég las það aftur. Ég las það tvisvar, þrisvar,
já, tíu sinnum. Og ég sagði við hjúkrunar-
fræðinginn sem bað mig að koma að hún
skyldi ekki segja neitt annað en þessi orð.
- Nú skaltu ekki dreifa huganum heldur
einbeita þér að þessum eina boðskap.
Veika konan dó ekki þennan dag eins og
búist hafði verið við. Hún lifði enn í tvo daga.
Og ljósið rann upp fyrir henni og hún hóf að
vitna fyrir fjölskyldu sinni:
- Nú er ég frelsuð. Nú hef ég öðlast fyrir-
gefningu syndanna. Ég hef fundið Jesúm,
sagði hún.
Daginn eftir fór hún giöð og sæl heim til
Guðs.
Það erum ekki við sem eigum að sannfæra
heiminn heldur heilagur andi (Jóh. 16,8nn).
Það gerist fyrir orð Drottins sjálfs. Þegar við
förum með orð Drottins fyrir öðrum, tölum
við þá með því, þá sannfærir heilagur andi.
Við eigum að ganga út frá því.
Öivind Andersen